Fréttablaðið - 22.06.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
22. júní 2009 — 146. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
GUÐRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
Notfærir sér gamla
hluti í húsgagnagerð
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ÞVOTTURINN OKKAR fær sjaldnast tækifæri til
að þorna úti við á Íslandi og því er um að gera að nota
þessar fáu vikur sem hægt er og fá ferska útilykt af
fötunum okkar. Þó það sé ekki nema að strengja eina
snúru á svalirnar, bara svona rétt til að fá smjörþefinn.
„Ég fékk hugmyndina af netinu þó að bólstraða rúmgafla megi að vísu finna alls staðar,“ segir Guð-rún Davíðsdóttir, viðskiptafræð-ingur og nýbökuð tveggja barna móðir. „Ég ákvað hins vegar að nýta það sem til var og varð gam-alt skrifborð eigi
um 3.700 krónur með dýnu,“ segir Guðrún en vaggan var smíðuð úr gömlum hilluafgöngum úr geymsl-unni. „Við breyttum geymslunni í barnaherbergi og þá voru engin not fyrir gömlu hillurn lSíð
hlær. Þau hjónin hafa reyndar nú þegar tekið í gegn baðherbergið, parkettlagt herbergi og breytt geymslu í barnaherbergi Þverk gáf k
Smíðað upp úr gömluAð hugsa út fyrir kassann er ekki öllum gefið en Guðrún Davíðsdóttir, nýbökuð tveggja barna móðir,
gerði það svo sannarlega þegar hún smíðaði rúmgafl og vöggu úr gömlu skrifborði og hillum.
Guðrún og Njörður, eiginmaður hennar, smíðuðu rúmgaflinn úr gömlu skrifborði og vögguna úr hilluafgöngum. Þar unir nýfædd
dóttir þeirra sér vel í návígi við foreldrana.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Velbon þrífætur
mikið úrval
Nóatúni 4 Sí i
A
T
A
R
N
A
Létt og lipur. Kirsuberjarauð. Stillalegt afl mótors frá 300 upp í 1800 W. Sjálfinndregin snúra, hleðsluskynjari.3 lítra poki. Vinnuradíus: 8 m. Vinnuhollt handfang.Stillanleg lengd á sogröri.
Ryksuga VS 01E1800
14.900
Tilboðsverð: kr. stgr.(Verð áður: 17.900 kr.)
Sprækur öldungur
Nýja kaffibrennslan á sér 85 ára
sögu.
TÍMAMÓT 12
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Tilboð vikunnar
Upphengt salerni, seta,
innbyggður kassi og þrýstispjald
Tilboð kr.54.900,-
ERVIN SHALA
Dreymir um menningarbrú
milli Kosovo og Íslands
Fer með verðlaunastuttmynd til Pristina
FÓLK 22
Grímuhafi með
nýtt verk
Kristín Jóhann-
esdóttir snýr
sér næst að
kreppunni.
FÓLK 22
Hvetur til sátta
Steinunn Sigurðar-
dóttir telur samein-
ingu sterkasta vopnið.
FÓLK 22
Mjög vel staðsett lóð undir einbýlishús á mjög góðum stað á Seltjarnar-
nesi. Lóðin sem er ca 900 fm er staðsett innarlega í lokuðum botnlanga
með mögulegu góðu útsýni til vesturs og norðurs. Gert ráð fyrir að byggt
verði einbýli á lóðinni.
Allar upplýsingar gefur Þórarinn Friðgeirsson hjá Eignamiðlun
í síma 899-1882 eða 588-9090
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095
www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. i s Sverr i r Kr ist insson, löggiltur fasteignasal i
Eignamiðlun kynnir nýtt á sölu
22. JÚNÍ 2009
Eignin er á kyrrlátum stað í Grafarholti.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Efri sérhæð í tvíbýlishúsi í Grafarholti til sölu.H eimili fasteignasala er með á skrá efri sér-hæð í tvíbýlishýsi við Ólafsgeisla 125 í Grafar-holti. Eignin er skráð 176 fermetrar, þar af er íbúðarrými 148 fermetrar og bílskúr 28 fermetrar.Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi; hjónaherbergi með parkettlögðu gólfi og inn af því er fataherbergi. Tvö barnaherbergi með fataskápum og parkettlögðu gólfi eru á hæðinni. Baðherbergi er flísalagt, með baðkari, sturtuklefa og innréttingu. Eldhús er rúm-
gott, búið innréttingu og tækjum. Stofa er björt, með
arni og útgangi á svalir í suður með góðu útsýni um
Grafarholtið. Þvottahús er með innréttingu. Þaðan er
innangengt í bílskúrinn.Eignin þykir vandlega hönnuð, þar sem efnisval,
innréttingar og tæki eru af vönduðum toga. Þá er hún
á kyrrlátum stað.
