Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 14
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17 Ókeypis námskeið og ráðgjöf Föstudagurinn 26. júní Mánudagurinn 22. júní Þriðjudagurinn 23. júní Miðvikudagurinn 24. júní Fimmtudagurinn 25. júní Sálrænn stuðningur - Fjallað er um áhrif alvarlegra atburða á andlega líðan fólks og viðbrögð þess í kjölfar slíkra atburða. Tími: 12.30-14.00. Prjónahópur - Við ætlum að koma saman, prjóna, hekla, fá okkur kaffi. Allir velkomnir. Tími: 13.00-15.00. Gítarklúbburinn - Allir velkomnir með gítarinn sinn, byrjendur jafnt sem lengra komnir. Leiðbeinandi á staðnum. Tími: 15.30-16.30. Qi – Gong - Æfingar sem hjálpa fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00. Endurlífgun og hjartarafstuðtæki - Stutt verklegt námskeið. Tími: 13.00-14.30. Einkatímar í söng - Fullt. Umsjón: Hulda Björg Víðisdóttir, söngkennari. Tími: 12.00-14.00. Áhugasviðskönnun - Ef þú hefur ákveðið starf eða nám í huga, getur könnunin staðfest hugmyndir þínar. Skráning nauðsynleg. Tími: 13.00-14.30 Gleðin - Nokkrar hugleiðingar um gleðina í lífi okkar. Hvað er gleði og hvernig nærir hún líf okkar? Hvaðan sprettur gleðin? Umsjón: Sr. Irma Óskarsdóttir. Tími: 15.00-16.00. Afneitun og réttlætingar – fylgifiskur áfalla - Ráð- gjafar frá Lausninni (www.lausnin.is) halda fyrirlestur um af- neitun og réttlætingar og afleiðingar þess á fjölskyldulífið. Annar hluti af þremur sjálfstæðum fyrirlestrum. Boðið verður upp á einstaklingsráðgjöf að fyrirlestri loknum. Tími: 13.00-14.00. Föndur, skrapp myndaalbúm - Lærðu að búa til skrautleg og skemmtileg albúm fyrir uppáhalds myndirnar þínar. Tími: 13.00-15.00. Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00. Einkatímar í söng - Fullt. Umsjón: Hulda Björg Víðisdóttir, söngkennari. Tími: 12.00-14.00. Malaví - Fjallað verður um Malaví í máli og myndum með áherslu á daglegt líf. Í lokin verður boðið upp á þjóðaréttinn Nsima. Tími: 13.00-14.00. Brjóstsykursgerð - Vissir þú að það er auðvelt að búa til sinn eigin bragðgóða brjóstsykur? Á þessari kynningu eru sýnd réttu vinnubrögðin við brjóstsykursgerð og auðvitað fá allir smakk með heim. Skráning nauðsynleg. Tími: 14.30-15.30. Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri og gleði? Tími: 15.30-16.30. Bókaklúbbur - Spjallað verður um bókina Leiðin til lífs- hamingju eftir Dalai Lama. Tími: 14.00-15.00. Hjól og hjólreiðar - Á þessu stutta og hagnýta námskeiði verður farið í nokkur lykilatriðið hjólreiða. Gefnar verða hagnýtar ráðleggingar um fatnað, hvernig best er að beita sér við hjólreiðar og nota gírana til að létta lífið í brekkum og roki. Farið verður yfir hvernig best er að stilla hjól og sinna einföldu viðhaldi. Allir hvattir til að koma með hjólin sín og fá persónulega ráðgjöf og aðstoð. Tími: 15.00-17.00. EuroRAP öryggisúttekt á íslenska vegakerfinu - Hvaða vegir eru góðir? Hvaða vegir eru hættulegastir? Hvað er mikilvægast að lagfæra? Öryggisúttektin eykur vitund veg- farenda og eflir umferðaröryggi. Tími: 13.00-14.00. Tölvuaðstoð - Tími: 13.30-14.30. S. 562 1200 862 3311 TRAUST ÞJÓNUSTA Í ÁRATUGI Kári Fanndal Guð brandsson, Sigrún Sigurpálsdóttir, lögg. fasteignasali. 