Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 26
18 22. júní 2009 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is FRAM 3-0 KR 1-0 Hjálmar Þórarinsson (51.) 2-0 Almarr Ormarsson (52.) 3-0 Hjálmar Þórarinsson (85.) Laugardalsvöllur, áhorf.: 1.034 Magnús Þórisson (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–10 (5–5) Varin skot Hannes 5 – Stefán Logi 1 Horn 5–7 Aukaspyrnur fengnar 8–6 Rangstöður 5–0 Fram 4–4–2 Hannes Halldórsson 7, Daði Guðm. 6, Auðun Helgason 7, Kristján Hauksson 7, Sam Tillen 7, Paul McShane 7, Halldór Jónsson 6, Ingvar Ólason 6 (86. Jón G. Fjólus. -), Heiðar Geir Júlíusson 7, Almarr Ormarsson 8 (90. Grímur B. Grímss. -), *Hjálmar Þórarinsson 8 (89. Ívar Björnsson -) KR 4–3–3 Stefán Logi Magnússon 5, Skúli Jón Friðgeirsson 5, Grétar Sigurðarson 4, Mark Rutgers 2, Jordao Diogo 3, Gunnar Örn Jónsson 4, (58. Óskar Örn Hauksson 5), Jónas Guðni Sævarsson 4, Baldur Sigurðsson 2, Bjarni Guðjónsson 5, Guðmundur Benediktsson 5 (72. Atli Jóhannsson -), Prince Rajcomar 2 (61. Guðmundur Pétursson 6). Bílahreinsivörur Þú sparar 4.590.- TILBOÐ 2.990.-PAKKI 2Verð áður 7.580.- FÓTBOLTI Fram vann í gær 3-0 sigur á KR í Pepsi-deild karla. Hjálmar Þórarinsson skoraði tvö marka Fram og Almarr Ormarsson eitt. Þetta var fyrsti sigur Fram í deild- inni síðan í fyrstu umferðinni en til þessa hafði KR aðeins tapað fyrir Íslandsmeisturum FH í naumri viðureign í Frostaskjólinu. Í gær voru þeir röndóttu með buxurnar á hælunum. Miðjan, hinn öflugi stuðnings- mannahópur KR, lét ekki heyrast múkk í sér allan leikinn, en það mun vera vegna þess að hópurinn er að mótmæla því að ekki nægi- lega margir uppaldir KR-ingar séu í liðinu. En hvort þeir sem léku í gær voru uppaldir í vesturbæ Reykjavíkur eða ekki skipti litlu máli - flestir voru þeir jafn léleg- ir. „Þetta var virkilega dapurt af okkar hálfu,“ sagði Logi Ólafs- son, þjálfari KR, eftir leik. „Við vorum með nánast alla frammi í upphafi seinni hálfleiks og skiljum við vörnina þannig að þeir komast í hraðaupphlaup og tókst að gera það sem þeir ætluðu sér allan tím- ann. Við gengum í gildruna í stað þess að vera yfirvegaðir og gera betur.“ Leikurinn var rólegur í fyrri hálfleik. KR hélt boltanum ágæt- lega en gekk illa að skapa hættu. Framarar fengu tvö góð færi og óx ásmegin eftir því sem á leið. Heimamenn skoruðu svo tvö mörk með mínútu millibili í upphafi síð- ari hálfleiks. „Við ætluðum að láta þá koma og sækja á okkur en þá gengum við í gildruna. Það var lítið að gera í því eftir að þeir skoruðu tvö mörk.“ Fram hefði getað raðað mörkun- um inn eftir þetta en þriðja mark- ið kom ekki fyrr en fimm mínútur voru til leiksloka. Sigurinn var því síst of stór. „Við lögðum upp með að byrja rólega því við ætluðum ekki að fá á okkur mark,“ sagði Jón Sveins- son, aðstoðarþjálfari Fram. Þor- valdur Örlygsson þjálfari er stadd- ur erlendis. „Fyrri hálfleikurinn var á þeim nótum. En við viss- um að möguleikarnir í sóknar- leik okkar voru til staðar og þegar KR-ingar opnuðu sig og færðu sig aðeins framar á völlinn fengum við okkar sénsa.