Fréttablaðið - 11.06.2009, Side 56
40 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður. 8
Óaðfinnanleg frammistaða hjá Gunnleifi. Enn eina ferðina er hann besti maður liðsins og bjargaði
liðinu frá stærra tapi. Ólafur þarf ekki að sjá eftir því að hafa ákveðið að veðja á Gunnleif í þessa stöðu.
Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður. 3
Afar slakur leikur hjá honum. Duglegri að sækja en síðast en gekk illa að koma sendingum í teiginn.
Var sofandi á köflum í vörninni eins og í fyrsta markinu þar sem dekkningin klikkar algjörlega hjá honum.
Sölvi Geir Ottesen, miðvörður. 7
Flott innkoma hjá Sölva sem steig vart feilspor. Náði ágætlega saman við Kristján Örn. Stöðvaði ófáar
sóknir og lét ekki teyma sig úr stöðu. Minnti rækilega á sig með þessari frammistöðu.
Kristján Örn Sigurðsson, miðvörður. 7
Klassaleikur enn og aftur hjá honum. Braut niður sóknir, grimmur, ákveðinn og gerði engin mistök.
Hefur spilað frábærlega í þessari undankeppni.
Bjarni Ólafur Eiríksson, vinstri bakvörður. 6
Ágætis leikur hjá Bjarna. Stóð vaktina í vörninni vel, duglegur að sækja og skilaði fleiri boltum frá
sér en Grétar. Missti af manninum í seinna markinu.
Stefán Gíslason, tengiliður. 2
Gerði sitt allra besta til þess að spila sig úr liðinu. Vantaði allan kraft og grimmd, vann fáa bolta
og skilaði litlu. Ömurlegt síðan að horfa upp á mann sem á að vera skapandi miðjumaður gera lítið
annað en gefa tveggja metra sendingar eða ákveða að senda boltann til baka.
Brynjar Björn Gunnarsson, tengiliður. 6
Kom með fínan kraft á miðjuna og bar höfuð og herðar yfir félaga sína á miðjunni lengstum.
Dró þó ansi mikið af honum í síðari hálfleik í hitanum.
Eggert Gunnþór Jónsson, tengiliður 5
Duglegur, grimmur og viljugur. Átti að veita sókninni stuðning sem gekk ekki sem skyldi.
Skilaði þó ágætis varnarvinnu.
Emil Hallfreðsson, vinstri kantmaður. 6
Eini leikmaður liðsins sem skapaði eitthvað í sókninni. Reyndi að láta menn taka á, átti sendingar og var
duglegur. Fjaraði undan honum í síðari hálfleik.
Pálmi Rafn Pálmason, hægri kantmaður. 4
Fékk eina færi Íslands í leiknum sem hann nýtti ekki nógu vel. Var duglegur en týndist á löngum köflum.
Arnór Smárason, framherji. 5
Duglegur og kraftmikill strákur sem gaf allt sem hann átti. Ömurlegt að það hafi ekki verið hægt
að nýta kraft hans og hæfileika betur en raun bar vitni.
Varamenn:
Birkir Már Sævarsson kom inn á fyrir Eggert Gunnþór á 62. mínútu. 4
Bætti engu við og sást ekki þann hálftíma sem hann var inn á vellinum.
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á fyrir Pálma Rafn á 74. mínútu. -
FRAMMISTAÐA LEIKMANNA
Þjóðarleikvangurinn í Skopje
Makedónía Ísland
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 16–7 (7–1)
Varin skot Jane 1 – Gunnleifur 5
Horn 7–0
Aukaspyrnur fengnar 12–17
Rangstöður 3–2
1-0 Aco Stojkov(10.)
2-0 Filip Ivanovski (86.)
2-0
Said Ennjimmi (6)Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun!
Hefst 29. júní. nk. og gildir jafnt fyrir allar
íþróttagreinar. Tekur 8 vikur og er námskeiðsgjald kr.
24.000.- Skráning fyrir 26. júní á namskeid@isi.is eða í
síma 514-4000. Nánari uppl. í síma 460-1467 og á
vidar@isi.is
Sjá einnig á www.isi.is
FÓTBOLTI Draumur Íslands um að
ná öðru sætinu í 9. riðli í undan-
keppni HM dó endanlega í Skopje
í gær. Makedónía vann þá sann-
gjarnan 2-0 sigur og það án þess
að sýna nokkurn glansleik.
Leikið var við gríðarlega erf-
iðar aðstæður í Skopje en hitinn
var yfir 35 stig. Þurfti því ekki að
koma á óvart að stefna íslenska
liðsins var að hægja á leiknum.
Leikurinn fór ágætlega af stað
en strax á 10. mínútu gaf íslenska
liðið ódýrt mark. Brynjar Björn
og Pálmi Rafn létu þá leika illa
á sig, sending kom í teiginn þar
sem Grétar Rafn klikkaði illilega
á því að dekka Aco Stojkov eins og
maður. Sá þakkaði Grétari pent
fyrir sig með því að skalla boltann
í netið á nærstöng. Þetta var fyrsta
skot leiksins. Grátleg byrjun.
Sóknarleikur Íslands í fyrri
hálfleik var skárri en í síðustu
leikjum en þurfti samt nánast ekk-
ert til. Bakverðirnir Bjarni Ólafur
og Grétar voru duglegir að koma
upp sem var framför. Íslenska liðið
hélt boltanum ágætlega á köflum
en þegar tókst að skapa eitthvað
var ítrekað allt of fámennt í teign-
um. Emil var hvað sprækastur við
að búa til stöður, Arnór duglegur
en það vantaði menn og slagkraft
í sóknina.
Makedóníumenn fengu tvö önnur
ágæt færi í hálfleiknum en klúðr-
uðu fyrst og svo varði Gunnleifur
glæsilega einn gegn sóknarmanni.
Þá svaf Grétar aftur á verðinum.
Besta færi Íslands í hálfleikn-
um kom á 24. mínútu. Þá átti Emil
laglega sendingu á Pálma sem var
í fínu færi í teignum. Skalli hans
var slakur og beint á markvörðinn.
Þar hefði Pálmi getað gert betur.
Eftir 28 mínútna leik tók dóm-
arinn leikhlé svo leikmenn gætu
fengið sér vatn. Segir það meira
en mörg orð um aðstæðurnar. Eftir
þessa pásu var allur vindur úr
okkar mönnum sem sköpuðu ekki
neitt. Makedóníumenn voru ekk-
ert að leika sérstaklega vel held-
ur en voru ávallt geysihættulegir
í skyndisóknum sem voru afar vel
útfærðar hjá þeim.
Fyrri hálfleikurinn var þokka-
legur hjá Íslandi en botninn datt
algjörlega úr leik liðsins í síðari
hálfleik þegar liðið hætti að gera
þá hluti sem gengu ágætlega í
fyrri hálfleik.
Á 55. mínútu var Ísland hepp-
ið að fá ekki á sig víti þegar Emil
virtist brjóta af sér í teignum.
Á þeim tíma voru Makedóníu-
menn ekkert að skapa né sækja
fast. Það var Íslands að sækja en
liðinu gekk ekkert að setja pressu
á þá og ná boltanum. Það vantaði
allan kraft og áræði í leikmenn
sem virkuðu hreinlega bensín-
lausir með öllu í hálfleiknum. Það
gerðist í raun afar lítið í hálfleikn-
um þar til síðustu fimm mínútur
leiksins. Þá varði Gunnleifur í tví-
gang úr dauðafærum. Makedóníu-
menn komust á bragðið og mínútu
síðar var skeiðað fram hjá varnar-
mönnum liðsins, sending í teiginn
þar sem Bjarni Ólafur var skrefi
á eftir Ivanovski sem var í litlum
vandræðum með að moka boltan-
um í markið.
Niðurstaðan enn eitt tapið í riðl-
inum og draumurinn að ná öðru
sætinu er endanlega úr sögunni.
Það var svipuð saga í þessum leik
og oft áður – liðið gaf ódýr mörk
og skapaði ekkert í sókninni. Það
náði einu skoti að marki í leiknum
sem var skalli Pálma í fyrri hálf-
leik. Annars var liðið ekki nálægt
því að ógna Makedóníu.
Stóri hausverkurinn hefur verið
að skapa eitthvað þegar liðið er
með boltann og Ólafi Jóhannes-
syni hefur algjörlega mistekist að
byggja upp einhvern sóknarleik
hjá íslenska liðinu. Hann er ekki
til staðar.
Ítrekað eru nákvæmlega engar
lausnir þegar Ísland fær tækifæri
til að sækja. Er þá ekki bara verið
að vísa í þennan leik þar sem liðið
spilaði án Eiðs Smára.