Þess skal jafnframt getið að seljendur eru í leit að
stærra einbýli.
Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Heimili
fasteignasölu.
Eign í kyrrlátu hverfi
fasteignir
FASTEIGNIR
Vandlega hönnuð
eign í kyrrlátu hverfi
FASTEIGNABLAÐ FYLGIR Í DAG
9 13
15
1210
BEST FYRIR AUSTAN Í dag verða
suðvestan 5-10 m/s. Þurrt og yfir-
leitt bjart eystra annars skýjað með
köflum og víða skúrir. Hiti 8-15 stig,
hlýjast fyrir austan.
VEÐUR 4
Við erum
sigurvegarar
Ísland er eitt
þriggja liða í
Evrópu sem fóru
ósigruð í gegnum
undankeppni EM í
handbolta.
ÍÞRÓTTIR 18
STJÓRNMÁL Gunnar Birgisson víkur sæti sem bæjar-
stjóri og bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Kópavogs á
meðan lögreglurannsókn fer fram á málefnum Líf-
eyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar (LSK). Á
föstudag kærði Fjármálaeftirlitið (FME) stjórn
LSK til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.
Stjórnarmenn í LSK ásaka Gunnar um að hafa
blekkt FME án vitundar annarra stjórnarmanna.
„Slík rannsókn ein og sér vekur tortryggni sem
gerir mér ókleift að sinna störfum,“ segir í yfirlýs-
ingu Gunnars frá því í gærkvöldi.
Fyrir lá að Gunnar myndi hætta sem bæjarstjóri
vegna viðskipta Kópavogsbæjar við Frjálsa Miðl-
un, fyrirtæki dóttur Gunnars. Spurður um áhrif
ákvörðunar Gunnars á áframhaldandi samstarf
flokkanna innan bæjarstjórnarinnar segir Gestur
Valgarðsson, formaður Framsóknarfélags Kópa-
vogs, yfirlýsingu Gunnars alls ekki nógu sterka.
Jóhann Ísberg, formaður Sjálfstæðisfélagsins í
Kópavogi, gat ekki svarað því hver tæki við sem
bæjarstjóri. Fulltrúaráð flokkanna tveggja funda í
dag. - kg/sjá síðu 4
Stjórnarmenn í LSK saka bæjarstjórann um blekkingar:
Gunnar Birgisson fer í leyfi
LÖGREGLUMÁL Ökumaður jeppa var
handtekinn í hliði lögreglustöðv-
arinnar laust fyrir klukkan níu
í gærkvöldi eftir ofsaakstur frá
slökkvistöðinni í Skógarhlíð. Á leið-
inni lenti maðurinn í árekstri við
sjúkrabíl og fjölskyldubíl.
„Maðurinn byrjaði á því að keyra
á slökkvistöðina. Þar var reynt að
stöðva hann en hann ók á ofsahraða
í átt að bænum með lögreglubíla á
eftir sér. Á Bústaðavegi var reynt
að stoppa manninn með sjúkra-
bíl en hann hélt bara áfram með
sprungið dekk eftir að hafa lent í
árekstri við sjúkrabílinn,“ upplýsti
lögreglumaður á vettvangi við lög-
reglustöðina.
Áður en maðurinn lét til skar-
ar skríða hafði hann samband
við Hafstein Gunnar Hauksson,
blaðamann á Vísi og lét vita hvað
til stæði.
„Hann hringdi og heimtaði að fá
umfjöllun á Stöð 2. Hann sagðist
hafa fengið nóg. Hann sagðist eiga
óuppgerðar sakir við lögreglu. Hún
hefði lamið sig og gert að öryrkja.
Hann hafi síðan verið rændur og
lögreglan ekki viljað aðhafast
neitt,” segir Hafsteinn.
Að sögn Hafsteins hringdi mað-
urinn aftur og sagðist þá vera kom-
inn á tveggja tonna jeppa. „Hann
sagðist vera að sikksakka í umferð-
inni og talaði um að hann ætlaði að
keyra inn í lögreglustöðina á Hverf-
isgötu. Hann sagðist ætla að drepa
lögreglumenn og valda þeim skaða.
Ég reyndi að telja hann af því og
ef hann vantaði athygli gæti hann
talað við okkur í fyrramálið.“
Jeppamaðurinn stórskemmdi
bíl lögreglumanna sem reyndu að
stöðva hann í Skógarhlíð. „Maður-
inn nær að keyra á allar hurðir hjá
okkur hér í Skógarhlíð þannig að
töluverður fjöldi af okkar bílum
er lokaður inni í húsi. Það er ekki
hægt að opna þær. Það er bara
mesta mildi að ekki hafi farið
verr,“ segir Jón Viðar Matthías-
son slökkviliðsstjóri. Hann segir
að engin hætta hafi skapast af
því að bílarnir væru innilokaðir
því aðrar stöðvar hafi samstundis
verið virkjaðar.
Jeppinn sem maðurinn ók er
stórskemmdur. Sjónarvottur sem
Fréttablaðið ræddi við segir jeppa-
manninn einfaldlega ekki hafa
hitt á hliðið á lögreglustöðinni.
Þar í hliðinu kom síðan lögreglu-
bíll aðvífandi og lokaði jeppann af.
Maðurinn var síðan handtekinn.
Kona sem skráð er eigandi jepp-
ans hafði ekki heyrt um það sem
gerst hafði þegar Fréttablaðið
ræddi við hana stundu eftir atvik-
ið. Hún sagði tíðindin vera áfall en
vildi ekki upplýsa um tengsl sín við
manninn. „Hann er bara pirraður
og vill ábyggilega ræða við ykkur
um þetta sjálfur,“ sagði hún.
- gar, þeb, kh
Vildi drepa lögreglumenn
Hálffertugur maður ók á bíl með fjölskyldu á Snorrabraut og klessti síðan á hlið lögreglustöðvarinnar.
Áður ók hann á slökkvistöðina í Skógarhlíð og stórskemmdi lögreglubíl. Sagðist vilja drepa lögreglumenn.
Bombaði á okkur
Tvær konur og unglingsstúlka sem
voru með tvo hunda í fólksbíl
urðu fyrir jeppanum þegar hann
ók á ofsahraða norður Snorra-
braut. „Hann ætlaði að forða sér
frá árekstri á umferðarljós og
bombaði bara beint inn í mig.
Hann var bara ekki betri ökumað-
ur en það,“ segir Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, sem ók litla fólks-
bílnum. Jeppinn fór líka utan í
annan bíl og skemmdi hann.
Unglingstúlka sem var í bíln-
um var grátandi þegar blaðamað-
ur Fréttablaðsins kom á vettvang
og hundarnir voru skjálfandi. Hin
konan í bílnum, Ólöf Halldórs-
dóttir, segir ökumann jeppans
hafa ekið inn hlið bíls þeirra eins
og hann hafi ætlað sér það. „Það
voru fleiri en ég í lífshættu, það er
engin spurning,“ segir Ólöf. - gar
ÓK Á LÖGREGLUSTÖÐINA För ökuníðingsins endaði við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Hann hafði eyðilagt nokkur hlið í fjarskiptamiðstöð lögreglunnar við Skógarhlíð og
keyrt utan í bíla á Snorrabrautinni. Á efri innfelldu myndinni má sjá lögreglubíl sem maðurinn stórskemmdi og á neðri myndinni ræðir ökumaður fólksbíls við lögregluna um
skemmdir sem urðu á bíl hans í eltingaleiknum. Fjöldi lögreglubíla veitti manninum eftirför. MYNDIR/ANTON&ARNÞÓR