Fréttablaðið - 19.06.2009, Side 32
20 19. júní 2009 FÖSTUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Þennan dag árið
1960 var fyrsta
Keflavíkurgangan
gengin en göng-
urnar voru mót-
mælaaðgerðir sem
Samtök hernáms-
andstæðinga
og síðar Sam-
tök herstöðva-
andstæðinga stóðu
fyrir í baráttu sinni gegn veru banda-
ríska setuliðsins á Íslandi á árunum
1951 til 2006.
Ýmis félagasamtök hernáms- og
herstöðvaandstæðinga stóðu fyrir
samanlagt ellefu Keflavíkurgöngum
en margar þeirra voru með mestu
fjöldaaðgerðum 20. aldar á Íslandi.
Göngurnar fóru þannig fram að
þátttakend-
ur söfnuð-
ust saman við
hlið herstöðvar-
innar á Mið-
nesheiði. Þar
var haldinn
upphafsfund-
ur og síðan
gengið undir
fánum og kröf-
uspjöldum sem leið lá til Reykjavík-
ur, en leiðin var hátt í 50 kílómetra
löng. Eftir því sem nær dró Reykjavík
fjölgaði jafnan í göngunni en stutt-
ir fundir voru haldnir á hvíldarstöð-
um á leiðinni.
Aðgerðirnar enduðu svo með
fjöldafundi í miðborginni, oftast á
Lækjartorgi.
ÞETTA GERÐIST: 19. JÚNÍ ÁRIÐ 1960
Fyrsta Keflavíkurgangan gengin
SALMAN RUSHDIE ER 62
ÁRA Í DAG
„Megnið af því sem
skiptir máli í lífi fólks
gerist að því fjar-
stöddu.“
Rushdie er indverskur
rithöfundur búsettur á
Englandi. Hann bland-
ar gjarnan töfraraun-
sæi við sagnfræðilegar
staðreyndir og gerast
skáldsögur hans flest-
ar á Indlandi og í Pak-
istan.
Í tilefni aldarafmælis Guðmundar
Jónassonar fjallabílstjóra heitins
hafa fyrrum bílstjórar hjá fyrirtæki
Guðmundar Jónassonar reist
honum minnisvarða við Hófsvað, en
Guðmundur ásamt fleirum fann bílfært
vað yfir Tungnaá árið 1950. Vaðið
nefndi hann Hófsvað og markaði það
tímamót í akstri vélknúinna ökutækja
um hálendi Íslands.
„Þessi fundur varð upphafið að
heilmikilli ferðaþjónustu á svæðinu
og opnaði leið inn í Veiðivötn og
norður Sprengisand svo dæmi séu
tekin,“ segir Þórhallur Geirsson, einn
af bílstjórunum sem starfaði með
Guðmundi þegar blómaskeið hálendis-
tjaldferða stóð sem hæst. Hann og fleiri
fyrrum samstarfsmenn Guðmundar
mynda Gullaldarlið G.J. en það lét gera
styttu úr sandsteini um aldamótin þar
sem dregin eru fram helstu sérkenni
Guðmundar og er hún varðveitt á
Jöklasafninu á Höfn í Hornafirði.
„Fljótlega eftir að við höfðum látið
gera styttuna fórum við að tala um
að reisa minnisvarða við Hófsvað og
ákváðum að miða við aldarafmæli
gamla mannsins sem hefði orðið
hundrað ára hinn 11. júní. Við létum
gera flága á stuðlaberg hjá S. Helgasyni
og fengum Stimplagerðina til að gera
áletraða plötu en minnisvarðinn, sem
fellur vel inn í umhverfið, er staðsettur
á leiðinni í Landmannalaugar.
Þórhallur segir það mikið afrek
hjá Guðmundi og félögum að hafa
fundið vaðið á sínum tíma en ekki
er um að ræða einstaka bíllengdir
heldur rúma 800 metra og hefði áin
tekið meðalmanni í klof þar sem hún
var dýpst á vaðinu. „Þeir hafa þurft
að vaða ána fram og aftur til að finna
bílfæra leið,“ segir Þórhallur en ferðin
gekk þó eins og best verður á kosið.
