Fréttablaðið - 19.06.2009, Blaðsíða 11
• Fyrsta álið
sem Julia og
Charles Martin
Hall framleiddu.
• Fyrsta álverið, Pittsburgh 1888.
• Afkastagetan var 23 kílógrömm á sólarhring.
• Charles Martin Hall.
• Rafgreiningarker
í fyrsta álverinu.
• Paul Héroult.
• Julia Hall.
www.alcoa.is
Konur, til hamingjumeð daginn
Konan á bak við Alcoa
Alcoa hóf starfsemi sem sprotafyrirtæki í
Bandaríkjunum fyrir rúmum 120 árum. Það
byggðist á uppfinningum ungs efnafræðings,
Charles Martins Hall. Færri vissu að hann átti
systur, Juliu Hall, sem var líka efnafræðingur og
saman unnu þau að því að finna upp nýja aðferð
til að framleiða ál. Hún vann ötullega að tilraun-
unum og skráði allt nákvæmlega niður. Þessi
nákvæma skráning gerði þeim auðveldara en ella
að fá einkaleyfi á þessari aðferð, en á sama tíma
og þau gerðu uppfinningar sínar fann Frakkinn
Paul Héroult upp svipaða aðferð. Þessi aðferð við
að framleiða ál með rafgreiningu er notuð enn
þann dag í dag og kennd við þessa upp-
finningamenn og kölluð Hall-Héroult-aðferðin.
Julia Hall var alla tíð nánasti viðskiptafélagi
Charles bróður síns, þótt hún ætti ekki sæti í
stjórn fyrirtækisins eða hefði þar formlega stöðu.
Þau reistu fyrsta álver heims í Pittsburgh í
Bandaríkjunum árið 1888 í samvinnu við nokkra
fjárfesta. Þetta sprotafyrirtæki er nú einn stærsti
álframleiðandi í heimi og á og rekur Alcoa
Fjarðaál í Reyðarfirði. Það er stefna fyrirtækisins
að nýta starfskrafta bæði karla og kvenna við
rekstur Fjarðaáls.
Þessi saga er rifjuð upp hér til að varpa ljósi á
konu sem ekki hefur átt stóran sess í viðskipta-
sögunni. Bróðir hennar hefur að mestu hlotið
heiðurinn af uppfinningu þeirra.
Alcoa Fjarðaál óskar íslenskum konum
til hamingju með 19. júní 2009.
Í tilefni dagsins bjóðum við konum á
Austurlandi að þiggja kaffi og veitingar
í álverinu milli kl. 16:00 og 18:00.
Verið velkomnar.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
L
C
4
66
12
0
6.
20
09