Fréttablaðið - 19.06.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 19.06.2009, Blaðsíða 20
 19. júní 2009 FÖSTUDAGUR2 LISTASUMAR Á AKUREYRI verður sett í Ketilhúsinu í 17. skipti í dag og er þar boðið upp á glæsilega dagskrá. Sendiherra Noregs opnar sýningu á verkum norsk/íslenska málarans Kaare Espolin Johnson. Nánari upplýsingar eru á vef Menningarmiðstöðvarinnar, http://listasumar.akureyri.is. „Ég hef alltaf verið mikil dúkku- kerling og sem barn var ég byrj- uð að sauma dúkkuföt áður en ég kunni almennilega að halda á nál,“ segir listakonan Margrét. Hún kveðst hafa tekið upp þráð- inn aftur í fyrrasumar og í þetta sinn ekki látið nægja að sauma föt heldur líka skapa brúðurnar. Í þeim kom hún svo fyrir spilverki þannig að þegar þær eru trekktar upp hljómar íslenska vöggulagið Sofðu unga ástin mín. „Mér fannst svo dásamleg tilhugsun að vera með dúkku í fanginu sem spilaði þetta angurværa lag,“ segir hún. Margrét segir Árbæjarsafn hafa boðið sér að hafa sýningu á brúðunum sem verða 20 saman og hver með sinn persónuleika. Þær eru úr bómullarefni og fyllt- ar með íslenskri ullarkembu. „Svo sauma ég hárið úr ull, fékk ullar- reifi úr Skorradalnum og þvoði með tilþrifum,“ lýsir Margrét og kveðst í þessari iðju leitast við að ná stemningu liðinna áratuga með nýtingu á íslenskum, náttúruleg- um efniviði og endurvinnslu. „Ég kaupi ekki efni í eina einustu flík heldur eru þær allar saumaðar upp úr gömlum dúkum, koddaver- um, viskastykkjum og einhverj- um fallegum efnum sem mér hafa áskotnast eða ég geymt á kistu- botni. Ég hef aldrei hent fallegri tusku.“ Sýningin í Árbæjarsafni verð- ur opnuð á morgun klukkan tvö í Listmunahorninu inn af Krambúð- inni og verður opin á afgreiðslu- tíma safnsins til 2. júlí. Eftir það verða brúðurnar, sem heita Freyja og Freyr, til sölu í Kirsuberjatrénu á Vesturgötu 4 en Margrét er ein af listakonunum þar og er þekkt fyrir spiladósir sínar, körfur og lampa úr pappír og tágum. Hún frumsýndi brúðurnar á handverks- markaði í Ráðhúsi Reykjavíkur í fyrrahaust og fékk viðurkenningu fyrir sem áhugaverða nýsköpun. Spurð að lokum af hverju þær séu allar ljóshærðar svarar hún bros- andi: „Einhverra hluta vegna pass- aði þeim ekki að vera dökkhærðar heldur með norrænt útlit og í ljós- um klæðum.“ gun@frettabladid.is Aldrei hent fallegri tusku „Litfríð og ljóshærð og létt undir brún“ er lýsing sem gæti átt við brúður Margrétar Guðnadóttur. Svo eru þær söngelskar í þokkabót. Á morgun verður opnuð sýning á þeim í Listmunahorni Árbæjarsafns. „Einhverra hluta vegna passaði þeim ekki að vera dökkhærðar heldur með norrænt útlit og í ljósum klæðum,“ segir Margrét um dúkkurnar sem hún heldur sýningu á í Árbæjarsafni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „Viðbúið er að þetta verði rosaleg keppni. Enda verða þátttakendur þarna að berjast við hver annan, hjólin og auðvitað slóð- ina,“ segir Hrafnkell Sigtryggsson, formað- ur Vélhjólaíþróttaklúbbsins, sem stendur fyrir vélhjólaíþróttakeppni á svæði félags- ins við Litlu kaffistofuna á morgun klukk- an 18.01. Þetta er áttunda árið í röð sem keppn- in fer fram, en hún er jafnframt stærsta vélhjólaíþróttakeppni ársins. Tæplega tvö hundruð manns á öllum aldri taka þátt, þar sem eins upp í þriggja manna lið keppa í svokölluðum þolakstri. Þá þeysa keppendur eftir sextán kílómetra braut frá klukkan 18.01 og þar til mínúta er gengin í eitt. „Þannig verður þetta líka Jónsmessunæturkeppni,“ útskýr- ir Hrafnkell og bætir við að keppendur, sem séu einir sínir liðs, þurfi því að keyra í sex klukkustundir. „Þetta er ekki með erfiðari íþróttum að ástæðulausu.“ Verðlauna- afhending og grill verða fyrir keppendur eftir það. Nánar á www.motocross.is. - rve Keppt í sex klukkutíma STÆRSTA VÉLHJÓLAÍÞRÓTTAKEPPNI ÁRSINS FER FRAM VIÐ LITLU KAFFISTOFUNA Á MORGUN.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.