Fréttablaðið - 22.06.2009, Síða 6
6 22. júní 2009 MÁNUDAGUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
63
11
0
5/
09
• Vatnsveita Reykjavíkur var fyrsta vatnsveita á Norðurlöndunum með ISO 9001 vottað gæðakerfi. www.or.is
Íslenska
flóran
í Elliðaárdal
Orkuveitan efnir til göngu- og fræðsluferðar í
Elliðaárdal undir leiðsögn Guðríðar Helgadóttur
líffræðings, þriðjudagskvöldið 23. júní. Skoðað
verður margbreytilegt
gróðurfar í dalnum,
blómplöntur og byrkn-
ingar. Þátttakendur eru
hvattir til að hafa með sér stækkunargler. Gangan hefst kl. 19.30 við
Minjasafnið í Elliðaárdal.
VIÐSKIPTI Jón F. Thoroddsen, fyrr-
verandi verðbréfamiðlari og höf-
undur bókarinnar Íslenska efna-
hagsundrið – flugeldahagfræði
fyrir byrjendur, heldur opinn
fyrirlestur í Odda 101 í Háskóla
Íslands á morgun.
Þar rekur Jón meginniðurstöð-
ur sínar um einkenni viðskipta
á íslenska verðbréfamarkaðnum
auk þess sem hann rekur tengsl
stærstu bankanna við skráð
fyrirtæki á hlutabréfamarkaði.
Hann fjallar meðal annars um
viðskipti innherja og lánveitingar
til lykilstarfsmanna fyrirtækja
í Kauphöll. Fundurinn hefst kl.
12.00. - kh
Opinn fundur í Háskólanum:
Íslensk flugelda-
hagfræði rædd
Vélsleðaslys á Þórdalsheiði
Vélsleðaslys varð á Þórdalsheiði laust
fyrir klukkan 21 á laugardagskvöld.
Ökumaður sleðans er ekki talinn
alvarlega slasaður en var þó á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Norðfirði í nótt.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Fullar fangageymslur
Erilsamt var hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu aðfaranótt sunnudags
en engin alvarleg atvik komu upp.
Fangageymslur voru þó fullar eftir
nóttina.
SAMFÉLAGSMÁL Undirritaður
hefur verið samstarfssamningur
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis-
ins og Rauða krossins fyrir hönd
Hjálparsíma Rauða krossins,
1717, um sálrænan stuðning í
kjölfar slysa eða áfalla.
Í samningnum felst að fólk
sem kemur að slysum sem vitni,
tilkynnendur og þátttakendur í
skyndihjálp eða björgun eiga nú
kost á að fá sálrænan stuðning
til að vinna úr reynslu sinni.
Undir samkomulagið skrifuðu
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarstjóri og formaður stjórn-
ar Slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins og Anna Stefánsdóttir, for-
maður Rauða krossins. -bþa
Sálrænn stuðningur í boði:
Samstarf um
stuðning
FÉLAGSMÁL „Nú sem aldrei fyrr er
nauðsynlegt að hlúa að heilbrigði
og virkni allra barna og fjölskyldna
og með stofnun þessa nýja félags
leggur Ferðafélag Íslands sitt lóð
á vogarskálarnar,“ segir í tilkynn-
ingu frá Ferðafélagi Íslands sem
stofnar Ferðafélag barnanna við
rætur Esju í dag.
„Með þessu nýja félagi verður
lögð mikil áhersla á að bjóða upp
á ferðir og uppákomur á forsend-
um barnanna með það fyrir augum
að víkka sjóndeildarhring þeirra
og upplýsa um heilbrigða lífshætti
úti í náttúrunni. Í þessu samhengi
má segja að höfuðmarkmið Ferða-
félags barnanna sé að fá öll börn
til að upplifa sanna gleði í náttúr-
unni og upplifa sjálf leyndardóma
umhverfisins,“ segir í tilkynningu
Ferðafélagsins.
Fram kemur að ferðirnar verði
sniðnar að þörfum barna upp að
tólf ára.
„Þau geta lagt á sig talsverðar
göngur – ef hugsað er vel um grunn-
þættina; aldrei svöng, aldrei kalt og
aldrei leið,“ segir til dæmis um mið-
hópinn. Um elstu krakkana segir að
þau séu að öðlast meira sjálfstæði
og vilji láta reyna á eigin getu:
„Foreldrar eru þó með að sjálf-
sögðu, en kannski ekki eins virkir
þar sem félagarnir eru á þessum
aldri að ná æ meiri athygli.“ - gar
Ferðafélag barnanna formlega stofnað í dag við rætur Esjunnar:
Útiveran víkkar sjóndeildarhringinn
KÁTIR KRAKKAR Í byrjun júní var eins
konar lokaæfing fyrir stofnun Ferða-
félags barnanna þegar leikskólabörn
spókuðu sig í hlíðum Esjunnar. Formleg-
ur stofnfundur verður við rætur fjallsins
klukkan hálftvö á mánudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMGÖNGUR Skera á niður fram-
lag ríkisins til vegagerðar á þessu
ári um 3,5 milljarða króna. „Þrátt
fyrir þennan niðurskurð lítur út
fyrir að árið 2009 verði annað
mesta framkvæmdaár vegagerðar
á Íslandi,“ segir Kristján L. Möller
samgönguráðherra.
