Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 15
Bogi Pétursson lögg. fasteignasali Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali Mjög vel staðsett lóð undir einbýlishús á mjög góðum stað á Seltjarnar- nesi. Lóðin sem er ca 900 fm er staðsett innarlega í lokuðum botnlanga með mögulegu góðu útsýni til vesturs og norðurs. Gert ráð fyrir að byggt verði einbýli á lóðinni. Allar upplýsingar gefur Þórarinn Friðgeirsson hjá Eignamiðlun í síma 899-1882 eða 588-9090 Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095 www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. is Sverr ir Kr ist insson, löggi ltur fasteignasal i Eignamiðlun kynnir nýtt á sölu 22. JÚNÍ 2009 Eignin er á kyrrlátum stað í Grafarholti. MYND/ÚR EINKASAFNI Efri sérhæð í tvíbýlishúsi í Grafarholti til sölu. H eimili fasteignasala er með á skrá efri sér-hæð í tvíbýlishýsi við Ólafsgeisla 125 í Grafar-holti. Eignin er skráð 176 fermetrar, þar af er íbúðarrými 148 fermetrar og bílskúr 28 fermetrar. Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi; hjónaherbergi með parkettlögðu gólfi og inn af því er fataherbergi. Tvö barnaherbergi með fataskápum og parkettlögðu gólfi eru á hæðinni. Baðherbergi er flísalagt, með baðkari, sturtuklefa og innréttingu. Eldhús er rúm- gott, búið innréttingu og tækjum. Stofa er björt, með arni og útgangi á svalir í suður með góðu útsýni um Grafarholtið. Þvottahús er með innréttingu. Þaðan er innangengt í bílskúrinn. Eignin þykir vandlega hönnuð, þar sem efnisval, innréttingar og tæki eru af vönduðum toga. Þá er hún á kyrrlátum stað. Þess skal jafnframt getið að seljendur eru í leit að stærra einbýli. Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Heimili fasteignasölu. Eign í kyrrlátu hverfi fasteignir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.