Fréttablaðið - 11.06.2009, Page 46

Fréttablaðið - 11.06.2009, Page 46
30 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is > ekki missa af síðustu sýningum Leikfélags Akureyrar á Fúlum á móti í Íslensku óperunni í kvöld og föstudagskvöld. Fúlar á móti er orðin önnur aðsóknarmesta sýning á einu leikári hjá LA. Þegar hafa um 15.000 gestir séð Fúlar á móti. Þær Edda Björgvinsdóttir, Helga Braga og Björk Jakobsdóttir eru Fúlar á móti. Verkið er eftir Jennifer Eclair og Judith Holder. kl.20 Skipulag auðnarinnar er yfirskrift göngu sem Hjálmar Sveinsson mun leiða frá Hafnarhúsinu að Höfðatorgi í kvöld en Hjálmar er kunnur fyrir umfjöllun sína um skipulagsmál í Reykjavík. Gangan er hluti af verkefninu Kvöldgöngur úr Kvosinni sem er dagskrá sem menning- arstofnanir borgarinnar hafa sett saman hvert fimmtudagskvöld yfir sumartím- ann og stendur nú til boða fimmta árið í röð. Gengið er frá Listasafni Reykja- víkur – Hafnarhúsi kl. 20. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir. Í kvöld verða síðustu áskriftar- tónleikar Sinfóníunnar á þessu starfsári. Hingað er kominn góður gestur, sópransöngkon- an Emma Bell, og syngur hún nokkrar perlur í Háskólabíói við undirleik hljómsveitarinnar. Fyrri hluti tónleikanna saman- stendur af tveimur klassísk- um meistaraverkum, hinu glæsilega Exsultate, jubilate eftir Mozart sem er eins konar konsert fyrir sópransöngkonu, og sinfóníu nr. 2 eftir Ludwig van Beethoven. Eftir hlé er leikið á strengi tilfinninganna í verkum eftir Samuel Barber og glaðværum aríum úr óperum og óperettum eftir Johann Strauss, Franz Lehár og Giacomo Puccini. Emma Bell er ein glæsilegasta sópransöngkona sem komið hefur fram í Bretlandi í árar- aðir. Hún hreppti Kathleen Ferrier-verðlaunin árið 1998 og hin virtu Borletti-Buitoni- verðlaun nokkrum árum síðar. Hún þykir sérlega hæfileikaríkur Mozart-túlkandi og mun syngja hlutverk grei- fynjunnar í Brúðkaupi Fígarós við Metropolitan-óperuna haustið 2009. Stjórnandi er Hannu Lintu frá Finnlandi, sem hefur nýverið tekið við starfi aðalstjórnanda við Fílharmóníuhljómsveitina í Tampere. Tónleikarnir hefjast kl. 19.30 og verður þeim útvarpað á rás 1 Ríkisútvarpsins. Exsultate, jubilate í kvöld TÓNLIST Emma Bell syngur á tónleik- um Sinfó í kvöld. MYND/SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 11. júní 2009 ➜ Tónleikar 12.00 Málmblásarakvintettinn Brassk arar heldur hádegistónleika í Dómkirkjunni við Austurvöll. Á efnis- skránni eru verk eftir J.S. Bach, G. Gabrieli, P. Dukas ásamt öðru léttmeti. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 20.00 Trúbatrixur verða með tón- leika í Draugasetrinu við Hafnargötu á Stokkseyri. 20.00 Píanóleikarinn Birna Hallgríms- dóttir flytur verk eftir Haydn, Brahms, Debussy og Rachmaninov á tónleikum í Salnum við Hamraborg í Kópavogi. 21.00 Bergþór Smári og MOOD verða á Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu. 21.00 Ljótu hálfvitarnir verða í Frum- leikhúsinu við Vesturbraut í Reykjanes- bæ. Húsið opnar kl. 20. 21.00 Ragnhildur Gísladóttir og Bryndís Jakobsdóttir verða á Kaffi Rósenberg við Klapparstíg. 