Fréttablaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 11.06.2009, Blaðsíða 58
42 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR 1. RIÐILL: Svíþjóð-Malta 4-0 1-0 Kim Källstrom (22.), 2-0 Daniel Majstorovic (52.), 3-0 Zlatan Ibrahimovic (56.), 4-0 Marcus Berg (58.) STAÐAN: Danmörk 6 5 1 0 13-2 16 Ungverjaland 6 4 1 1 8-2 13 Portúgal 6 2 3 1 8-4 9 Svíþjóð 6 2 3 1 6-2 9 Albanía 8 1 3 4 4-8 6 Malta 8 0 1 7 0-21 0 4. RIÐILL: Finnland-Rússland 0-3 STAÐAN: Þýskaland 6 5 1 0 18-4 16 Rússland 6 6 0 1 12-3 15 Finnland 6 3 1 2 8-10 10 Wales 7 3 0 4 5-7 9 Aserbaijan 5 0 1 4 0-5 1 Liechtenstein 6 0 1 5 1-15 1 6. RIÐILL: Úkraína-Kasakstan 2-1 England-Andorra 6-0 1-0 Wayne Rooney (4.), 2-0 Frank Lampard (29.), 3-0 Rooney (38.), 4-0 Jermain Defoe (73.), 5-0 Jermain Defoe (75.), 6-0 Peter Crouch (80.). STAÐAN: England 7 7 0 0 26-4 21 Króatía 6 3 2 1 12-6 11 Úkraína 6 3 2 1 9-6 11 Hvíta-Rússl. 5 3 0 2 14-7 9 Kasakstan 7 1 0 6 7-22 3 Andorra 7 0 0 7 2-25 0 7. RIÐILL: Færeyjar-Serbía 0-2 STAÐAN: Serbía 7 6 0 1 15-5 15 Frakkland 5 3 1 1 7-6 10 Litháen 7 3 0 4 6-6 9 Austurríki 6 2 1 3 7-9 7 Rúmenía 6 2 1 3 7-10 7 Færeyjar 5 0 1 4 1-7 1 9. RIÐILL: Makedónía-Ísland 2-0 Holland-Noregur 2-0 1-0 Andre Ooijer (32.), 2-0 Arjen Robben (50.). STAÐAN: Holland 7 7 0 0 16-2 21 Skotland 5 2 1 2 4-6 7 Makedónía 6 2 1 3 4-7 7 Ísland 7 1 1 5 6-12 4 Noregur 5 0 3 2 2-5 3 Undankeppni EM: Belgía-Ísland 25-33 Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 10/4 (13/5), Alexander Petersson 9 (11), Róbert Gunnarsson 4 (4), Vignir Svavarsson 4 (4), Rúnar Kárason 3 (4), Ragnar Óskarsson 3 (6), Sigurbergur Sveinsson (1), Andri Stefan (1), Aron Pálmarsson (4). Varin skot: Björgvin Gústavsson 8 (25, 32%), Hreiðar Guðmundsson 3 (11, 27%). Hraðaupphlaup: 11 (Guðjón Valur 4, Alexander 4, Vignir 3). Fiskuð víti: 5 (Guðjón Valur 2, Vignir 1, Róbert 1, Ragnar 1). Utan vallar: 8 mínútur. ÚRSLIT Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * FERSKT & ÞÆGILEGT TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. Skoðaðu nánar á somi.is HANDBOLTI Ísland vann í gær átta marka sigur á Belgíu í undan- keppni EM 2010 sem fer fram í Austurríki, 33-25. Leikurinn var þó alls ekki góður af hálfu íslenska liðsins sem átti á köflum í stökustu vandræðum með slakt lið Belga. Til marks um það var munurinn í hálfleik aðeins eitt mark en staðan var þá 15-14, Íslendingum í vil. Ísland skoraði aðeins eitt mark fyrstu sjö mínútur leiksins og lenti þá undir í eina skiptið í leiknum. En það voru þó aldrei nein hættu- merki á lofti og aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi lenda. Spurningin var aðeins hve- nær íslenska liðið myndi loksins ná að sigla endanlega fram úr. Það gerðist ekki fyrr en að tíu mínútur voru liðnar af síðari hálf- leik. Alexander Petersson hefur verið lengi frá vegna meiðsla og gat af þeim sökum lítið spilað með félagsliði sínu, Flensburg í Þýska- landi, í vetur. En hann markaði endurkomu sína í íslenska lands- liðið með frábærum leik. Og það var fyrst og fremst hann sem sá til þess að Ísland næði endanlega undirtökunum í leiknum. Í stöðunni 16-16 skoraði hann fjögur mörk í 7-1 spretti Íslands. Hann var allt í öllu í sóknarleik liðsins og var sem fyrr drjúgur í vörninni. Guðjón Valur Sigurðs- son var einnig duglegur að skila sínu en saman skoruðu þeir nítj- án af 33 mörkum Íslands – Guðjón Valur skoraði tíu mörk og Alexand- er níu. Aðeins sex leikmenn íslenska liðsins komust á blað í gær sem segir mikið um þau forföll sem eru íslenska liðinu og þau áhrif sem þau hafa á sóknarleik liðsins. Meiðsli hafa haft sitt að segja en Ólafur Stefánsson er enn í sjálf- skipuðu landsliðsfríi og munar um minna. Ísland á næst tvo heimaleiki í riðlinum gegn tveimur sterkustu andstæðingunum – fyrst gegn Nor- egi á sunnudaginn og svo Mak ed- óníu á þjóðhátíðardaginn. Loka- leikur Íslands í riðlakeppninni verður svo gegn Eistum ytra. Sigur gegn Eistum fer langt með að tryggja farseðilinn til Austurríkis. Liðið þarf þó helst minnst eitt stig úr heimaleikjunum tveimur sem eru fram undan til að gulltryggja annað efstu tveggja sæta riðilsins. En það er ljóst að Guðmundur Guðmundsson og hans menn ætla ekki í neinar reikningskúnstir fyrir leikinn gegn Norðmönn- um. Þeir ætla sér sigur og ekkert annað. En til þess þarf að bæta nánast allar hliðar í leik liðsins miðað við frammistöðuna í gær. eirikur@frettabladid.is Alexander sá um Belgana Alexander Petersson markaði endurkomu sína í íslenska landsliðið með frá- bærri frammistöðu í átta marka skyldusigri á Belgíu í undankeppni EM 2010 í gær. Leikurinn var þó langt frá því besta sem landsliðið getur boðið upp á. ALEXANDER PETERSSON Átti stjörnuleik með Íslandi gegn Belgíu í gær. NORDIC PHOTOS/AFP HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds- son var ekki ánægður með frammi- stöðu leikmanna íslenska landsliðs- ins gegn Belgíu ytra í undankeppni EM 2010 í gær. Ísland vann með átta marka mun, 33-25. „Við náðum vissulega að laga stöðuna á síðustu 20 mínútum leiksins en við erum ekki ánægðir með leikinn og við þurfum að gera betur. Við þurfum að bæta okkur á eiginlega öllum sviðum og höfum nú til sunnudagsins að gera það.“ Ísland og Noregur eru efst og jöfn í riðlinum og mætast í Laug- ardalshöllinni á sunnudaginn. Noregur vann í gærkvöldi sigur á Makedóníu. „Við förum nú vel yfir leik Noregs og Makedóníu og við ætlum að sjálfsögðu að fara í leik- inn gegn Norðmönnum til að sigra í honum.“ Hann segir að það hafi verið afar dýrmætt að fá leikinn gegn Belgíu fyrir Noregsleikinn. „Það var ómetanlegt. Það er oft við- búið að það þurfi að slípa ýmis- legt til eftir að liðið hefur ekki komið saman svo mánuðum skipt- ir. Nú þurfum við að vinna í okkar málum.“ Alexander Petersson lék sinn fyrsta landsleik eftir langvarandi meiðsli og átti hann stórleik í gær. „Það var gríðarlega mikilvægt að fá hann inn. Frammistaða hans og Guðjóns Vals stóðu upp úr í leikn- um. Róbert var einnig drjúgur en það voru reynsluboltarnir sem drógu vagninn að þessu sinni.“ Guðmu ndur seg i r að fylla þurfi Laug- ardalshöllina bæði gegn Norðmönnum á sunnudag og gegn Makedóníu á þjóð- hátíðardaginn. „Við þurfum á stuðningi áhorfenda að halda, nú sem aldrei fyrr. Það þarf að fylla höllina og vona ég að fólk bregðist við kallinu. Við þurfum einfaldlega á því að halda.“ - esá Guðmundur Guðmundsson var ósáttur við frammistöðu íslenska liðsins: Nauðsynlegt að fylla höllina GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON Segir að laga þurfi margt fyrir leikinn gegn Noregi á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Þó svo að Hollending- ar hafi tryggt sér þátttökurétt í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku á næsta ári með sigri á Íslandi um liðna helgi gáfu þeir ekkert eftir gegn Norðmönnum í gær. Norðmenn þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að eiga raunhæfa möguleika á öðru sæti riðilsins en urðu að játa sig sigraða. Andre Ooijer og Arjen Robben skoruðu mörk Hollendinga. Holland er því með fullt hús stiga eftir sjö umferðir. Hið sama má segja um Englendinga sem áttu í litlum vandræðum með lið Andorra á Wembley-leikvangin- um í gær. England vann 6-0 sigur með tveimur mörkum frá Wayne Roon- ey og Jermain Defoe auk þess sem að Frank Lampard og Peter Crouch skoruðu hvor sitt markið. Tæplega 60 þúsund manns mættu á völlinn í gær og var Fabio Capello ánægður fyrir þeirra hönd. „Stuðningsmenn liðsins eru okkur mjög mikilvægir og við spil- uðum vel fyrir þá,“ sagði Capello eftir leikinn. „Það var frábært að sjá hversu margir mættu hér í kvöld og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir,“ sagði Frank Lamp- ard eftir leikinn. David Beckham var í byrjun- arliði enska liðsins í hundraðasta skiptið á ferli sínum í gær. - esá England slátraði Andorra og Holland vann 2-0 sigur á Noregi í gær: Hollendingar gefa ekkert eftir LITLI OG STÓRI Peter Crouch og Jerma- in Defoe fagna marki í gær. NORDIC PHOTOS/GETT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.