Fréttablaðið - 11.06.2009, Page 62
46 11. júní 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1 Jón Bjarnason.
2 Ingvar E. Sigurðsson.
3 Bubbi Morthens.
LÁRÉTT
2. fræ, 6. kraðak, 8. farvegur, 9. skora,
11. guð, 12. tíðindi, 14. gróðabrall, 16.
sjó, 17. sauðaþari, 18. námstímabil,
20. gelt, 21. maður.
LÓÐRÉTT
1. nauðsyn, 3. tveir eins, 4. verkfæri,
5. rjúka, 7. grátbiðja, 10. kirna, 13.
eldsneyti, 15. klúryrði, 16. ákæra, 19.
númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. frjó, 6. ös, 8. rás, 9. rák,
11. ra, 12. fregn, 14. brask, 16. sæ, 17.
söl, 18. önn, 20. gá, 21. karl.
LÓÐRÉTT: 1. þörf, 3. rr, 4. járnsög, 5.
ósa, 7. sárbæna, 10. ker, 13. gas, 15.
klám, 16. sök, 19. nr.
„Það er enginn sem á einkarétt á
stóru fólki í auglýsingum,“ segir
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone. Hann óttast
ekki lögsókn vegna sláandi lík-
inda með nýrri sjónvarpsauglýs-
ingu fyrirtækisins um risafrelsi
og myndbandi Rolling Stones
frá árinu 1994 við lagið Love Is
Strong. „Ég held að það sé engin
hætta á því. Við erum alls ekkert
smeykir.“
Í báðum tilvikum spígspora
risavaxnir leikarar og með-
limir Stones í sitthvorri borg-
inni, Reykjavík og New York,
sem báðar virðast agnarsmáar í
saman burðinum.
Hrannar viðurkennir að mikil
líkindi séu með verkunum tveim-
ur. „Það þarf engan sérstakan
rannsóknarlögreglumann til að
sjá hvaðan hugmyndin er fengin.
Við erum ekkert að þykjast hafa
fundið upp hjólið,“ segir hann.
„En þetta eru annars konar senur
og öðruvísi settar upp. Okkar er
í lit og hitt er svarthvítt. Hitt er
klárlega rétt að þetta er mjög
keimlíkt. Menn eru að nýta sér
hugmyndir og aðferðir í kvik-
myndasögunni ef svo má kalla
til að gera flotta auglýsingu. Við
erum ánægð með útkomuna og
þetta vekur mikla athygli.“
Reynir Lyngdal leikstýrði aug-
lýsingunni og viðurkennir einnig
að hún sé undir áhrifum frá Stones-
myndbandinu. Bæði verkin sæki
aftur á móti innblástur til kvik-
myndarinnar The Attack of the 50
Foot Woman frá árinu 1958. „Það
er alltaf verið að vinna með gaml-
ar hugmyndir. Er ekki alltaf verið
að setja upp sömu leikritin og segja
sömu söguna aftur?“ segir hann
og bætir við: „Það er ekkert meira
heillandi en risastórar konur, hvort
sem þær eru í nútíð eða þátíð. Það
var skemmtileg áskorun að prófa
eitthvað svona. Þetta var tækni-
lega flókið og erfitt. Fyrir mig
sem kvikmyndagerðarmann er það
nokkuð sem heillar.“
Leikstjóri Stones-myndbands-
ins var David Fincher, maðurinn
á bak við Seven og Fight Club, og
segist Reynir vera mikill aðdá-
andi hans. „Það sem er merkilegt
við þetta músíkvídeó er að það var
gert árið 1994 og þeir höfðu ekki
yfir að ráða sömu tækni og núna.
Þetta var þriggja vikna planlegg-
ing hjá okkur. Þessi auglýsing er
gott dæmi um hvað tæknin í okkar
bransa er orðin góð.“
freyr@frettabladid.is
HRANNAR PÉTURSSON: ÞYKJUMST EKKI HAFA FUNDIÐ UPP HJÓLIÐ
Vodafone óttast ekki
lögsókn frá Rolling Stones
UNDIR ÁHRIFUM
Reynir Lyngdal viðurkennir
að auglýsingin sé undir áhrif-
um frá myndbandi Davids
Fincher við lag The Roll-
ing Stones, Love is Strong.
Í báðum auglýsingum
sjást risavaxnir leikarar
stinga niður fæti í stór-
borg. Upplýsingafulltrúi
Vodafone óttast lögsókn
frá rokk-risaeðlunum.
„Ég fæ mér hafragraut með
stöppuðum bönunum, rúsínum
og sojamjólk.“
Kristjana Skúladóttir leikkona.
Framleiðendur Fangavaktarinnar
standa nú í ströngum samningavið-
ræðum við Bubba Morthens um
næsta einkennislag þáttanna en
við Næturvaktina var það Kyrrlátt
kvöld við fjörðinn og
við Dagvaktina var
það Fjöllin hafa
vakað. Bubbi er gall-
harður í samningum
en stefnt er að
því að lagið frá-
bæra Aldrei fór
ég suður verði
einkennislag
Fangavaktar-
innar.
Fréttablaðið sagði í gær frá því að
Lilja Nótt Þórarinsdóttir muni
líklega fara með hlutverk Snæfríðar
Íslandssólar í uppfærslu Benedikts
Erlingssonar á Íslandsklukkunni í
Þjóðleikhúsinu. Þá mun hún einnig
leika stórt hlutverk í Gerplu. Nú er
það svo að veigamikil kvenhlutverk
eru af skornum skammti í leikbók-
menntunum almennt
og sannarlega í
þessum verkum.
Mun jafnréttisá-
ætlun Þjóðleik-
hússins í molum
vegna þessa og
flestar leikkon-
ur hússins
sjá sína
sæng upp
reidda í
bili.
Stjórnmálakonan Oddný Sturlu-
dóttir gengur til liðs við sína gömlu
félaga í Ensími á tónleikum á Nasa
í kvöld. Oddný spilaði á hljómborð
með sveitinni á fyrstu árum hennar
en sagði síðan skilið við rokkið og
ákvað að einbeita sér
að stjórnmálaferlin-
um. Margir bíða með
mikilli eftirvæntingu
eftir endurkomu
hennar og því hvort
hún búi enn þá
yfir sömu
töfrunum í
fingrunum
og áður.
- jbg, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er svona míní-sirkus. Ég byrja klukkan
ellefu með kassagítarinn og spila gott tónleika-
prógramm. Svo tekur Valli við með ferðadiskó-
tekið sitt,“ segir tónlistarmaðurinn Björn Jör-
undur.
Björn og umboðsmaður hans, Valgeir Magn-
ússon eða Valli sport, ætla að fara um landið
og skemmta saman undir yfirskriftinni Líru-
kassinn; á föstudagskvöldinu á Sauðárkróki
og laugardagskvöld verða þeir á Siglufirði. „Í
fyrsta skipti sem ég kem þar fram einn,“ segir
Björn sem á ættir að rekja þangað.
Björn Jörundur segist ekki vera að feta sín
fyrstu spor sem trúbador þótt vissulega hafi
hann aldrei áður komið opinberlega fram sem
slíkur – en hann ætlar að flytja lög eftir sjálf-
an sig. Björn segist oft hafa komið fram einn
síns liðs í afmælis- og brúðkaupsveislum.
„Þarna heyrir fólkið lögin eins og þau komu
af beljunni. Höfundurinn að flytja lagið eins
og þegar það varð til.“ Hljómsveitin Ný dönsk,
þar sem Björn Jörundur er forsöngvari, var á
samningi við háskólann á Bifröst – sem sérleg-
ur erindreki skólans. Þetta uppátæki telst ekki
samningsbrot. „Starfi okkar fyrir Bifröst lauk
um síðustu helgi en samningurinn kvað á um
að við lékum á einum dansleik í hverjum lands-
fjórðungi. Við erum ekki skráðir þarna á neina
braut eða búum við skyldumætingu,“ segir
Björn sem jafnvel sér fyrir sér að þegar plötu-
snúðurinn Valli Sport tekur við að verða á ball-
inu. „Verð ég þá ekki að dansa við dömurnar
sem geta skrifað sig niður á danskortið mitt?“
- jbg
Björn Jörundur og Valli Sport túra saman
MÍNÍSIRKUS BJÖRNS OG VALLA Eftir að trúbadortón-
leikum Björns lýkur tekur Valli við – og mun þá Björn
líklega stíga dansinn við dömurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kontratenórinn Sverrir Guðjóns-
son gerði sér lítið fyrir og brá sér í
gervi Toms Waits í brúðkaupi sonar
síns, Ívars Arnar, og Örnu Aspar
Guðbrandsdóttur í Heiðmörk um
síðustu helgi.
Söng hann tvö lög eftir hinn gróf-
raddaða Waits, það síðara við eigin
texta. „Ívar bað mig um að syngja
lag sem er í miklu uppáhaldi hjá
honum og konunni hans sem heit-
ir All the World Is Green. Þetta er
lagið þeirra og ég gat ekki skor-
ast undan því,“ segir Sverrir. „Það
vildi svo til að ég hef hlustað tölu-
vert á Tom Waits í gegnum árin. Ég
hrífst oft af röddum sem eru svo-
lítið lifaðar og hann er náttúrulega
mjög sérstakur. Hann tengir sig við
kabarett og býr til myndir og sögur
og setur í sérstakt form.“ Sverrir
hefur sjálfur verið að vinna með
röddina sína í gegnum ólíka stíla
síðustu árin og fékk því í brúð-
kaupinu kjörið tækifæri til
að sýna á sér nýja hlið. „Ég
hef verið að þróa yfirtóna-
söng sem fer út í eins konar
barkasöng, þannig að það er
ekkert mjög langt frá Tom
Waits.“
Sverrir valdi sjálf-
ur hitt lagið og kaus
hann að flytja Innoc-
ent When You Dream
við eigin texta. „Hann
fjallar um hina einu
sönnu ást. Að við stönd-
um saman í gegnum skin
og skúrir og að við þurf-
um að halda utan um minningarn-
ar.“ Viskípelinn var í brjóstvasan-
um til að gera röddina rámari
og skálaði Sverrir við gesti
áður en hann lét vaða. „Það
var ótrúlega skemmtilegt
að gera þetta og þetta kom
mjög á óvart, það er óhætt
að segja það,“ segir hann og
bætir við að brúðhjónin hafi
verið í skýjunum. „Það
greinilega féllu tár. Þetta
hitti í hjartastað.“ - fb
Sverrir Guðjóns breyttist í Tom Waits
TOM WAITS Hinn gróf-
raddaði Waits hefur lengi
heillað Sverri.
SVERRIR GUÐJÓNSSON Sverrir brá sér í
gervi Tom Waits í brúðkaupi sonar síns
um síðustu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
íslensk hönnun
og handverk
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
Sími 565 5454 | www.fridaskart.is