Fréttablaðið - 11.06.2009, Side 32
11. JÚNÍ 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● landið mitt austurland
Austurland er samkvæmt
lauslegri könnun Fréttablaðs-
ins frá síðustu helgi annar
skemmtilegasti staður Íslands
til að sækja heim á sumrin.
Fyrir ferðalanga sem láta sig
gistinguna sjálfa miklu máli
skipta má benda á nokkra af
skemmtilegri gististöðum þar
eystra.
Margir gististaðir Austurlands
hafa getið sér gott orð og í gegn-
um tíðina hafa þeir oft þótt einkar
frumlegir. Þannig er gömul kirkja
á Stöðvarfirði orðin víðfræg en
hún var innréttuð sem gistihús
fyrir ferðalanga fyrir nokkrum
árum. Ferðalangar leggjast þannig
til hvílu við hlið gamals altaris.
Miklir frumkvöðlar hafa líka
lagt Seyðisfirði lið í gegnum árin
í ferðaþjónustunni. Þóra Bergný
Guðmundsdóttir arkitekt stend-
ur þar framarlega og rekur eitt af
persónulegustu farfuglaheimilum
landsins, Hafölduna, en hún kom
líka að því að velja innanstokks-
muni inn í eitt fallegasta hótel
landsins sem einnig er á staðn-
um, Hótel Ölduna. Fyrir brúðhjón
á ferð um landið kemur það hótel
sterkt inn en í nokkrum herbergj-
anna má finna svokallaða „lok-
rekkju“ í indverskum stíl.
Þóra Guðmundsdóttir á líka sinn
þátt í öðru farfuglaheimili aðeins
sunnar á Austfjörðum, á Berunesi,
en þar hannaði hún, í gamla fjós-
inu, litlar stúdíóíbúðir. Berunes er
einn sérstakasti gististaður Íslands
og síðastliðið haust var Berunes
valið annað besta farfuglaheim-
ili heims, að mati viðskiptavina
alþjóðasamtaka farfuglaheimila.
Ummæli gesta voru meðal annars
á þá leið að gisting á Berunesinu
væri eins og að kíkja í heimsókn
til ömmu sinnar.
Húsið á Berunesi er 100 ára
gamalt og hjónin Ólafur Eggerts-
son og Anna Antoníusardóttir
hafa reynt að halda húsinu í upp-
runalegu horfi en foreldrar Önnu
byggðu Berunesið áður en það varð
farfuglaheimili. Þau hafa rekið
farfuglaheimilið frá árinu 1974 og
eiga því 35 ára starfsafmæli um
þessar mundir.
Ekki má heldur gleyma far-
fuglaheimilinu á Reyðarfirði sem
hefur allt verið tekið í gegn nýlega.
Hjá Marlín kallast það en þar er
ýmis aukaþjónusta í boði eins og
afnot af guðubaði, þráðlaust inter-
net, kaffihús og útigasgrill. - jma
Öðruvísi austfirskir
gististaðir vinsælir
Húsið á Berunesi er 100 ára gamalt.
Gamlir innanstokksmunir, bækur,
eldavélar og rúm frá því fyrri ábúendur
bjuggu á Berunesi eru til afnota fyrir
gesti farfuglaheimilisins.
Kirkjan á Stöðvarfirði með svefnpokapláss við altarið þykir meira en lítið sérstakur gististaður á Austurlandi.
Falleg herbergi fyrir rómantískt fólk má finna á Hótelinu Öldunni á Seyðisfirði.
Hjónin Ólafur Eggertsson og Anna Ant-
oníusardóttir reka farfuglaheimilið að
Berunesi sem er gamalt sveitabýli. Beru-
nesið var kosið annað besta farfugla-
heimilið á heimsvísu af ferðalöngum.
Belgískar vöfflur eru aðalsmerki
far fuglaheimilisins á Reyðarfirði, Hjá
Merlín.
Hótel Aldan á Seyðisfirði er eitt glæsilegasta hótel landsins. Það var allt tekið í gegn
fyrir nokkrum árum.
Hágæða þýskar sólarrafhlöður
Fáanlegar í setti með öllu
tilheyrandi.
EFOY Efnarafall
Alsjálfvirkt hleðslutæki í
ferðavagninn sem býr til
raforku úr metanóli. Sér um
að halda rafgeymunum alltaf
fullhlöðnum.
AGM Rafgeymar
Sérstaklega hannaðir fyrir
notkun í ferðavögnum.
12V í 230V Spennubreytar
230 Volta SINUS spenna
fyrir öll 230V raftæki.
Hleðslutæki mælar/rofar
og margt fleira.
Láttu ekki tjóðra þig við staur í ferðalaginu!
- framleiðið sjálf rafmagnið í ferðavagninn
Eiðistorgi 17 170 Seltjarnarnes S. 578-5566 www.fjarorka.is