Fréttablaðið - 19.06.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er föstudagurinn 19. júní,
170. dagur ársins.
2.55 13.29 0.03
1.30 13.14 0.59
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
Nú er lag...
Vinur minn er í Jónafélag-inu. Í því eru allir, hvort sem
þeir vita það eða ekki, sem heita
nöfnum sem dregin eru af nafni
Jóhannesar skírara í Biblíunni. Í
Jónafélaginu eru því allir Jónar,
Jónasar, Jensar, Jóhannesar og
Jóhannar, og svo líka þeir sem
heita Hannes, Ívan, Jean og John,
Sean, Giovanni og öðrum skyld-
um nöfnum. Og svo auðvitað allar
Jónur, Hönnur og Jóhönnur.
HÚN stóð í fyrradag, hvíthærð
og hvítklædd, við hliðina á nafna
sínum og forvera og sagði að nú
væri hafin ný sjálfstæðisbarátta.
En nú snýst baráttan ekki um að
slíta samhengi við aðra þjóð heldur
að styrkja tengslin við löndin í
kringum okkur. Við berjumst ekki
fyrir því að fá að vera ein heldur
fyrir því að fá að vera með.
HINN 17. júní 2008 stóð dökk-
hærður og dökkklæddur karl-
maður í hennar sporum og sagði
að íslenska þjóðin nyti trausts, að
ríkissjóður væri nánast skuldlaus
og lífeyrissjóðakerfið firnasterkt.
Það hefur sumsé ýmislegt breyst
frá 17. júní í fyrra.
Í dag er hins vegar ekki sautj-
ándi júní heldur sá nítjándi. Kven-
réttindadagurinn, baráttudagur
íslenskra kvenna, haldinn til að
minnast dagsins fyrir 94 árum
þegar konur á Íslandi fengu kosn-
ingarétt og kjörgengi til Alþingis.
Og það hefur líka margt breyst frá
19. júní í fyrra.
KONA gegnir nú valdamesta
embætti landsins og aldrei hafa
fleiri konur setið á Alþingi en
núna. Íslenska kvennalandsliðið
í fótbolta er á heimsmælikvarða
og íslensk söngkona vann silfur-
verðlaun á Evrópumótinu í söng
og lagasmíð.
JÓHANNA og Jóhanna kunna
báðar að bíða. Önnur beið í tuttugu
ár eftir því að hennar tími kæmi,
hin í níu. Í ár áttu þær báðar sína
stund.
HVORUG þeirra náði takmarki
sínu í krafti þess að vera lítt klædd
og lostafull til augnanna og eru þó
báðar hávaxnar og ljóshærðar.
Þær komust áfram vegna þess að
þær vissu hvað þær vildu, vissu
hvað þær þurftu að gera til að ná
markmiðum sínum og vissu að þær
myndu standa sig þegar á reyndi.
VIÐ hin í Jónafélaginu, meðal-
Jónar og -Jónur þessa lands,
þurfum líka að kunna að bíða af
okkur hvassviðrið sem nú skellur
á okkur. Bráðum kemur betri tíð
með blóm í haga. Það er satt, þessu
mun ljúka. Okkar tími mun koma.
Sómi Íslands
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur