Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 4
4 22. júní 2009 MÁNUDAGUR RÓM, AP Kaupsýslumaður sem réði ungar konur til að fara í veislur heima hjá Silvio Berlusconi, for- sætisráðherra Ítalíu, hefur beðist afsökunar á því að leggja til efni í nýtt hneykslismál. Kaupsýslumaðurinn, Giampaolo Tarantini, sagði í viðtali við ítölsku fréttastöðina ANSA að hann hefði einungis greitt konunum ferða- kostnað og kostnað vegna dvalar- innar. Sagði hann að Berlusconi hefði ekki vitað af því að konun- um væri greitt og harmaði að það sem hefði verið vel meint af hans hálfu væri orðið að hneyksli. Áhugi Berlusconis á yngri konum komst í fréttirnar á dögun- um þegar eiginkona hans fór fram á skilnað vegna meintra áforma flokks hans um að stilla ungum fegurðardrottningum upp á fram- boðslista sinn til Evrópuþingsins og hefur Tarantini verið í miðju þessara ásakana. Þrjár konur hafa komið fram í ítölskum dagblöðum og sagt að Tarantini hafi boðið þeim í veislur Berlusconis. Fengu tvær þeirra greiddar þúsund evrur auk þess sem þeim var boðið sæti á fram- boðslista í kosningum á svæð- inu Bari á Ítalíu, hvorug þeirra náði þó kjöri. Sú þriðja fékk enga greiðslu en fékk þó skartgripi að gjöf. -mmf Kaupsýslumaður biður forsætisráðherra afsökunar: Harmar að auka á hneyksli DÓMSMÁL Karlmaður situr nú í farbanni til 10. júlí, grunaður um að hafa villt á sér heimildir til þess að hafa samræði við konu. Maðurinn kom til landsins sem ferðamaður. Hann og félagi hans voru á hótelherbergi ásamt kon- unni. Félaginn hafði haft sam- ræði við konuna, en brugðið sér síðan út úr herberginu. Konan var kyrr í rúminu og beið eftir að maðurinn kæmi til baka. Far- bannsmaðurinn fór þá inn, upp í rúm til konunnar og byrjaði að hafa samræði við hana. Lítil birta var þar inni og mennirnir nokkuð líkir útlits. Konan kærði báða mennina til lögreglu, sem hefur rannsakað málið sem meint kynferðisbrot. - jss Grunur um kynferðisbrot: Hélt sig vera að sofa hjá öðrum GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,634 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,38 129,00 211,15 212,17 178,68 179,68 24,001 24,141 0,063 20,181 16,331 16,427 1,3226 1,3304 197,73 198,91 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR INNBROT Brotist var inn í veiði- húsið við Reynisvatn aðfaranótt sunnudags. Þjófarnir höfðu á brott með sér fimmtíu kíló af reyktri bleikju og regnbogasil- ungi að andvirði um 200 þús- und krónur. Að auki var tólf veiðistöngum og nýjum Nilfisk- háþrýstibúnaði, sem notaður er til að hreinsa fiskistæðið, stolið. Að sögn umsjónarmanna Reynisvatns er þetta í fjórða skipti frá því í vor sem brotist er inn í veiðihúsið og var innbrotið afar fagmannlegt. Þjófarnir kom- ust inn án þess að þjófavörn færi í gang en þeir skrúfuðu rúðu úr einum glugganum. - mmf Innbrot í veiðihús: Stálu bleikju og regnbogasilungi VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 29° 19° 18° 21° 21° 20° 19° 14° 20° 20° 26° 21° 22° 36° 19° 21° 27° 19° 9 10 13 14 15 11 12 10 10 6 10 10 10 10 3 3 10 6 8 6 10 8 Á MORGUN Breytileg átt, 3-8 m/s MIÐVIKUDAGUR Hæg, breytileg átt, 3-5 m/s FÁTT UM FÍNA DRÆTTI Það verður að segjast eins og er að næstu dagar gætu verið meira spennandi í veðurfarslegu tilliti. Reyndar verður hægviðrasamt á morgun og hinn en á hinn bóginn víða einhver væta. Í dag verður bjartast fyrir austan svo gæti létt til vestanlands síðdegis á morgun þó þar megi vænta skúra fyrir hádegi. 8 12 14 1210 6 12 10 1410 Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur BANDARÍKIN, AP Bandarísk kona þarf að borga rúmlega 256 millj- ónir króna í skaðabætur fyrir að deila tónlist á netinu ólöglega og virða ekki höfundarréttarlög. Konan Jammie Thomas-Rasset, fjögurra barna móðir, segist ekki hafa áhyggjur af upphæðinni enda engar líkur á að hún geti borgað hana. Þetta er í annað sinn sem málið fer fyrir dóm en í fyrra skiptið var hún dæmd til að borga rúm- lega 28 milljónir íslenskra króna. -hds Ólögleg skráarskipti: 256 milljónir í skaðabætur BRUNI Skáli Orkuveitu Reykja- víkur í Reykjadal á Hengils- svæðinu brann til kaldra kola í fyrrinótt. Níu ungmenni voru í skálanum en þeim stafaði ekki hætta af eldinum. Á tólfta tímanum í fyrrinótt barst tilkynning um eld í skál- anum. Lögreglan og slökkviliðsmenn úr Hveragerði fóru á svæðið til slökkvistarfa. Skálinn var ónýtur þegar slökkvilið kom á svæðið. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá grilli. Hjálparsveit skáta í Hvera- gerði aðstoðaði ungmennin til byggða. Eldsvoði á Hengilssvæðinu: Skáli brann til kaldra kola FISKI STOLIÐ Brotist var inn í veiðihúsið við Reynisvatn. ÍSRAEL, AP Eli Raz, ísraelskur jarðfræðingur, var að gægjast ofan í holu við strönd Dauða- hafsins þegar jörðin opnaðist og gleypti hann. Raz óttaðist að hann myndi aldrei finnast aftur en eftir að hafa dúsað í tíu metra djúpri holunni í um fjórtán tíma var honum bjargað. Nú, fimm árum seinna, starfar hinn 69 ára gamli jarðfræðingur við að bjarga öðrum frá því að lenda í svipuðum aðstæðum með því að kortleggja þessar hættu- legu holur. Holurnar opnast af minnsta tilefni og gleypa allt það sem fyrir ofan þær er. Raz segir holurnar hafa mynd- ast þar sem vatnsyfirborðið hafi minnkað töluvert í Dauðahafinu vegna ferðamannastraums og iðnaðarúrgangs. „Þetta eru ótví- ræðar sannanir á þeim skaða sem mennirnir hafa valdið á Dauðhaf- inu,“ segir Raz. Ströndin við Dauðahafið: Jörðin gleypti jarðfræðing LÖGREGLUMÁL „Eftir að stjórnin var kærð fyrir villandi upplýsingagjöf, á föstudaginn var, fór ég ítarlega yfir öll gögn í málinu. Þá kom í ljós að út- og afborgunum á lánum til Kópavogsbæjar hefur með vísvit- andi hætti verið hagað þannig að gögn um þær komu ekki fram í skýrslum til Fjármálaeftirlitsins,“ segir Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og stjórnar- maður í Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogs (LSK). Í yfirlýsingu sem Flosi sendi frá sér í gær sakar hann Gunnar I. Birgisson, stjórnarfor- mann sjóðsins, um að hafa reynt að villa um fyrir Fjármálaeftir- litinu (FME) án vitneskju annarra stjórnarmanna í sjóðnum. Fjármálaeftirlitið kærði á föstu- dag stjórn LSK til efnahagsbrota- deildar Ríkislögreglustjóra. Sagt var frá því í Fréttablaðinu á laugar- dag að hlutfall lánveitinga af eign- um LSK til Kópavogsbæjar hafi farið allt upp í tuttugu prósent, en leyfilegt hámark samkvæmt lögum er tíu prósent. Á föstudag varði stjórn LSK lán- veitingarnar með þeim rökum að besta leiðin til að verja hagsmuni sjóðsfélaga hefði verið að ávaxta laust fé til skamms tíma hjá Kópa- vogsbæ. Flosi segir þær upplýsing- ar ekki hafa reynst réttar við nán- ari skoðun. „Stjórnin sendi FME skýrslu í október 2008, þar sem fram kom að Kópavogsbæ hefðu verið lánaðir þessir peningar til skamms tíma. Í skýrslum í desem- ber og mars var ákveðið að láta það ekki koma fram, og með því ákváðu þeir sem skila þessum skýrslum að blekkja FME,“ segir Flosi. Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Kópavogi, segir að eftir að hafa legið yfir gögnum málsins frá því fyrir helgi taki hann undir frásögn Flosa að öllu leyti. Gunnar Birgisson vísar ásökun- unum á bug. „Flosi og Ómar verða að eiga þetta við sig. Það var ekki verið að blekkja neinn stjórnar- mann, það er bara rugl. Allir stjórnarmenn fengu að lesa yfir öll bréf sem voru send til FME. Þeim var kunnugt um þetta og sam- þykktu þá leið sem farin var.“ Gunnar segist hafa orðið undr- andi þegar fjármálaráðherra vék stjórn sjóðsins frá á föstudag. „Þann 19. maí áttum við fund með FME þar sem við gerðum munn- legt samkomulag um að við fengj- um tíma til 31. júlí til að ganga frá málinu. Það var enginn glæpur framinn. Það var einfaldlega verið að hámarka ávöxtun af fjármögnun sjóðsins fyrir þann aðila sem ber ábyrgð á honum, sem er Kópavogs- bær,“ segir Gunnar Birgisson. Sigrún Bragadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri LSK, vildi ekki tjá sig um málið í gær. kjartan@frettabladid.is Segir Gunnar Birgis- son hafa blekkt FME Stjórnarmenn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs segja Gunnar Birgisson, stjórnarformann, vísvitandi hafa blekkt Fjármálaeftirlitið án vitneskju annarra stjórnarmanna. Gunnar vísar því á bug og segir engan glæp hafa verið framinn. KÓPAVOGUR Flosi Eiríksson segir að á tímabilinu frá október og fram í desember 2008 hafi Gunnar Birgisson ákveðið að villa um fyrir FME. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GUNNAR BIRGISSON FLOSI EIRÍKSSON ÓMAR STEFÁNSSON SILVIO BERLUSCONI Forsætisráðherrann þykir hafa full mikinn áhuga á ungum stúlkum. GENGIÐ 19.06.2009

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.