55 „Arkitektar og hönnuðir segjast verða varir við að fólk vilji var- anlegra efni, sem þoli meira álag og endist. Þannig vilji fólk gólf- efni sem standist tímans tönn og þurfi ekki mikið umstang í kring- um,“ segir Dagný Alda. Fyrirtæki hennar, Alda Design, var stofnað í Bandaríkjunum fyrir um fjór- tán árum, en Dagný er útskrifað- ur innanhússarkitekt úr Oregon- háskóla og starfaði sem slíkur í sautján ár vestanhafs. Fyrirtæki hennar, Alda Design, hefur starf- að frá árinu 1992 en hún flutti alla starfsemina til landsins 2005. „Ég sá þessa aðferð, að steypa svona þunnar flísar, á Ítalíu og á Spáni og ákvað að láta á reyna hvort ég gæti þetta ekki, en á þessum tíma voru það bara þykk- ar steyptar flísar sem verið var að steypa í Bandaríkjunum og hér á Íslandi.“ Dagnýju Öldu gekk vel að þróa flísarnar og þær urðu mjög vinsælar. Seldi hún og hannaði fyrir hús og fyrirtæki í Banda- ríkjunum, meðal annars mikið til arkitekta í New York. Litirnir eru mjög sérstakir í steypunni og hér heima eru það gráu tónarnir sem hafa verið hvað vinsælastir. „Hvítu flísarn- ar hafa líka höfðað til fólks en það sést lítið á þeim þegar búið er að loka yfirborðinu með þar til gerðu efni,“ segir Dagný Alda. Þegar hún flutti heim árið 2005 tók við tveggja ára þróunarvinna við að aðlaga framleiðsluna að íslenska steininum. „Flísarnar hafa allar verið prófaðar í bak og fyrir og eru komnar með afar gott brotþol og frostþol, miðað við staðla frá Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins. Leirflísar vilja oft draga í sig lit og bletti en með þeim aðferðum sem við notum til að loka steypunni sér lítið sem ekkert á henni.“ Alda Design selur bæði beint til arkitekta og einstaklinga og hefur einnig verið með í ráðum hvað heildarhönnun húsa varðar. Dagný Alda segir að flísarnar séu vinsælastar og borðplöturnar njóti sívaxandi vinsælda. „Verðið á flís- unum er á bilinu tíu til tólf þús- und krónur fermetrinn og lengdar- metri borðplötu kostar um 48.000 krónur. Við getum búið til mót í allavega stærðum eftir pöntun en það er líka orðið talsvert um það að fólk vilji fá vaska úr steypu og við höfum jafnvel steypt sólbekki fyrir fólk.“ Alda hyggst fara út í að kynna íslenskar steyptar vörur á Bandaríkjamarkaði. „Þetta er allt vistvæn framleiðsla, sem Banda- ríkjamenn eru mjög heitir fyrir, og íslenski steinninn er skemmti- legt efni. Nú þegar við erum búin að gæðaprufa vörurnar í bak og fyrir er líklegt að við förum með vörur okkar líka til Bandaríkj- anna.“ juliam@frettabladid.is Hyggst flytja út íslenska steininn Þunnar steinflísar, steinborðplötur, sólbekkir, vaskar og fleira til, steypt úr íslenskum steini, er verkefni sem Alda Design hefur þróað. Dagný Alda Steinsdóttir innanhússarkitekt er eigandi fyrirtækisins og hyggst hún kynna íslenskar steyptar vörur á Bandaríkjamarkaði. Steyptar flísar frá Alda Design sem Dagný Alda Steinsdóttir innanhússarkitekt á og rekur hafa notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum. Íslendingar hafa verið að upp- götva steinsteypumöguleikana. MYNDIR/THORSTEN HENN Hægt er að fá flísarnar í ýmsum stærð- um og mót eru búin til eftir pöntun. Steinvaskur og borðplata sem nýtur síaukinna vinsælda. MATVÆLI eru stundum ekki síður fyrir augað en bragðlaukana. Þannig eru Campbell-súpudósirnar augnayndi sem og Sol Gryn- haframjölskassinn gamli og mörgum þykir Royal-búðingurinn ekki síðri en basilíkan í útliti. Notið þessi matvæli til að skreyta opnar hillur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.