Fréttablaðið - 19.06.2009, Side 4
4 19. júní 2009 FÖSTUDAGUR
FÓLK Heimasíða sem tileinkuð er
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrver-
andi forseta, verður opnuð við
hátíðlega við-
höfn í Háskóla
Íslands í dag.
Vefsíðan, www.
vigdis.is, hefur
að geyma yfir-
lit yfir líf og
störf Vigdísar
ásamt ríkulegu
myndasafni.
Upplýsingar um
Vigdísi Finn-
bogadóttur og
yfirlit um líf og störf hennar frá
bernsku til dagsins í dag verður
að finna á síðunni auk mynda sem
tengjast ferli hennar.
Heimasíðan verður einungis
aðgengileg á íslensku fyrst um
sinn en ráðgert er að hún verði
þýdd yfir á öll opinber tungumál
Sameinuðu þjóðanna enda er Vig-
dís velgjörðarsendiherra tungu-
mála hjá Sameinuðu þjóðunum.
Síðan verður hýst hjá Háskóla
Íslands og var unnin í samvinnu
við vefdeild Háskólans. - sbt
Viðhöfn í Háskóla Íslands:
Heimasíða til-
einkuð Vigdísi
VIGDÍS
FINNBOGADÓTTIR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
ALÞINGI Niðurstaða hugsanlegrar
þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild
að Evrópusambandinu verður
ekki bindandi heldur aðeins ráð-
gefandi fyrir Alþingi. Þetta kom
fram í umræðum á Alþingi í gær.
Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, spurði
Jóhönnu Sigurðardóttur forsæt-
isráðherra hvert samhengið væri
á milli frumvarps sem nú væri
í vinnslu um þjóðaratkvæði og
mögulegrar aðildarumsóknar að
Evrópusambandinu. Hann benti
á að án breytinga á stjórnarskrá
gætu þjóðaratkvæðagreiðslur ekki
verið bindandi.
Jóhanna sagði það rétt að frum-
varpið kvæði aðeins á um ráð-
gefandi atkvæðagreiðslu, og slík
atkvæðagreiðsla yrði notuð þegar
og ef að því kæmi að þjóðin tæki
afstöðu til aðildarsamnings við
ESB. Hins vegar lægi beint við að
Alþingi myndi alltaf fylgja vilja
þjóðarinnar við afgreiðslu sína á
málinu.
„Þetta eru nú þó nokkur tíðindi
sem hæstvirtur forsætisráðherra
færir okkur hér,“ sagði Bjarni.
„Nefnilega þau að þjóðin mun ekki
fá að eiga síðasta orðið um aðild að
Evrópusambandinu.“
Þetta kallaði Jóhanna útúr-
snúning og benti meðal annars á
að kosningar þyrfti til að breyta
stjórnarskránni ef ganga ætti í
Evrópusambandið.
Bjarni spurði jafnframt, með
vísan til þessa, hvort til greina
kæmi að halda tvöfalda atkvæða-
greiðslu. Það aftók Jóhanna. - sh
Möguleg þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-aðild verður aðeins ráðgefandi:
Þjóðaratkvæðið ekki bindandi
BJARNI
BENEDIKTSSON
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
33°
17°
19°
17°
14°
17°
18°
16°
16°
16°
25°
22°
26°
34°
16°
20°
31°
17°
Á MORGUN
8-13 m/s suðvestan og
vestan til, annars hægari.
SUNNUDAGUR
5-10 m/s.
13
12
9
8 7
7
10
14
1612
6
8
7
5
7
8
8
13
10
8
6
8
12
13 16
14
14
10
10 10
10
14
HELGARHORFUR
Það verða veðra-
breytingar um
helgina. Hæð sem
stjórnar björtu veðri
í dag mjög víða,
sérstaklega síðdegis,
er að gefa eftir og
lægð tekur við. Frá
henni fer að rigna
vestanlands um
eða eftir hádegi á
morgun en síðan
veðrur lægðin yfi r
landinu á sunnudag
með vætu í fl estum
landshlutum.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
dæmt karlmann í fimmtán mán-
aða fangelsi og til að greiða
stúlku 600 þúsund krónur í skaða-
bætur eftir að hann reyndi að
nauðga henni. Dómur héraðs-
dóms er óbreyttur í málinu nema
að því leyti að Hæstiréttur hækk-
aði skaðabæturnar um 200 þús-
und krónur.
Stúlkan var sextán ára og gest-
komandi á heimili mannsins.
Hann lagðist við hlið hennar þar
sem hún svaf í herbergi dóttur
hans og reyndi að girða niður
buxur hennar. Þegar hún vaknaði
greip hann fyrir vit hennar og
hótaði að meiða hana. Hann hætti
við athæfið þegar kona kom inn í
herbergið og réðst á hann. - jss
Dæmdur fyrir kynferðisbrot:
Skaðabætur
hækkaðar
BANDARÍKIN Bandarískur flug-
stjóri varð bráðkvaddur í miðju
flugi frá Brussel til Newark í
Bandaríkjunum í gær. Tveir
aðstoðarflugstjórar voru um
borð og lentu þeir vélinni.
247 farþegar voru í vélinni en
þeim var ekki sagt frá atvikinu
fyrr en vélinni hafði verið lent.
Nokkrir brugðust þó við þegar
spurt var hvort læknar væru
um borð. Einn slíkur skoðaði
flugstjórann og komst að því að
hann væri þegar látinn.
Árið 2007 lést annar flugstjóri
hjá sama flugfélagi í miðju
flugi, en slíkt er afar sjaldgæft.
