Fréttablaðið - 19.06.2009, Síða 25
19. júní föstudagur 5
útlendingum, sem var frábært, en
það var eitthvað svo skemmtilegt
við að finna Íslendingana aftur.
Ég fattaði það þegar ég byrjaði að
vinna aftur með þeim að það var
eitthvað sem ég saknaði. Sennilega
hefur það eitthvað með húmorinn
og ræturnar að gera.“
BRUSSEL – ÍSAFJÖRÐUR?
Erna segist hafa það á tilfinning-
unni að eitthvað sérlega skemmti-
legt sé að gerast í íslensku listalífi.
„Áherslan á sköpun virðist vera
orðin meiri. Í danskennslunni, til
dæmis, snýst ekki allt um tækni
lengur. Svo sýnist mér vera að
opnast á milli listgreina. Það sást
líka greinilega á Grímunni, þar
sem voru óvenjulega mörg „coll-
ective“ verkefni, þar sem listum
er blandað saman. Það er líka svo
skemmtilegt að vinna svona – regl-
urnar eru færri og eitthvert þema
eða hugmynd látin ráða ferðinni í
staðinn fyrir að vinna út fra hand-
riti. Ef hópurinn er góður kemur
eitthvað allt annað og betra út úr
vinnunni en maður hefði getað
ímyndað sér.“
Þótt Erna sé skotin í Íslendingum
er hún ekki alveg á heimleið í bráð.
Líkurnar á heimför jukust þó eftir
að íslenskur kærasti kom í spilið –
Valdimar Jóhannsson frá Ísafirði,
sem er einmitt annar tónlistar-
mannanna sem taka þátt í sýning-
unni. Það skyldi þó ekki vera að
Erna ætli að flytja beint út á land,
loksins þegar hún snýr aftur til
heimahaganna? „Þegar ég verð leið
á þessu hraða borgarlífi læt ég mig
oft dreyma um að flytja til Íslands
og búa í sveit. Svo það er aldrei að
vita hvað maður gerir.“
UNUM
Yvan Rodic, betur þekkt-ur sem Facehunter, hefur
eina undarlegustu vinnu í
heimi: að taka ljósmyndir af
„töff“ fólki. Rodic, sem hefur
margoft heimsótt Ísland og
myndað Íslendinga, hefur öðl-
ast frægð í gegnum bloggsíðu
sína en áformar nú að gefa út
bók næsta haust hjá forlaginu
Thames & Hudson. Í bókinni
verða sýnishorn af myndum
hans hvaðanæva úr heimin-
um. Hér gefur að líta sýnis-
horn af myndum Rodics.
Götutískan á prent:
Facehunter gefur út bók