Fréttablaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 52
36 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Síðustu ár hafa skapandi sumarhóp-
ar Hins hússins sett svip sinn á miðbæ
Reykjavíkur með ýmsum skemmtileg-
um uppákomum. Í ár munu átta metn-
aðarfullir hópar sjá um að skemmta
gestum og gangandi og má þar
nefna danshópinn Ramadansfje-
lagið auk þriggja tónlistarhópa.
Í sumar verða að venju hald-
in þrjú Föstudagsfiðrildi, það
fyrsta verður nú á föstudag og
koma þá hóparnir allir saman í
miðbænum og verða með ýmis
skemmtiatriði frá klukkan 12
til 14.
Ása Hauksdóttir, deildar-
stjóri menningarmála hjá
Hinu húsinu, segir að vegna
niðurskurðar séu færri sum-
arhópar á vegum Hins húss-
ins í ár en oft áður. „Því miður er það
svo að flóran í ár er minni en oft áður.
Stöðugildin hafa hingað til verið allt
frá fjörutíu og upp í sjötíu en í ár eru
þau aðeins 25. Það ætti að efla þetta
starf en það er oft svona þegar litlir
peningar eru til skiptanna.“ Ása segir
það þó gleðiefni að sumarstarfið hafi
verið valið sem fyrirmyndarverkefni
hjá Evrópuráðinu í ár en hugmynda-
fræðin að baki skapandi sumarhópum
var valin sem fyrirmyndarverkefni og
öðrum þjóðum til eftirbreytni. - sm
Skapandi sumarhópar skornir niður
Kanadíska söngkonan Kathleen Yearwood er nú
stödd hér á landi og mun halda nokkra tónleika á
meðan á heimsókninni stendur. Tónlist Yearwood
þykir dansa á mörkum ljóss og myrkurs og sjálf
segir hún tónlist sína samanstanda aðallega af
óhljóðum og áhrifum frá þjóðlagatónlist. Uppvaxt-
arárin í Kanada eru uppspretta lagatexta hennar,
sem flestir fjalla um ofbeldi, fátækt, kynjamisrétti
og siðspillingu samfélagsins. Sviðsframkoma Year-
wood þykir einstök og á einu augnabliki getur hún
farið frá því að brjóta flöskur, öskra og urra yfir í
að syngja ljúfa ballöðu. Söngkonan stundaði tónlist-
arnám í Montreal með áherslu á raftónlist. „Ég leik
aðallega á rafmagnsgítar, sem mér þykir merkilegt
hljóðfæri fyrir þær sakir að það getur framkallað
næstum hvaða hljóð sem er. Ég get fengið hann til
að hljóma eins og orgel, öskur eða hræðilegt slys,“
segir söngkonan.
Ástæðuna að baki Íslandsförinni segir hún ein-
faldlega vera þá að hana hafi langað að heimsækja
landið. „Ég hef mikið verið í Noregi og haldið þar
nokkra tónleika. Þar kviknaði áhugi minn á Íslandi.
Það var svo íslenskur maður sem hafði samband
við mig í gegnum Myspace-síðu mína og sagðist
vera formaður og jafnframt eini meðlimur aðdá-
endaklúbbs míns á Íslandi. Mér fannst þetta nokkuð
skemmtilegt og í kjölfarið ákvað ég að láta verða
af heimsókninni.“ Yearwood heldur til Keflavíkur
í dag þar sem hún heldur eina tónleika á skemmti-
staðnum Paddy‘s. Næstu tónleikar hennar verða
haldnir annað kvöld á Kaffi Hljómalind. - sm
Urrar og brýtur flöskur
SÆKIR INNBLÁSTUR Í ÆSKUÁRIN Kanadíska söngkonan
Kathleen Yearwood þykir nokkuð sérstök og sviðsframkoman
einstök. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
SKAPANDI SUMARSTARF Hins hússins þykir til
fyrirmyndar að mati Evrópuráðs.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Enn er sprottin upp umræða
um hvort fótboltakappinn
Ronaldo hjá Manchester
United sé hommi – síðast
vegna myndar sem The Sun
birti nýverið. Strákarnir í
knattspyrnufélaginu Styrmi
segja að sé þetta eitthvað
vandamál sé Ronaldo guð-
velkominn í félagið.
„Er ekki alltaf stutt í hommann í
öllum? Við getum haldið í vonina.
En sé svo þá liggur beinast við
að hann komi hingað. Til Íslands
og gangi í liðið. Allir velkomnir í
Styrmi,“ segir Jón Þór Þorleifsson
í knattspyrnufélaginu Styrmi sem
skipað er samkynhneigðum knatt-
spyrnumönnum.