Framfarir hafa orðið í hugar-
fari leikmanna sem og leik liðsins
en það virðist vera afar langt í að
þetta íslenska lið verði samkeppn-
ishæft af einhverri alvöru á nýjan
leik. Efniviðurinn til að gera betur
er til staðar en smiðurinn Ólafur
þarf að pússa hamarinn og berja
fastar á naglana ef betri árangur
á að nást í framtíðinni.
henry@frettabladid.is
Bitlaust og bensínlaust
Makedónía lagði Ísland, 2-0, í steikjandi hita í Skopje í gær. Ísland er þar með
endanlega úr leik í baráttunni um annað sætið í riðlinum. Sem fyrr gaf Ísland
ódýr mörk og sóknarleikur íslenska liðsins er einfaldlega ekki til staðar.
GRIMMUR Brynjar Björn Gunnarsson átti ágætan leik á miðjunni hjá Íslendingum í
gær. Hann stendur hér í ströngu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1-0 Makedóníumenn skora hér fyrra mark sitt í leiknum. Gunnleifur liggur svekktur í grasinu og Grétar Rafn fórnar höndum eftir
að hafa brugðist við að gæta mannsins sem skoraði markið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari fór ekki leynt með vonbrigði
sín eftir að Ísland tapaði fyrir Makedóníu í undankeppni HM 2010
ytra í gær, 2-0. „Þetta voru vissulega ákveðin vonbrigði,“ sagði
Ólafur. „Ég tel að Makedónía hafi nú verið betri í fyrri leiknum
gegn okkur heima á Laugardalsvellinum,“ sagði hann en þá vann
Ísland 1-0 sigur. „En nú fengum við mark á okkur á fyrstu tíu
mínútunum annan leikinn í röð og það er eitthvað sem við
ætluðum alls ekki að leyfa að gerast. Einn af okkar stóru
möguleikum í leiknum var að halda þeim frá markinu okkar.
En eftir markið líður þeim vel og fara í sinn leik án þess að
vera að reyna eitthvað sérstakt. 1-0 er þó ekki mikil forysta
og möguleiki fyrir okkur að koma okkur inn í leikinn. En
við vorum bara afspyrnuslakir í okkar sóknarleik.“
Hann segir að meiningin hafi verið að laga sóknarleik-
inn í síðari hálfleik. „Ég held að hann hafi bara versnað
í þeim síðari. Við ætluðum að reyna að sækja framar
á völlinn og reyndum að bæta í þegar 25 mínútur
voru eftir. Þá setti ég Jóhann Berg og Birki Má inn á
en báðir eru þeir fljótir leikmenn. Við héldum að það
gæti nýst okkur eitthvað. Stefán hefði einnig mátt fara ofar upp
á völlinn en því miður gekk þetta bara ekki eftir. Þetta var mjög
erfitt hjá okkur í seinni hálfleik.“
Hann segist þó ekki sjá eftir neinu. „Ég stend og fell með
því sem ég geri, það er ekkert flóknara en það. Það er
hægt að segja ýmislegt um leikinn en ég gerði þetta
svona.“
Uppskeran eftir sjö leiki í riðlinum
eru aðeins fjögur stig og er Ólafur ekki
ánægður með það. „Enginn okkar er
ánægður með þá uppskeru og hef ég sagt það
áður að það voru ákveðin vonbrigði að fá ekkert úr Skota-
leikjunum. Þessi leikur varð svo nánast aldrei neinn leikur.“
Hann segist heldur ekki viss um að Ísland hafi verið
að spila betur en stigafjöldinn segir til um. „Maður fær
bara það sem maður á skilið. Við förum auðvitað í alla
leiki til að vinna og höfum við verið að setja ákveðnar
kröfur á okkur sjálfa. En því miður er uppskeran ekki
mikil – það verður bara að viðurkennast.“
ÓLAFUR JÓHANNESSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI: VONBRIGÐI Í MAKEDÓNÍU
Við höfum fengið það sem við áttum skilið
> Ísland úr leik
Ísland á eftir tapið fyrir Makedóníu í gær engan möguleika
lengur að ná öðru sætinu í 9. riðli undankeppni HM 2010.
Það sæti veitir mögulega rétt á þátttöku
í umspili um sæti á HM. Skotland og
Makedónía eru nú bæði með sjö stig en
Skotar eiga leik til góða. Norðmenn eru
í neðsta sæti riðilsins með þrjú stig,
einu á eftir Íslandi en eiga tvo leiki
til góða. Þeir mega þó alls ekki
tapa gegn Skotum á heima-
velli þann 12. ágúst næstkom-
andi – þá verða þeir í sömu stöðu og
Íslendingar.