Fréttablaðið - 11.06.2009, Síða 28
www.nora.is Dalve
opið: má-fö. 11-18,
laugard. 11-16
Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
Laugavegi 87 • sími: 511-2004
Brúðargjöfi n í ár!
Dún og Fiður
MÁLVERKASÝNING var opnuð í Perlunni í gær.
Þar eru til sýnis um áttatíu olíumálverk úr fórum Veru
Sörensen og Árna Björns.
„Ég hafði séð svona síma áður í
bíómyndum og vinkonur mínar í
bekknum langaði mikið að koma
heim og prófa símann þegar ég
sagði þeim frá honum,“ segir
Katrín Sigríður Steingrímsdótt-
ir, 11 ára, en fjölskylda hennar
festi nýlega kaup á skífusíma sem
okkur sem fullorðin erum þykir
ekki mikill forngripur. Í augum
Katrínar og vinkonu hennar,
Petrúnellu Aðalheiðar Kristjáns-
dóttur, er síminn hins vegar afar
spennandi nýjung. Síminn var
keyptur í Góða hirðinum fyrir
nokkrum vikum á 3.200 krónur en
þar má stundum fá svona síma.
„Ég hélt fyrst að það væri svolít-
ið erfitt að hringja úr svona síma
en ég lærði það fljótt. Jú, ég hafði
séð svona síma áður, einn heima
hjá vinkonu minni og svo í búðum
sem selja gamaldags hluti,“ segir
Petrúnella. Katrín segir að hún
lendi miklu oftar í því að hringja
í vitlaust númer en á takkasíma.
„Maður sér ekki á skjá hvaða tölur
maður hefur stimplað inn svo að
ég hringi stundum í skakkt númer.
Það er líka svolítið skrítið að þurfa
alltaf að vera í sama herberginu að
tala í símann.“
Petrúnellu finnst miklu skemmti-
legra að tala í skífusíma. „Það er
skemmtilegt að snúa skífunni og
gaman að heyra hljóðið þegar hún
snýst til baka,“ segir hún en benda
má foreldrum á að það gæti verið
ærinn sparnaður að festa kaup á
veggföstum símum þessi misser-
in þegar allt snýst um að lækka
útgjöld. Þannig ferðast fjölskyldu-
meðlimir ekki með símann um allt
hús og halda áfram að masa meðan
þeir sinna húsverkum eða horfa á
sjónvarpið. Síma sem þessa má á
góðum dögum finna í Kolaportinu,
hjá Fríðu frænku, í Sölu Hjálpræð-
ishersins úti á Grandaslóð og jafn-
vel á sölusíðum á Netinu.
solveig@frettabladid.is
Slegist um að fá að
hringja úr skífusímanum
Gamli og góði skífusíminn vék fyrir takkasímanum á níunda áratugnum. Nú er hann sjaldséður á ís-
lenskum heimilum en með aukinni fortíðarhyggju virðast vinsældir skífusímans vera að aukast á ný.
HÖFÐU BARA SÉÐ SVONA SÍMA Í BÍÓMYNDUM Katrín Sigríður Steingrímsdóttir og Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir voru
fljótar að læra á skífusímann sem keyptur var í Góða hirðinum og finnst hann þrælskemmtilegur. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Børge Mogensen
(1914-1972) var
danskur húsgagna-
hönnuður. Hann
hannaði einföld og
praktísk húsgögn. Hér
má sjá Veiðistólinn
sem Mogensen hann-
aði árið 1950 úr eik
og leðri.
www.wikipedia.
org