Enn er sprottin upp umræða,
sumum til gremju en öðrum
gleði, um það hvort knattspyrnu-
kappinn Ronaldo hjá Manchester
United sé hommi eður ei. Ýmsar
myndir þykja gefa það til kynna
og nú síðast mynd sem The Sun
birtir af Ronaldo þar sem hann
er með bleika derhúfu, bleika rós
við eyra og í hvítum þröng-
um buxum. Jón Þór segir að
ef til þess komi að Ronaldo
komi úr skápnum þá væri
ekki úr vegi að hann kæmi
til Íslands þar sem öllum
hommum líði vel enda
búið að yfirstíga fordóma
að miklu leyti á Íslandi.
Ronaldo gæti þá verið
spilandi þjálfari. „Við
myndum reyna að nýta
okkur reynslu hans og hann fengi
að verða heiðursmeðlimur.“
Svo virðist reyndar sem heimur
fótboltamannanna á Íslandi sé síð-
asta vígið. Jón Þór bendir á að ekki
sé einn einasti yfirlýstur hommi í
úrvalsdeildinni hér. Og það gangi í
raun gegn allri tölfræði að enginn
í þeim hópi sé hommi. Og því
miður sé það svo
að
eftir að menn hafi komið út úr
skápnum forðist þeir að leggja
stund á íþróttina. „Ég held að
þetta sé eitthvað í sambandi við
hefðina. Það vantar einhvern til
að stíga fyrsta skrefið. Það þarf
Harðar Torfa-týpuna í fótboltann.
Því á Íslandi er þetta ekkert mál.
Við höfum það gott hérna. Og ef
einhver fer að ybba gogg þá yrði
gert grín að honum og litið niður á
hann,“ segir Jón Þór.
Styrmir æfir nú af kappi fyrir
mikið íþróttamót sem fram fer í
Kaupmannahöfn dagana 23. júlí til
3. ágúst. Frá Íslandi fer 23 manna
lið, fótbolta- og sundlið. „Þetta
er stærra en Smáþjóðaleikarnir.
Áætlað er að þarna verði fimm
þúsund þátttakendur. Þegar mót-
inu lýkur er einmitt Gay Pride
í Kaupmannahöfn og viku síðar
hefst Gay Pride í Reykjavík. Það
stefnir í stanslausan fögnuð.“
jakob@frettabladid.is
Strákarnir í Styrmi bjóða
Ronaldo að ganga í liðið
RONALDO Í THE SUN Þeir
sem gerst þekkja til halda
því fram að á þessari
mynd sé Ronaldo sem
klipptur út úr tískuheimi
homma.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ STYRMIR Sé svo að Ronaldo sé inni í skápnum segja strák-
arnir í Styrmi að hann sé meira en velkominn í sínar raðir – þar líði öllum vel.
Fyrsta smáskífulagið af væntanlegri plötu Gus Gus nefnist Add this
Song og fer það í loftið 22. júní. Lagið var tekið upp ásamt öðrum
lögum plötunnar 24/7 í Tankinum við Önundarfjörð og í hljóðveri
Gus Gus í Reykjavík. 24/7 er sjötta plata Gus Gus og kemur út 3.
september hjá einu virtasta raftónlistarútgáfufyrirtæki heims,
Kompakt. Platan átti upphaflega að koma út 6. júlí en ákveðið var
að fresta útgáfunni um þrjá mánuði. Næstu tónleikar Gus Gus
verða á skemmtistaðnum Vega í Kaupmannahöfn á fimmtudag.
Nýtt lag frá Gus Gus
Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns hefur sent frá sér nýtt lag
sem nefnist Kominn tími til.
Gítarleikarinn Guðmundur Jóns-
son samdi lagið en Stefán Hilmars-
son textann. Þetta er fyrra lagið
af tveimur sem koma út með
Sálinni í sumar. Hið síðara, sem
kemur út um mitt sumarið, samdi
Guðmundur við texta Friðriks
Sturlusonar bassaleikara. Sálin
hefur verið dugleg við spila-
mennsku síðan hún hélt afmælis-
tónleika 14. mars í fyrra. Sveit-
in ætlar að spila fram á haust og
leggjast þá í híði yfir veturinn.
Sálin fer á flakk
SÁLIN Sálin hans Jóns míns gefur út tvö
ný lög í sumar.
SÁLIN Á NÆSTUNNI
13. júní: Hvíta húsið, Selfossi
19. júní: Spot, Kópavogi
20. júní: Sjallinn, Akureyri
27. júní: Versalir, Þorlákshöfn
4. júlí: Akranes („Lopapeysan
2009“)
>FÓLK
Hnefaleikakappinn Mike Tyson
gekk í það heilaga í þriðja sinn
um helgina. Sú heppna heit-
ir Lakiha Spicer. Aðeins eru
tvær vikur síðan ung dóttir
Tysons af fyrra hjónabandi
lést af slysförum.
Allt sem þú þarftfylgir Fréttablaðinu á morgun