Fréttablaðið - 19.06.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 19.06.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans Í dag er föstudagurinn 19. júní, 170. dagur ársins. 2.55 13.29 0.03 1.30 13.14 0.59 Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74% Nú er lag... Vinur minn er í Jónafélag-inu. Í því eru allir, hvort sem þeir vita það eða ekki, sem heita nöfnum sem dregin eru af nafni Jóhannesar skírara í Biblíunni. Í Jónafélaginu eru því allir Jónar, Jónasar, Jensar, Jóhannesar og Jóhannar, og svo líka þeir sem heita Hannes, Ívan, Jean og John, Sean, Giovanni og öðrum skyld- um nöfnum. Og svo auðvitað allar Jónur, Hönnur og Jóhönnur. HÚN stóð í fyrradag, hvíthærð og hvítklædd, við hliðina á nafna sínum og forvera og sagði að nú væri hafin ný sjálfstæðisbarátta. En nú snýst baráttan ekki um að slíta samhengi við aðra þjóð heldur að styrkja tengslin við löndin í kringum okkur. Við berjumst ekki fyrir því að fá að vera ein heldur fyrir því að fá að vera með. HINN 17. júní 2008 stóð dökk- hærður og dökkklæddur karl- maður í hennar sporum og sagði að íslenska þjóðin nyti trausts, að ríkissjóður væri nánast skuldlaus og lífeyrissjóðakerfið firnasterkt. Það hefur sumsé ýmislegt breyst frá 17. júní í fyrra. Í dag er hins vegar ekki sautj- ándi júní heldur sá nítjándi. Kven- réttindadagurinn, baráttudagur íslenskra kvenna, haldinn til að minnast dagsins fyrir 94 árum þegar konur á Íslandi fengu kosn- ingarétt og kjörgengi til Alþingis. Og það hefur líka margt breyst frá 19. júní í fyrra. KONA gegnir nú valdamesta embætti landsins og aldrei hafa fleiri konur setið á Alþingi en núna. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er á heimsmælikvarða og íslensk söngkona vann silfur- verðlaun á Evrópumótinu í söng og lagasmíð. JÓHANNA og Jóhanna kunna báðar að bíða. Önnur beið í tuttugu ár eftir því að hennar tími kæmi, hin í níu. Í ár áttu þær báðar sína stund. HVORUG þeirra náði takmarki sínu í krafti þess að vera lítt klædd og lostafull til augnanna og eru þó báðar hávaxnar og ljóshærðar. Þær komust áfram vegna þess að þær vissu hvað þær vildu, vissu hvað þær þurftu að gera til að ná markmiðum sínum og vissu að þær myndu standa sig þegar á reyndi. VIÐ hin í Jónafélaginu, meðal- Jónar og -Jónur þessa lands, þurfum líka að kunna að bíða af okkur hvassviðrið sem nú skellur á okkur. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga. Það er satt, þessu mun ljúka. Okkar tími mun koma. Sómi Íslands BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.