Fréttablaðið - 19.06.2009, Síða 38

Fréttablaðið - 19.06.2009, Síða 38
26 19. júní 2009 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is >LÉT MINNKA BRJÓSTIN Fyrrum kryddpían Victoria Beckham hefur nú lagst undir hnífinn í þriðja sinn og látið minnka brjóstin. Söngkon- an sagði ástæðuna fyrir minnk- uninni vera þá að stór brjóst væru á skjön við nýja ímynd hennar sem hönnuður og móðir. Gubbað af gleði, tvöföld safn- plata með helstu lögum og grín- atriðum grallaranna í Tvíhöfða, er komin í verslanir. Á fyrri plöt- unni er áður óútgefið efni en á þeirri síðari er efni sem hefur áður komið út, þar á meðal lagið My Bitch. Þarna geta því hinir fjölmörgu aðdáendur útvarps- þáttarins Tvíhöfða fundið eitt- hvað við sitt hæfi því af nógu er að taka á diskunum tveimur. Alls eru nítján lög og grínatriði á fyrri disknum og 43 á þeim síð- ari. Tvöföld plata frá Tvíhöfða No Limits heldur á laugardagskvöld 90´s-partí á skemmtistaðnum Sódómu Reykjavík. Partíin byrjuðu fyrir þremur árum á Bar 11 og er partíið á Sódómu hugsað sem lítið afmæli og jafnframt upphitun fyrir næsta stóra kvöld sem verður haldið á Nasa 15. ágúst. Ætlunin er að prufukeyra nýjar syrpur og nýfundna gullmola. Curver og DJ Kiki-Ow hafa staðið fyrir 90‘s- kvöldunum en í þetta sinn verður Curver einn við stjórnvölinn því Kiki er stödd í Bretlandi. Partíið byrjar á miðnætti og miðaverð er 1.000 krónur. No Limits þriggja ára CURVER OG KIKI Curver og Kiki-Ow halda enn eitt 90´s-kvöldið um helgina. Á Íslensku auglýsingastofunni vinnur hópur af stúlkum sem æfir nú svifflug í frístundum sínum. Hópurinn gengur undir nafninu The High Five, þar sem stúlkurnar sem skipa hann eru fimm talsins. „Samstarfskona okkur, Aníta Björnsdóttir, hefur stundað svifflug í nokkurn tíma og hún var alltaf að dásama þetta og eftir að hafa hlustað á hana tala svona vel um íþróttina ákváðum við að slá til og prófa,“ segir Berglind Laxdal svifflugsáhugamaður. Stúlkurnar hafa tekið bóklega kúrsa, meðal annars í veðurfræði, og eru nú að læra það sem kallast að „ground-höndla“. „Núna erum við að læra hvernig eigi að koma vængnum á loft, en það getur verið ansi snúið. Næst förum við í svokallað hólahopp, þá svífur maður niður hóla og fær betri tilfinningu fyrir þessu öllu. Planið er svo að vera orðinn fleygur eftir mánuð,“ segir Berglind. Námskeiðið sem stúlkurnar hafa sótt síðustu daga er á vegum Fisfélags Reykjavíkur sem býður upp á kennslu í svifflugi á hverju vori. Þeir sem stunda svifflug verða að hafa góðan skilning á veðurfræði og hreyfingu loftstrauma til þess að ná sér á flug. Svifvængurinn sjálfur minnir um margt á fallhlíf og er úr þunnum nælondúk. Berglind segir svifflugið vera skemmtilega íþrótt og segist sjálf vera orðin forfallin. „Nú gengur maður um og spáir í skýin og vindáttir og athugar veðurspána daglega. Fólk verður fljótt alveg heltekið af íþróttinni og grípur hvert tækifæri sem gefst til þess að fara að fljúga, ætli skrifstofan verði ekki hálftóm í framtíðinni þegar viðrar vel,“ segir Berglind að lokum. - sm Stúlkur sem spá í ský og vindáttir TEKST Á FLUG Stúlkurnar læra svifflug á námskeiði hjá Fisfélagi Reykjavíkur og hafa gaman af. MYND/BERGLIND LAXDAL Stórleikarinn og söngvarinn Jóhann Sigurðarson efnir til söngskemmtunar um helgina á Café Rosenberg með einvala liði leikara og tónlistarmanna. „Já, það er bara bílskúrsæfing í kreppunni,“ segir Jóhann Sigurðarson leikari, sem jafnan gengur undir nafninu Jói stóri, en hann efnir til söngskemmtunar á Café Rosenberg í kvöld og annað kvöld. Hann er með einvala lið tónlistarmanna sér til fulltingis: Pálma Sigurhjartarson, Þórð Högnason, Daníel Böðvarsson og Sigurvald Helgason en þetta lið kallar sig: Jói Sig & Sigursveinarnir. Jói segir þetta nafn einfaldlega þannig til komið að það fer vel í munni. „Það er ekki þannig að menn séu að springa úr sigurvímu.