- þeb
Bandarískur flugstjóri:
Bráðkvaddur í
miðju flugi
ÞINGVELLIR 150 ár eru síðan núver-
andi Þingvallakirkja var byggð
og heldur hún því upp á stór-
afmæli í ár. Í tilefni afmælisins
var ákveðið að hressa upp á útlit
kirkjunnar og hafa viðamiklar
lagfæringar átt sér stað bæði að
innan og utan.
Fornleifagröftur hefur átt sér
stað við kirkjuna og hefur meðal
annars fundist lítið lóð og tólf
karata gullhringur.
Kirkja hefur verið á Þingvöllum
síðan skömmu eftir kristnitöku en
núverandi kirkja var byggð árið
1859 og var vígð á jóladag sama
ár. - hds
Lagfæringar Þingvallakirkju:
Kirkjan tilbúin
að innan
STYRKVEITING Fyrsta úthlutun
styrkja úr AlheimsAuði, góð-
gerðar sjóði Auðar Capital, verður
í dag klukkan 11 á Café Flórunni í
Grasagarðinum í Laugardal.
Í tilkynningu segir að stefna
AlheimsAuðar sé að hvetja konur
til athafna og frumkvæðis og sér-
staklega að ljá konum í þróunar-
löndum styrk til atvinnusköpunar
og samfélagsuppbyggingar. Auður
Capital leggi á hverju ári eitt pró-
sent hagnaðar í sjóðinn og við það
bætist frjáls framlög viðskipta-
vina. - kg
Konur hvattar til athafna:
Fyrsta úthlutun
úr AlheimsAuði
Mótmæli á Austurvelli
Raddir fólksins hafa boðað til mót-
mælafundar á Austurvelli á morgun,
laugardag, klukkan 15. Yfirskrift
fundarins er „Breiðfylking gegn
ástandinu í þjóðfélaginu, Icesave-
samningnum og aðgerðarleysi í
málefnum heimilanna.“
MÓTMÆLI
DÝRALÍF „Það liggur fyrir að veiðin
verður mjög takmörkuð en það er
hæpið að það verði engin veiði,“
segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Vestmannaeyjabæjar, um lunda-
veiðar í ár. Hann segir að bæjar-
ráð muni taka ákvörðun fyrir mán-
aðamót ellegar haldi veiðimenn til
veiða 1. júlí.
Náttúrustofa hefur lagt til að
veiðar verði ekki heimilaðar í ár
en þeir sem Fréttablaðið ræddi við
telja líklegast að leyfi verði veitt
fyrir veiðar í viku til tíu daga í
sumar.
„Að vísu er það rétt sem veiði-
menn hafa haldið fram að veið-
ar á fimm til tíu þúsund lundum
hafa engin úrslitaáhrif um afdrif
stofnsins,“ segir Erpur Snær Hans-
en, sviðsstjóri vistfræðirannsókna
hjá Náttúrustofu Suðurlands. „Hins
vegar er það slök veiðisiðfræði að
að veiða úr stofni sem á verulega
erfitt uppdráttar. Endurnýjunin
þyrfti líka að vera miklu meiri svo
við gætum kallað þetta sjálfbærar
veiðar. Hins vegar vil ég taka það
fram að flestir veiðimenn hafa sýnt
aðhald í veiðum síðustu tvö ár og
eiga heiður skilinn fyrir það.“
Erpur Snær segir, rétt eins
og Elliði, að verulega skorti á að
stjórnvöld láti rannsaka sjófugla
hér við land. Hér eru stærstu sjó-
fuglabyggðir í Evrópu og sam-
kvæmt alþjóðasamningum, eins og
Bernarsamningnum, beri Ísland
mikla ábyrgð á viðhaldi stofns-
ins. „Það er komið fyrir lundan-
um líkt og nær öllum sjófuglum
hér við land sem nærast á sílum að
hann á verulega erfitt uppdráttar
og enginn kann skýringuna á því
hvað er að gerast,“ segir Erpur.
„Rannsóknir hafa hingað til verið
ómarkvissar með hliðsjón af stærð
og mikilvægi stofnanna.“
Lundinn var vanur að vera full-
orpinn í lok maímánaðar en nú,
þegar farið er að síga á seinni hluta
júní mánaðar, er innan við helming-
ur hans orpinn.
Georg Eiður Arnarson hefur veitt
lunda í þrjátíu ár og segir sumar
án lundaveiði vera óhugsandi fyrir
Eyjamenn. „Ég tel að menn ættu að
huga frekar að því að menn eru að
eyðileggja sílastofanna með snur-
voðarveiðum við suðurströndina
frekar en að banna lundaveiðar,“
segir hann. „Annarstaðar þar sem
lundinn hefur úr öðru æti að velja
er hann mun betur settur. Eins
hefur það verið að gerast síðustu
ár að lundi sem er merktur hér í
Eyjum hefur veiðst á öðrum svæð-
um þar sem hann hefur greinilega
meira æti.“ jse@frettabladid.is
Mestar líkur á afar
takmörkuðum veiðum
Ákvörðun um lundaveiði í Vestmannaeyjum verður tekin fyrir mánaðamót.
Ekki góð siðfræði að veiða úr stofni sem á undir höggi að sækja segir Náttúru-
stofa Suðurlands. Sumar án lundaveiða óhugsandi segir lundaveiðimaður.
ERPUR SNÆR HANSEN
GEORG EIÐUR MEÐ
LUNDA Í HÁFNUM
Óvíst er hvort Georg
Eiður fái að sveifla
háfnum í sumar eins
og hann gerir hér en
þessi mynd var tekinn
í fyrrasumar.
MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSON
ELLIÐI VIGNISSON
GENGIÐ 18.06.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,4555
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,13 127,73
206,44 207,44
177,1 178,1
23,787 23,927
19,95 20,068
16,114 16,208
1,3271 1,3349
195,95 197,11
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR