Fréttablaðið - 11.06.2009, Síða 50
34 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Það virðist ekkert lát á fínum plötum og stefnir í að árið 2009 verði
sterkt tónlistarár þrátt fyrir heimskreppu og enn frekari samdrátt í sölu
á tónlist. Gamlar hetjur eins og Sonic Youth og Dinosaur Jr. eru með
nýjar plötur sem lofa góðu og yngri sveitir eru að gera það gott líka. Þar
á meðal má nefna bresku sveitina The Horrors sem var að senda frá sér
plötu númer tvö, Primary Colours, Íslandsvinina í Grizzly Bear sem hafa
fengið frábæra dóma fyrir sína þriðju plötu í fullri lengd, Veckatimest,
og Fever Ray, sólóverkefni Karen Dreier Anderson úr The Knife, en
samnefnd plata þykir gefa The Knife lítið eftir þó að tónlistin á henni sé
ólík og svolítið seinteknari.
Heitasta nafnið þessar vikurn-
ar er samt sennilega Brooklyn-
sveitin Dirty Projectors. Nýja
platan hennar, Bitte Orca, telst
vera hennar fimmta plata á sex
árum, en sveitin er hugarfóstur
Daves nokkurs Longstreth sem
jafnframt er eini fasti meðlimur-
inn í bandinu sem í eru núna sjö
manns. Dirty Projectors vakti
fyrst athygli fyrir þriðju plötuna
sína The Getty Address sem kom
út árið 2005. Fyrir tveimur árum
kom svo Rise Above sem hafði
að geyma ellefu lög af plötunni
Damaged með bandarísku pönksveitinni Black Flag í meðförum Dirty
Projectors, en Dave lét meðlimina spila lögin inn eftir minni. Í fyrra
gerði hljómsveitin svo samning við Domino og Bitte Orca er fyrsti ávöxt-
ur þess samstarfs. Tónlistin á henni einkennist af skrítnum lagasmíðum
og skemmtilegum söngútsetningum. Hún er tilraunakennd og framandi,
en líka aðgengileg og grípandi. Frábær plata.
Það hefur líka vakið athygli með hverjum Dirty Projectors hefur
unnið. Í fyrra gerði sveitin lagið Knotty Pine með David Byrne fyrir
safnplötuna Dark Was the Night og fyrir mánuði síðan spilaði hljómsveit-
in á styrktartónleikum fyrir húsnæðissamtök í New York ásamt Björk.
Ekki minnkaði áhuginn á sveitinni við það.
Næsta eftirlætissveit gagnrýnenda?
BJÖRK OG DIRTY PROJECTORS Björk kom
fram með Dirty Projectors á styrktartónleik-
um í New York 8. maí.
> Í SPILARANUM
The Horrors – Primary Colours
Dangermouse & Sparklehorse – Dark Night of the Soul
Langi Seli og Skuggarnir – Drullukalt
Little Boots – Hands
LANGI SELI OG SKUGGARNIRTHE HORRORS
Margir bíða með mikilli
eftirvæntingu eftir fyrstu
plötum þriggja af vinsæl-
ustu söngkonum Breta um
þessar mundir. Florence
and the Machine, La Roux
og Little Boots stíga nú
fram á sjónarsviðið.
Florence Welch er 22 ára listnemi
sem hætti í skóla til að einbeita sér
að tónlistinni. Hún var uppgötvuð
þegar hún var að syngja Motown-
slagara drukkin inni á salerni á
næturklúbbi. Á heimasíðu BBC er
henni líkt við Kate Bush og Patti
Smith auk þess sem Björk virðist
eiga smá hluta í henni.
Florence vann Brit-gagnrýnenda-
verðlaunin í febrúar síðastliðn-
um sem efnilegasti ungi tónlist-
armaðurinn í Bretlandi. Tónlist
hennar hefur verið lýst sem
blöndu af sálar- og indítónlist
og rödd hennar er sérlega góð,
eins og gestir Iceland Airwa-
ves-hátíðarinnar fengu að
kynnast á tónleikum henn-
ar í Hafnarhúsinu á síðasta
ári. Sviðsframkoma hennar
er einnig lífleg en henni til
halds og trausts á sviðinu er
hljómsveitin The Machine.
Plata hennar, Lungs, kemur
út 8. júlí.
La Roux er dúett þeirra
Elly Jackson og Bens Lang-
maid, þó svo að Elly sé í for-
grunninum. Hún er tvítug
og er frá suðurhluta Lundúna
eins og Florence. Hún er dóttir
þekktrar leikkonu í Bretlandi,
Trudie Goodwin, og hlustaði
til að byrja með mikið á Nick
Drake og Carole King. Núna
er hennar aðall hressilegt raf-
popp í anda níunda áratugarins og
sömuleiðis sérstæð hártíska sem
ætti ekki að fara fram hjá neinum.
La Roux er sögð vera blanda af
Eurythmichs og Kim Wilde með
smá slettu af Lady Gaga. Fyrsta
plata hennar nefnist einfaldlega
La Roux og kemur út 29. júní.
Little Boots heitir réttu nafni
Victoria Hesketh, er frá Black-
pool og er 25 ára. Þegar hún var
sextán ára tók hún þátt í raun-
veruleikaþættinum Pop Idol en
datt út eftir þrjár umferðir, áður
en dómararnir komu við sögu. Þá
stofnaði Victoria djasstríó og fór
í tónleikaferð um Evrópu áður
en hún stofnaði aðra sveit, Dead
Disco.
