Fréttablaðið - 19.06.2009, Blaðsíða 43
FÖSTUDAGUR 19. júní 2009 31
FÓTBOLTI Enska dagblaðið
The Guardian birti í vikunni
frétt þess efnis að spænska
úrvalsdeildarfélagið Real Madrid
hefði gripið til óvenjulegra aðferða
til að vekja athygli annarra á
leikmönnum sem munu vera til
sölu hjá félaginu.
Real Madrid var í fréttinni sagt
hafa faxað lista á nokkur útvalin
félög í ensku úrvalsdeildinni. Á
listanum voru nöfn níu leikmanna
sem allir voru sagðir til sölu fyrir
rétt verð.
Hér ræðir um alla sex
Hollendingana sem eru á mála hjá
Real Madrid. Þeir eru Ruud van
Nistelrooy, Arjen Robben, Wesley
Sneijder, Klaas-Jan Huntelaar,
Royston Drenthe og Rafael
van der Vaart. Hinir eru
Mahamadou Diarra frá
Malí og Javier Saviola og
Gabriel Heinze, báðir
frá Argentínu.
Félagið er sagt
þurfa að selja
þessa leikmenn
til að fjármagna
leikmannakaup
sumarsins en nú
þegar er Kaka
kominn til félagsins
o g C r i s t i a n o
Ronaldo bætist
fljótlega í hópinn.
Að auki staðfesti
Florentino Perez,
nýkjörinn forseti félagsins
og maðurinn sem keypti
Kaka og Ronaldo, að það
væri aðeins tímaspursmál
hvenær félagið myndi
semja við Valencia
u m k a u p á
framherjanum
David Villa.
Real Madrid
sendi frá sér
yfirlýsingu í gær
þar sem frétt The
Guardian var harðneitað, en í gær
tjáði Ruud van Nistelrooy sig um
málið og hvatti landa sína til að
yfirgefa Real Madrid.
Sjálfur vi l l hann þó
klára samning sinn við
félagið. „Þegar hinir
leikmennirnir fá tilboð
fá stóru félagi ættu
þeir þó að taka því,“
sagði van Nistelrooy.
„Allir eru þeir með
h á l e i t m a r k m i ð
og vilja taka þátt í
heimsmeistarakeppninni á
næsta ári með landsliðinu.
Sjálfur er ég meiddur og
veit ekki hvað Real Madrid
vill með mig gera.“ - esá
Real Madrid neitar frétt The Guardian um að félagið vilji losna við hóp leikmanna með öllum ráðum:
Níu leikmenn sagðir á útsölu hjá Real
ROBBEN OG
SNEIJDER
Báðir sagðir á
listanum góða.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Fyrirhuguð kaup
Liverpool á Glen Johnson frá
Ports mouth á átján milljónir
punda munu næsta örugglega
verða til þess að Spánverjinn
Alvaro Arbeloa verði seldur frá
félaginu en Real Madrid er talið
vera á höttunum eftir honum.
„Ég er ánægður hjá Liverpool
en ef kauptilboð berst í mig verð-
ur það örugglega skoðað vel því
ég á aðeins eitt ár eftir af samn-
ingi mínum. Það er annars alltaf
gaman þegar maður er orðaður
við stórlið á borð við Real Madrid
og ég er viss um að ég eigi eftir
að spila á Spáni í framtíðinni,“
segir Arbeloa, sem lék á sínum
tíma með unglingaliði Real Madr-
id og á einnig að baki leiki með
aðalliði og b-liði félagsins. - óþ
Alvaro Arbeloa, Liverpool:
Á leiðinni aftur
til Spánar?
ARBELOA Er orðaður við uppeldisfélag
sitt, Real Madrid. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Framherjinn Roque
Santa Cruz býst við því að vera
áfram í herbúðum Blackburn
á næstu leiktíð þar sem
forráðamenn félagsins hafa fram
til þessa ekki verið viljugir að
selja hann.
„Ég er samningsbundinn
Blackburn til ársins 2012 og fram
til þessa hefur félagið ekki verið
reiðubúið að selja mig fyrir lægri
upphæð en er í uppsagnarklausu
í samningi mínum,“ segir hinn
27 ára gamli Santa Cruz en Sky
Sports-fréttastofan full-
yrðir að klausan kveði á
um litlar tuttugu millj-
ónir punda.
Manchester
City er þó talið
ætla að reyna
aftur við
Santa Cruz
en hinir
forríku
eigend-
ur félags-
ins urðu að láta
í minni pok-
ann fyrir þrjósk-
um forráðamönn-
um Blackburn í
félagaskipta-
glugganum í
janúar.
- óþ
Santa Cruz hjá Blackburn:
Fáanlegur á 20
milljónir punda
FÓTBOLTI Forseti franska félagsins
Lyon hefur viðurkennt að framtíð
Karim Benzema sé í óvissu þrátt
fyrir að leikmaðurinn sjálfur hafi
sagt að hann vilji vera áfram í
herbúðum félagsins.
„Það eru vissulega góð tíðindi
fyrir okkur að Benzema vilji vera
áfram en félagaskipti Kaka og
Cristiano Ronaldo sýna það og
sanna að allir leikmenn hafa sinn
verðmiða þegar fyrirbæri eins og
Real Madrid kemur kallandi. Ég
tel samt vera meiri líkur en minni
að hann verði áfram hjá Lyon,“
segir Jean-Michel Aulas, forseti
Lyon, í samtali við L‘Equipe.
Manchester United,
Manchester City, Chelsea,
Barcelona og Real Madrid eru
öll talin vera á höttunum eftir
Benzema. - óþ
Framtíð Benzema hjá Lyon:
Allir leikmenn
hafa verðmiða
WWW.SJOVA.IS
VIÐ TRYGGJUM LÍF OG FJÖR
Í SJÓVÁ KVENNAHLAUPI ÍSÍ
Líftrygging að gjöf og afsláttur af Barnavernd Sjóvá
Konur á aldrinum 18-55 ára sem taka þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ
á morgun eiga kost á að sækja um ókeypis líftryggingu að upphæð
1 milljón króna í 1 ár. Einnig stendur þeim til boða 6 mánuðir fríir af
Barnavernd Sjóvá sem er trygging sniðin að hagsmunum barna og
fjölskyldna. Það eina sem þú þarft að gera er að fylla út umsókn á
þínum hlaupastað.
TÖKUM ÞÁTT – HEILSUNNAR VEGNA!