“ Og í gær var bílskúrsæfing á heimili Jóa á Arnarnesinu. Þangað mættu menn auk gestasöngvara sem öll eru úr leikhúsgeiranum en eru ekki síðri söngvarar: Hansa, Valgerður Guðnadóttir og Jóhannes Haukur. Þótt Jói sjálfur sé þekktastur sem leikari á hann að baki margra ára nám í söng þannig að það er varlega orðað að tala um að hann búi með söngvara í maganum – eins og persónan sem hann gerði svo góð skil í Brúðgumanum. „Ég lærði hjá Sigurði Dementz fjóra vetur, var tvo hjá Kristni Sigmundssyni og svo fékk ég árs leyfi frá störfum veturinn 2000 til 2001 og var þá búsettur á Ítalíu og nam söng hjá ítölskum kennara,“ segir Jói. Hann segist vera með tuttugu laga dagskrá söngleikja- og leikhúslaga, revíusöngva og slagara. „Við vorum að slútta Söngvaseið, lékum 32 sýningar á fimm vikum og tökum upp þráðinn aftur í haust.“ jakob@frettabladid.is Bílskúrsæfing hjá Jóa stóra „Ég get ekkert kvartað. Eina sem ég get kvartað undan er gengið, sem er eitthvað sem allir finna fyrir,“ segir Páll Óskar Hjálm- týsson. Hann fær á sunnudaginn afhenta platínuplötu fyrir að hafa selt Silfursafnið sitt í sextán þús- und eintökum. Reyndar rauf plat- an tíu þúsund eintaka platínumúr- inn um síðustu jól en það er fyrst núna sem hann fær sjálfa plötuna afhenta, á árlegum sólstöðutón- leikum í Grasagarðinum í Laugar- dal með Moniku hörpuleikara. Til að ná inn fyrir kostnaði hljóðaði upphafleg kostnaðar - áætlun Palla vegna Silfursafnsins upp á fjögur þúsund eintök. Vegna hruns krónunnar breyttist hún í tíu þúsund eintök en núna eru sextán þúsund komin í hús. „Ég get ekki kvartað en mikil ósköp hefði verið huggulegt að ná kostnaðinum í fjögur þúsund eintökum eins og upphaflega planið var. Ég hefði ekki slegið hendinni á móti því að ná í þann pening. En ég get prísað mig sælan. Ég gæti gert plötu núna án þess að taka eitt einasta lán og þannig vil ég helst vinna.“ Þess má geta að platan Allt fyrir ástina sem kom út 2007 hefur selst í svipuðu upplagi og Silfursafnið. Samanlagt hafa þær því selst í um þrjátíu þúsund eintökum á tveim- ur árum, sem er vitaskuld frábær árangur. Sólstöðutónleikarnir á Café Flóra í Laugardalnum hafa verið haldnir nær óslitið síðan 2001. Hefjast þeir klukkan 23 og lýkur rétt eftir miðnætti. Spiluð verða lög af Silfursafninu í nýjum útsetn- ingum auk annars góðgætis. Eftir það ganga gestirnir út í miðnætur- sólina, vonandi með bros á vör. - fb Á pening fyrir næstu plötu PÁLL ÓSKAR OG MONIKA Palli og Mon- ika spila í Grasagarðinum í Laugardal á sunnudagskvöld. Tónlistarmaðurinn Eberg, sem heitir réttu nafni Einar Töns- berg, mun halda tónleika í dag í versluninni 12 Tónum. Einar mun leika lög af nýjustu plötu sinni, Antidote, en með honum verða Nói Steinn Einarsson á trommum og Haraldur Þorsteinsson á bassa auk þess mun Rósa, söngkona í hljómsveitinni Sometime, taka lagið með Einari. „Þetta er sama fólk og spilaði með mér á útgáfu- tónleikunum, nema þá gat Rósa ekki komið því hún var upptekin við barneignir,“ segir Einar. Þess má geta að söngvarinn flutti í byrjun sumars í sveita- sæluna í Hvalfirði. „Húsið er að mestu tilbúið og það fer að líða að því að öll þægindi verði komin. Okkur líður mjög vel hérna í sveitinni og kærastan hreinlega blómstrar.“ Aðspurð- ur segist Einar vera með kart- öflugarð í bakgarðinum en hann hefur einnig fest kaup á bát með samsveitungum sínum. „Nú róum við sjálfir til fiskjar hér í firðin- um, þannig að það mætti segja að maður sé kominn í hálfgerð- an sjálfsþurftarbúskap,“ segir Einar. Tónleikarnir í 12 Tónum hefjast klukkan 17 og er aðgang- ur ókeypis. - sm Eberg blómstrar í sveitasælunni EBERG verður með tónleika í versluninni 12 Tónum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN JÓI, SIGURSVEINAR OG GÓÐIR GESTIR Jóhann Sigurðarson og félagar ætla að syngja og spila leikhúslög, revíusöngva og slagara á Rosenberg í kvöld og annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR TVÍHÖFÐI Tvöföld safnplata frá Tvíhöfða er komin í verslanir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.