Little Boots blandar saman
klúbba- og diskótónlist og hefur
henni verið líkt við Kylie Min-
ogue og hljómsveitina Saint Eti-
enne. Hún varð í efsta sæti í kjöri
BBC yfir nýja tónlistarmenn sem
líklegir eru til vinsælda á þessu
ári. Plata hennar, Hands, kom út
síðastliðinn mánudag.
freyr@frettabladid.is
Þrjár efnilegar poppdívur
Mæðgurnar Ragnhildur Gísla-
dóttir og Bryndís Jakobsdóttir
munu leiða saman hesta sína á
fyrsta kvöldi Fuglabúrsins svo-
kallaða, á Rósenberg í kvöld. Eru
tónleikarnir þeir fyrstu í röðinni,
en ætlunin er að etja saman yngri
og reyndari tónlistarmönnum
fyrsta miðvikudaginn í hverjum
mánuði, í júlí og ágúst. Reykjavík
Grapevine og Félag tónskálda og
textasmiða standa fyrir tónleik-
unum, sem hefjast klukkan níu,
og kostar þúsund krónur inn.
„Við erum að fara að spila sett
hvor, svo syngjum við nokkur lög
saman. Hún tekur lög af plötunni
Human Body Orchestra og ég tek
glæný lög í bland við gömul. Þetta
verður bara sætt,“ segir Bryndís.
Finnst henni þær mæðgur ólík-
ar, tónlistarlega? „Ég veit það
ekki. Við erum líkar að sumu leyti,
eins og margar mæðgur eru. Við
eigum mjög gott skap saman og
finnst gaman að syngja saman.“
Þær hafa þó ekki komið mikið
fram saman. „Við höfum sungið
saman, held ég, tvisvar áður.
Einu sinni fyrir upptöku og svo
á Rósenberg. Þá sungum við mitt
efni og gekk mjög vel. Þetta pass-
ar bara ágætlega saman.“
Annars er Dísa að spila með
góðvini sínum Mads Morrits
og Bárujárni á Grand Rokki á
föstudagskvöldið. Hún segir það
gaman að vera komin heim en hún
er með „einn og hálfan“ fótinn í
Danmörku. Styttist í plötu? „Ég
er alltaf að semja nýtt og spila,
þannig að það kemur að því.“
Dísa og Ragga fyrstar í búrið
PASSA ÁGÆTLEGA SAMAN Mæðgurnar
Ragga og Dísa eru óhræddar við að
bregða á leik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FLORENCE AND
THE MACHINE
Florence hefur verið lýst sem blöndu
af Kate Bush, Patti Smith og Björk. LA
ROUX Sérstæð hártískan ætti ekki að
fara fram hjá neinum. LITTLE BOOTS
Tók þátt í Pop Idol þegar hún var
sextán ára. NORDICPHOTOS/GETTY
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL GBV Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
AÐRIR VINNINGAR ERU:
TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, BÍÓMIÐAR, GOS OG MARGT FLEIRA
FRUMSÝND 12. JÚN
Í
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum.149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
Þriðja plata Sheffield-strákanna
í Arctic Monkeys sem kemur
út 24. ágúst hefur fengið nafnið
Humbug. Upptökustjórar voru
James Ford, sem kom að gerð
síðustu plötu sveitarinnar, og
Josh Homme, forprakki Queens
of the Stone Age.
Upptökur á plötunni hófust
síðasta sumar og að sögn pilt-
anna er hluti hennar undir
áhrifum frá þungarokkssveit-
inni Black Sabbath. Skömmu
eftir útgáfu plötunnar spilar
Arctic Monkeys á tveimur tón-
listarhátíðum; á Leeds-hátíðinni
28. ágúst og á Reading daginn
eftir.
Humbug úr
smiðju ArcticJack White ætlar að hefja
upptökur á sinni fyrstu sóló-
plötu á þessu ári. Þetta eru
góð tíðindi fyrir aðdáend-
ur The White Stripes sem
þyrstir í nýtt efni frá meist-
aranum. Þeir þurfa reyndar
ekki að bíða allt of lengi, því
platan Horehound með hlið-
arverkefni hans The Dead
Weather kemur út 13. júlí.
Um hálfgerða ofurgrúppu
er að ræða því auk White
skipa hana meðlimir Queens
of the Stone Age, The Kills
og The Raconteurs, annars
hliðarverkefnis hans.
Í nýlegu viðtali skýt-
ur White föstum skotum
að upptökubúnaðinum Pro
Tools sem hefur náð að
festa rætur á undanförn-
um árum. „Mér finnst Pro
Tools algjörlega óviðeig-
andi við upptökur á tónlist.
Mér finnst að það ætti bara
að nota það í bíómyndum
eða heimildarmyndum. Vilji
menn reyna að ná fram ein-
hverri sál í tónlistinni gera
þeir mikil mistök með því
að nota þetta,“ sagði White.
„Það er of auðvelt að leið-
rétta mistök.
Við heyrum sótthreins-
aða fullkomnun í öllum lög-
unum. Það er ekki þannig
tónlist sem við ólumst upp
við að elska og vilja vera
hluti af.“
Undirbýr fyrstu sólóplötuna
JACK WHITE White er að undir-
búa sína fyrstu sólóplötu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI