Fréttablaðið - 19.06.2009, Síða 22
2 föstudagur 19. júní
núna
✽ tónlist og tíska
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gíslason Ritstjóri Anna Margrét Björnsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
M íabella Ljósmyndun er nýtt fyrirtæki sem María Guðrún Rúnarsdóttir, áhugaljós-
myndari og nemandi í grafískri hönnun, hefur
komið á laggirnar. María segir hugmyndina að
Míabellu Ljósmyndun hafa orðið til fyrir nokkr-
um árum en ekki orðið að veruleika fyrr en nú.
„Ég las stjörnuspána mína í erlendu tímariti og
þar stóð að ég ef ég léti gamla viðskiptahug-
mynd rætast ætti
hún eftir að mala
gull. Ég ákvað að
láta slag standa
og um kvöldið
var Míabella Ljós-
myndun orðin að
veruleika,“ segir
María, sem hefur
þegar bókað nokk-
ur verkefni.
Ljósmynda-
áhugann segir hún alltaf hafa verið til staðar en
að hann hafi aukist eftir að hún eignaðist dótt-
ur. „Eftir að ég eignaðist dóttur mína festi ég
kaup á almennilegri myndavél af því mig lang-
aði að eiga fallegar myndir af henni. Áhuginn
varð svo meiri og meiri eftir því sem mynd-
irnar urðu fleiri,“ segir María og hlær, en
hún hyggst snúa sér alfarið að ljósmynd-
un að námi loknu. Menntunin í grafískri
hönnun nýtist Maríu vel því hún ætlar að
bjóða fólki upp á þann kost að fá ljósmynd-
irnar í fallega uppsettri bók. Aðspurð segist hún
aðallega ætla að einbeita sér að barna- og and-
litsmyndum en að hún taki einnig að sér ferm-
ingar- og brúðkaupsmyndir.
Hægt er að skoða verk Maríu á vefsíðunum
majapajap.squarespace.com og flickr.com/
majapaja. -sm
Las stjörnuspá sína í tímariti og lét drauminn rætast
DÓTTIRIN INNBLÁSTUR
Áhugasöm Míabella er hugar-
fóstur áhugaljósmyndarans
Maríu Guðrúnar.
Langaði að taka fallegar myndir
Ein af ljósmyndunum sem María
hefur tekið af dóttur sinni.
LJ
Ó
S
M
Y
N
D
/M
A
R
ÍA
G
U
Ð
R
Ú
N
R
Ú
N
A
R
S
D
Ó
TT
IR
ATLI BOLLASON TÓNLISTARMAÐUR
Á föstudagskvöld fer ég í sumargleði Forlagsins. Laugardaginn nýti ég í að lesa skáldsög-
una Fuglana eftir Tarjei Vesaas. Ætli ég hlusti ekki eitthvað á plötur með Neu! líka. Laugar-
dagskvöldið er hins vegar óráðið en á sunnudagskvöld verður Serge Gainsbourg-kvöld á
Rósenberg þar sem Sprengjuhöllin tekur „La Décadanse“ ásamt óvæntum gesti.
Sænski danstónlistarmaðurinn
Familjen, sem hefur slegið í gegn
með laginu Det snurrar i min
skalle, heldur tvenna tónleika
á Íslandi 17. og 18. júlí. Hann er
að kynna nýjustu smáskífu sína,
Huvedet i sanden, sem inniheld-
ur tólf endurhljóðblandanir af
samnefndu lagi og fékk hann að-
stoð frá listamönnum á borð við
Kasper Bjork, Adam Tensla og
The Field við vinnslu plötunn-
ar. Familjen hefur tvívegis áður
spilað hér á landi við mjög góðar
undirtektir. Fyrri tónleikar hans
verða á Broadway en þeir síðari í
Sjallanum á Akureyri. Miðasala í
forsölu er 1.500 krónur.
Dansveisla í júlí
Familjen Sænski stuðboltinn Familjen
heldur tónleika á Broadway og í Sjallan-
um í júlí.
FLOTT Kirsten Dunst vakti athygli
á verðlaunahátíð bandarískra tísku-
hönnuða á mánudaginn í stuttum
gráum silkikjól frá Rodarte.
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Ástrós og Þorfinnur flytja
til Suður-Ameríku
Dansarinn Ástrós Gunnarsdóttir og
unnusti hennar, Þorfinnur Ómars-
son, hafa söðlað um og lagt land
undir fót. Parið var að flytja til Pan-
ama þar sem þau hyggjast dvelja
þar til í janúar. Fyrst ætlar Ástrós
þó að hafa viðkomu í Texas þar
sem hún ætlar að sækja kúrsa í
Pilates-kennslu, en
Ástrós hefur kennt
Pilates lengi í
Kramhúsinu við
góðar undir-
tektir. Ástrós
kvaddi nemend-
ur sína á þriðju-
daginn með stæl
og opnaði þrjár
kampavínsflöskur í
lok tímans.
Aðsóknarmet hjá
Borgarleikhúsi
Menn bíða nú spenntir eftir að-
sóknartölum stóru leikhúsanna. Er
þá einkum beðið eftir niðurstöðum
um aðsókn að Borgarleikhúsinu á
fyrsta starfsári Magnúsar Geirs þar.
Sýningum Leikfélags Reykjavíkur
er lokið í húsinu á þessu sumri,
en þar halda áfram samstarfs-
verkefni og gestasýningar,
Sannleikur Péturs Jóhanns
og Við borgum ekki. Talið
er að nær 200.000 gestir hafi
komið í húsið á yfirstandandi ári
sem er þá aðsóknarmet í íslenskri
leikhússögu.
Silja Magg
sýnir í
Pétursborg
Silja Magg, syst-
ir Ara Magg, er
í ljósmynda-
námi í hinum
virta Parsons-
listaháskóla
í New York.
Um þessar
mundir eru
verk hennar til
sýnis í State
Hermitage Mu-
seum í Rúss-
landi sem þykir
flottur árangur
fyrir svo unga
konu.
Gamanmyndin The Hangover hélt efsta sæti sínu yfir
vinsælustu myndirnar vestanhafs um síðustu helgi.
Vinsældir myndarinnar hafa komið mjög á óvart. Talið
er að hún hafi kostað 31 milljón dali í framleiðslu en
búist er við því að hún eigi eftir að rjúfa 200 milljóna
dala múrinn á næstu vikum. Myndin fjallar um þrjá
náunga sem reyna að átta sig á hvað gerðist í steggj-
a partíi í Las Vegas kvöldið áður.
Nýjasta mynd Eddies Murphy, Imagine That, olli
aftur á móti miklum vonbrigðum í miðasölunni og
endaði í sjötta sæti með 5,7 milljóna dala tekjur.
The Hangover áfram
efst á vinsældalistum
The Hangover Gamanmyndin hélt efsta sæti sínu yfir vinsæl-
ustu myndirnar vestanhafs.