“ Fram hefur nú unnið tvo leiki í röð þar sem liðið vann Njarðvík í bikarkeppninni fyrr í vikunni. „Það var í raun vendipunktur fyrir okkur að vinna í bikarnum því það var mjög góður leikur og ekki ósvipaður þessum. Við hefð- um reyndar mátt nýta færin okkar betur en það hefur verið okkar hausverkur í sumar. En við höfum gefið mjög fá færi á okkur.“ Framarar áttu vissulega skín- andi góðan leik í gær og bar lítið á þeim leiðinlega fótbolta sem liðið hefur svo oft boðið upp á. Liðið var sérstaklega sprækt í síðari hálf- leik þegar það óð í hverju færinu á fætur öðru enda átti liðið að skora mun fleiri mörk. eirikur@frettabladid.is Þaggað niður í KR-ingum Það heyrðist lítið í KR-ingum, innan vallar sem utan, í leik liðsins gegn Fram á Laugardalsvellinum í gær. Fram vann 3-0 sigur sem var þó síst of stór, en þeir röndóttu virtust engin svör eiga við sprækum sóknarmönnum Framaranna. SKREFINU FRAMARAR Paul McShane og félagar hans í Fram unnu sanngjarnan sigur á KR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Ísland gerði í gær jafntefli, 25-25, gegn Eistlandi í borginni Pölva að viðstöddum 800 áhorfendum. Þetta var lokaleikur liðanna í undankeppni EM 2010 og var Ísland búið að tryggja sér far- seðilinn til Austurríkis þar sem úrslitakeppnin fer fram á næsta ári. En Ísland og Noregur voru enn að bítast um efsta sæti riðilsins. Þar sem að Norðmenn töpuðu fyrir Makedóníu á útivelli, 30-29, dugði stigið til að tryggja Íslandi efsta sæti riðilsins. Þar með voru Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari og hans menn ekki að svekkja sig á jafnteflinu í gær. „Niðurstaðan eftir þetta er sú að við unnum riðilinn og það sem meira er að við fórum taplausir í gegnum okkar leiki í honum. Við vitum að við spiluðum ekki vel í dag en það er búið að mæða töluvert á liðinu að undanförnu og við erum mjög sáttir við heildarniður- stöðuna. Sú staðreynd að í dag vantaði níu leikmenn sem fóru á Ólympíuleikana fyrir tæpu ári síðan segir sína sögu.“ Síðan Ólympíuleikunum lauk hafa meiðsli hrjáð leikmenn íslenska landsliðsins og því kærkomið sumarfrí fram- undan fyrir þá. „Við fórum aldrei með sama liðið inn í leikina en samt sem áður fannst mér liðsheildin eða stemningin í hópnum aldrei bregðast. Ég er mjög stoltur af því að hafa unnið riðilinn og hafa farið taplaust í gegnum hann.“ Afar óvenjuleg staða kom upp í leiknum í gær. Sólin skein inn í íþróttahúsið í Pölva með þeim hætti að það blindaði Hreiðar Guðmundsson markvörð sem og flesta varnarmenn íslenska liðsins. „Ég hef aldrei upplifað annað eins á ferlinum,“ sagði Guð- mundur sem segir að hann hafi farið fram á að leikurinn yrði stöðvaður. Svo var ekki gert. „En Hannes Heimisson sendiherra var á leiknum með konu sinni og með honum var drengur sem átti derhúfu. Hann hljóp því út í bílinn sinn, náði í derhúfuna og kom henni til okkar. Þetta var Manchester United-derhúfa sem kom Hreiðari að mjög góðum notum enda var hann algjörlega blindaður. En sendiherrann var afar fljótur að hugsa og redd- aði leiknum fyrir okkur,“ sagði Guðmundur og hló. „Þetta var allt saman með ólíkindum. Alveg fáránlegt.“ ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ: VARÐ EFST Í RIÐLI SÍNUM Í UNDANKEPPNI EM ÞRÁTT FYRIR JAFNTEFLI GEGN EISTLANDI Íslenski sendiherrann til bjargar með derhúfu Undankeppni EM 2010 Eistland - Ísland 25-25 Mörk Íslands (skot): Ragnar Óskarsson 7/4 (8/4), Vignir Svavarsson 4 (4), Sigurbergur Sveinsson 4 (8), Heiðmar Felixson 3 (6), Alex- ander Petersson 3 (10), Þórir Ólafsson 3/1 (4/1), Fannar Friðgeirsson 1 (2), Ingimundur Ingimund- arson (1), Stefán Baldvin Stefánsson (1). Varin skot: Hreiðar Levý Guðmundsson 9/1 (19/3) 47%, Björgvin Páll Gústavsson 8 (23/2) 35%. Hraðaupphlaup: 4 (Vignir 3, Þórir). Fiskuð víti: 5 (Þórir, Fannar, Vignir, Heiðmar, Sigurbergur). Utan vallar: 10 mín. Makedónía - Noregur 30-29 Pepsi-deild karla Keflavík - Fjölnir 3-1 1-0 Magnús Matthíasson (12.), 2-0 Magnús Þor- steinsson (20.), 3-0 Haukur Ingi Guðnason (81.). Fylkir - Grindavík 2-3 1-0 Ingimundur Óskarsson (7.), 1-1 Jóhann Helgason (48.), 1-2 Scott Ramsay (52.), 1-3 Gilles Ondo (80.), 2-3 Albert Brynjar Ingason (90.). FH - Þróttur 4-0 1-0 Matthías Vilhj. (43.), 2-0 Atli Guðnason (56.), 3-0 Matthías V. (86.), 4-0 Atli V. Björnsson (90.). STAÐA EFSTU LIÐA FH 8 7 0 1 22-6 21 Stjarnan 7 5 1 1 20-9 16 KR 8 4 2 2 14-9 14 ÚRSLIT > Allt á Vísi Fréttablaðið bendir lesendum á að hægt er að finna umfjöllun um alla leiki gærkvöldsins í Pepsi-deild karla á íþróttavef Vísis. Þar birtist umfjöllun um leikina, töl- fræði, einkunnir og viðtöl við leikmenn og þjálfara. Á Vísi er einnig öllum leikjum deildarinnar lýst með beinni texta- og atburðarlýsingu á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Þeir sem fylgjast með á Vísi eru vel upplýstir. FÓTBOLTI Grindavík lyfti sér úr neðsta sæti í það níunda með góðum, 3-2, sigri á lánlausum Fylkismönnum í gær sem mis- tókst að komast í annað sæti úrvalsdeildarinnar. Fylkismenn voru klaufar að fara aðeins með, 1-0, forystu inn í hálfleik í Árbænum eftir að hafa gjörsamlega ráðið ríkjum á vell- inum fyrstu 45 mínúturnar. Grindvíkingar mættu mjög ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og komust fljótt í 2-1, en færðu sig í kjölfarið til baka og Fylkir náði aftur öllum völdum á vellin- um á ný. Grindavík náði þrátt fyrir að að komast í 3-1 þegar tíu mínútur voru til leiksloka en þrátt fyrir hverja atlög- una að marki Grindvík- inga náðu Fylk- ismenn ekki að minnka muninn fyrr en í upp- bótartíma og kom það mark einfald- lega of seint. „Við fengum einhverja sprautu í rassinn og komum mun sterkari til leiks í seinni hálfleik,“ sagði Jóhann Helgason sem skoraði fyrsta mark Grindavíkur í dag úr bylmingsskoti af 30 metra færi. „Við mættum grimmir í öll návígi og ætluðum okkur sigur í leiknum. Við lentum undir í bar- áttunni á miðjunni í fyrri hálfleik en lög- uðum það eftir hlé.“ - gmi Grindavík lagði lánlausa Fylkismenn í Árbænum í gær: Grindvíkingar af botninum JÓHANN HELGASON Skoraði eitt marka Grindavíkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.