„Skömmu síðar fór Guðmundur að
bjóða upp á ferðir yfir vaðið auk þess
sem hann stofnaði ferðaskrifstofu
Guðmundar Jónassonar sem enn er
rekin með miklum myndarbrag. Árið
1968 var Tungnaá síðan brúuð upp
við Sigöldu sem vitanlega hefur greitt
götur ferðamanna enn frekar,“ segir
Þórhallur.
vera@frettabladid.is
GULLALDARLIÐ G. J.: REISIR MINNISVARÐA VIÐ HÓFSVAÐ
Vaðið upphafið að mikilli
ferðaþjónustu á hálendinu
VIÐ MINNISVARÐANN Hluti af Gullaldarliði G.J. Frá vinstri: Pálmi Sigurðsson, Gunnar Ólason,
Þórhallur Geirsson, Þórir Magnússon, Ómar Hafliðason, Einar Valdimarsson og Þórður
Stefánsson. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ástkær fósturfaðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
Geir Sigurðsson
pípulagningamaður, Strandaseli 1,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum 15. júní sl. Jarðarförin verður
auglýst síðar.
Ása Birna Áskelsdóttir Stefán Ómar Oddsson
Þórný Pétursdóttir Baldur Bragason
Ómar Rafn Stefánsson
Ragnhildur Birna Stefánsdóttir
og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
Guðný Kristín Árnadóttir
Funalind 1, Kópavogi,
lést að morgni 17. júní.
Einar Markússon
Markús Einarsson Hólmfríður Pálsdóttir
Árni Dan Einarsson Sigrún Dan Róbertsdóttir
Kristín Einarsdóttir Jón Karlsson
og barnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra er
auðsýndu okkur samúð og hlýju vegna
andláts og útfarar elskulegs bróður, mágs
og frænda,
Svanlaugs Magnússonar
Lilla
Ægisgrund 19, Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Ægisgrund 19 og
einnig til starfsfólks á deild 11G á Landspítalanum við
Hringbraut fyrir frábæra umönnun. Megi Guð blessa
ykkur öll.
Ragnheiður Magnúsdóttir Friðgeir Hallgrímsson
Eva Friðgeirsdóttir Bjarni Gunnarsson
Hallgrímur Friðgeirsson Þorbjörg Dögg Árnadóttir
Sesselja Friðgeirsdóttir
Magnús Pétur, Friðgeir Óli og Sigríður Dís Bjarnabörn.
Árni Freyr, Anton Hrafn og Karen Dögg Hallgrímsbörn.
Elskuleg dóttir okkar og systir,
Sandra Lind Pétursdóttir
Eyrarvegi 8, Akureyri,
lést miðviðkudaginn 10. júní. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 22. júní kl. 10.30. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á SÁÁ.
Pétur Steinar Hallgrímsson Eygló Tryggvadóttir
Sunna Lind Pétursdóttir
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Sigríður Þórlaug Elsa Björg
Sveinsdóttir
Mýrarvegi 111, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag, föstudag,
kl. 13.30.
Áslaug Kristjánsdóttir Gunnar Frímannsson
Petra Benedikta Kristjánsdóttir Gísli Bogi Jóhannesson
Haukur Kristjánsson Hildur Hafstað
Erlingur Örn Kristjánsson
Vilhjálmur Geir Kristjánsson Pollý Rósa Brynjólfsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
Anna Friðriksdóttir
Þórunnarstræti 127, Akureyri,
lést laugardaginn 13. júní á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudag-
inn 23. júní kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Kvenfélag Akureyrarkirkju.
Kristinn Traustason
Gunnlaugur Traustason
Friðrik Gylfi Traustason
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi, langafi, bróðir og tengdasonur,
Reinhardt Ágúst
Reinhardtsson
fyrrverandi leiksviðsstjóri,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
22. júní kl. 13.00.
Sigrún Linda Kvaran
Halldór Reinhardtsson Þóranna Andrésdóttir
Linda Björk Kvaran Höskuldur Björnsson
Kolbrún Kvaran Tómas Þráinsson
barnabörn og barnbarnabörn
Kristján G. Reinhardtsson
Önundur Þór Reinhardsson
Erna G. Reinhardtsdótir
Pauline J. Karlsdóttir
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna and-
láts og útfarar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Þóru Gabríellu
Valdimarsdóttur
Melgerði 13 (áður Gimli), Reyðarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E á
Landspítalanum við Hringbraut og starfsfólks
Sjúkrahússins á Egilsstöðum.
Páll Þór Elísson
Bjarney A. Pálsdóttir Vilhelm Jónsson
Georg Þór Pálsson Hjördís Ingvadóttir
Sigrún Rós Pálsdóttir Leopold Castro
barnabörn og barnabarnabörn.