21.00 Hundur í óskilum spilar á Græna hattinum, Hafnarstræti 96 á Akureyri. Húsið opnar kl. 20. 22.00 Ensími heldur tónleika á Nasa við Austurvöll. Húsið opnar kl. 21. 22.00 Coxbutter-kvöld verður haldið á Jacobsen, Austurstræti 9. Fram koma Diddi Fel & G. Maris, Stjörnuryk og Hypno. ➜ Kvöldgöngur 20.00 Hjálmar Sveinsson leiðir göngu frá Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu að Höfðatorgi og ræðir um skipulagsmál í Reykjavík. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Hafnar- húsið er opið til kl. 22 á fimmtudögum. 20.00 Már Jónsson sagnfræðingur verður með kvöldgöngu um Þingvelli. Ferðin hefst við fræðslumiðstöðina. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. ➜ Sýningar Sýningin „Innan Seilingar - Within Reach“ í Kling og bang galleríi, Hverf- isgötu 42, hefur verið framlengd til 21. júní. Aðstandendur sýningarinnar er hópur listamanna frá Noregi og Íslandi sem stóð að baki sviðsverkinu Eternum á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Opið fim.-sun. kl. 14-18. ➜ Síðustu forvöð Sýningu Hrafnhildar Arnardóttur „Hégóma- röskun“ í i8 galleríi við Klapparstíg 33, lýkur á laugardaginn. Opið þri.- fös. kl. 11-17 og lau. kl. 13-17. ➜ Leikrit 18.00 Leikhópurinn Lotta sýnir „Rauðhettu“, nýtt íslenskt leikrit með söngv um þar sem blandast saman ævintýrin Rauðhetta, Grísirnir þrír og Hans og Gréta. Sýnigin fer fram í Skalla- grímsgarði á Borgarnesi. 10.00 og 14.00 Brúðubíllinn sýnir leikritið „Leikið með liti“ eftir Helgu Steffensen og Sigrúnu Eddu Björnsdótt- ur. Tvær sýningar verða í dag, sú fyrri kl. 10 við leikskólann á Kjalanesi en sú seinni verður við gæsluvöllinn í Fróð- engi kl. 14. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. ➜ Bækur 16.00 Alla fimmtudag í júní les Vignir Árnason upp úr þekktum skáldverkum á Bókasafni Kópavogs, Hamraborg 6a. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. Ameríski söngleikurinn Grease verður frumsýndur í kvöld í Loftkastalanum og er þetta í þriðja sinn sem hann kemur á svið atvinnu- leikhúss í Reykjavík. Loft- kastalinn er nú kominn í rekstur á ný eftir töluverðar endurbætur og er óhætt að segja að leikhúsið hafi tekið stakkaskiptum í viðgerðum síðustu vikna. Um fimmtíu manns starfa við söngleikinn en leikstjóri er Selma Björnsdóttir. Rekstraraðilar Loft- kastalans hófu miðasölu á söng- leikinn fyrir um þremur vikum og hefur hún gengið frábærlega vel. Þegar er langt komið að selja alla miða á þær ellefu sýningar sem komnar eru í sölu. Það er ungur hópur leikara og söngvara sem kemur fram í Grease, sem nú er flutt í þýðingu Veturliða Guðnasonar og fylgir upphaflegri staðsetningu: verkið gerist í amerískum smábæ. Þor- valdur Bjarni stýrir hljómsveit hússins en systurnar Birna, Guð- finna og Selma annast hreyfingar og dansa. Samstarfsmenn Selmu frá liðnum sýningum hennar eru fleiri: María Ólafsdóttir sér um búninga og Brian Pilkington um leikmynd. Ólöf Jara Skagfjörð og Bjartmar Guðmundsson fara með stóru hlut- verkin, þau Sandy og Danny, en auk þeirra kemur fram stór hópur ungra og eldri krafta: Aðalbjörg Árnadóttir og Víðir Guðmunds- son, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Magnús Jónsson, Álfrún Örnólfs- dóttir og Jón Jósep Snæbjörnsson. Svo stíga á svið Jogvan Hansen og Friðrik Ómar í fyrsta sinn í leik- hlutverkum og að auki debútera nýútskrifaðir leikarar, Bjartmar og Walter Geir Grímsson. Í sýning- unni koma einnig fram kraftar sem enn eru við nám: Ævar Þór Bene- diktsson og Sigurður Þór Óskars- son, auk þeirra Þorleifs Einarsson- ar, Hjördísar Lilju Örnólfsdóttur, Aðalsteins Kjartanssonar, Ástu Bærings, Maríu Dalberg og Maríu Þórðardóttur. Grease er fyrsta verkefni nýrra rekstraraðila í Loftkastalanum, en nær tveir áratugir eru síðan farið var að leika í gamalli vélsmiðju þar á annarri hæð í bakhúsi. Þús- undir leikhúsgesta þekkja til stað- setningar hússins frá fyrri heim- sóknum. Reksturinn er alfarið í höndum einkaaðila og nýtur engra styrkja frá ríki eða borg. Loftkast- alinn er stærsta einkarekna leik- húsið á Íslandi um þessar mundir og ætlar Bjarni Haukur Þórsson, sem stendur að baki rekstri húss og sýninga, að feta þyrnum stráða braut horfinna fyrirtækja í sjálf- stæðum leikhús- og sýningarekstri. Frá mars 2009 til júní 2010 verða til 150 hlutastörf vegna starfsem- innar í Loftkastalanum. Það er því ljóst að um fimmtíu heilsársstörf verða til vegna þessarar starfsemi næstu tólf mánuðina. Ef reksturinn gengur vel má búast við að þessum störfum eigi eftir að fjölga í fram- tíðinni. pbb@frettabladid.is Það er Grease sem er stíllinn Sumarhefti Þjóðmála er komið út. Meðal efnis í nýja heftinu er grein Styrmis Gunnarssonar um vinstri stjórnir og Sigurgeir Brynjar Kristgeirs- son, forstjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, fjallar um afleið- ingar ef hugmyndum um fyrningu aflaheimilda væri hrint í framkvæmd. Birt er ræða Davíðs Oddssonar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Guð- jón Már Guðjónsson kynnir hugmynd- ir um lausn jöklabréfavandans. Ráð- herrarnir fyrrverandi Björn Bjarnason og Jón Baldvin Hannibalsson fjalla um Nató sextíu ára. Björn Bjarnason skrifar líka um ESB-króga ríkisstjórnar- innar og Sjálfstæðisflokkinn en Hlynur Jónsson fjallar um frjálshyggjuna og Sjálfstæðisflokkinn. Jón Ríkharðsson sjómaður skrifar um Ásgeir Jakobsson rithöfund en níutíu ár eru frá fæðingu hans um þessar mundir. Margt fleira er í heftinu, sem er 96 síður. Útgef- andi er Bókmenntafélagið Ugla og ritstjóri Jakob F. Ásgeirsson. NÝ TÍMARIT LEIKLIST Gengið í Grease í góðum gir. MYND/THORSON PRODUCTIONS/JORRI Hvernig hefur umhverfið áhrif á okkur? Hvernig höfum við áhrif á umhverfið? Nemendur 16-20 ára 18. júní, frá kl. 17:30 - 21:30 og 5.-21. ágúst kl. 9:00-15:00 Skráning fyrir 15.júní www.myndlistaskolinn.is Myndlistaskólinn í Reykjavík s: 551 1990 Myndlist/Arkitektúr Verð 15.000 kr Er framtíðin í höfn? Unnið að framtíðarsýn í hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Gömlu hafnarinnar í Reykjavík Sumarnámskeið fyrir ungt fólk

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.