Kristján segir að í upphafi árs-
ins hafi verið í gangi verk og samn-
ingar fyrir um 15 milljarða króna.
Enn sé óljóst á hvaða verkefnum
niðurskurðurinn bitni. „Við erum
ekki búnir að endurskipuleggja
út frá þessum tölum. Það er ekki
hægt að segja að það verði ekki
boðið meira út á árinu vegna þess
að við eigum eftir að sjá hverju
verður veitt til vegagerðar á árun-
um 2010 til 2013. Ný samgöngu-
áætlun verður lögð fram í haust
eða í síðasta lagi um áramót,“ segir
ráðherrann.
Þótt ríkið skeri niður framlag
sitt til vegagerðar eru aðrir mögu-
leikar til fjármögnunar fram-
kvæmda að sögn Kristjáns sem
kveðst hafa rætt við bæði lífeyr-
issjóði og einkaaðila um aðkomu
að þessum málaflokki. Dæmi um
framkvæmdir sem þessir aðil-
ar gætu komið að segir Kristján
vera tvöföldun Suðurlandsveg-
ar og Vesturlandsvegar, göng í
Vaðlaheiði og samgöngumiðstöð
við Reykjavíkurflugvöll. „Það
væri hægt að hefja framkvæmd-
ir við samgöngumiðstöðina strax
í haust ef við fengjum bara leyfi
frá borginni. Þarna hafa aðilar
lýst yfir miklum vilja til að koma
að framkvæmdum,“ segir ráherr-
ann og minnir á að fyrir tveimur
mánuðum hafi verið undirritað
samkomulag við borgaryfirvöld
sem fól í sér að hratt yrði unnið að
skipulagsmálum fyrir samgöngu-
miðstöðina. „Tíminn sem er liðinn
síðan er kominn fram yfir minn
skilning á því hvað er að vinnast
hratt.“
Þá segir Kristján fulltrúa líf-
eyrissjóða hafa komið að máli
við hann vegna áhuga þeirra á að
koma að því að lána fyrir byggingu
Vaðlaheiðarganganna í einkafram-
kvæmd. „Þar að auki hafa erlend-
ir aðilar lýst yfir áhuga. Þannig að
það er ýmislegt í gangi og í skoð-
un,“ bætir hann við. - gar
Ráðherra segir 2009 annað mesta framkvæmdaárið þrátt fyrir niðurskurð:
Lífeyrissjóðir vilja lána til vegagerðar
KRISTJÁN L. MÖLLER Samgönguráðherra segir aðeins vanta heimild Reykjavíkurborg-
ar til að hægt sé að hefja byggingu samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það er ekki hægt að segja
að það verði ekki boðið
meira út á árinu vegna þess að
við eigum eftir að sjá hverju verð-
ur veitt til vegagerðar á árunum
2010 til 2013.
KRISTJÁN L. MÖLLER
SAMGÖNGURÁÐHERRA
Ætlar þú að ferðast innanlands
fyrstu helgina í júlí?
Já 36,2%
Nei 63,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Þekkir þú einhvern sem hefur
verið brotið á af hálfu starfs-
manna kirkjunnar?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
ÍRAN, AP Að minnsta kosti tíu manns létu lífið
og hundrað særðust í mótmælum í Teher-
an, höfuðborg Írans, á laugardag. Áfram er
úrslitum í forsetakosningunum þann 12. júní
mótmælt. Samkvæmt opinberum tölum hafa
þá sautján manns látist í mótmælunum, en sjö
létust í mótmælum fyrir viku síðan. Erfitt er
þó að staðfesta tölurnar.
Fimm fjölskyldumeðlimir Hashemi Raf-
sanjani, fyrrum forseta landsins, voru jafn-
framt handteknir seint á laugardagskvöld.
Rafsanjani er mjög háttsettur og andstæðing-
ur Mahmoud Ahmadinejad núverandi forseta.
Hann gagnrýndi forsetann mjög mikið í kosn-
ingabaráttunni. Handtökurnar þykja sýna
klofning í leiðtogaráði Írans. Meðal þeirra
handteknu var dóttir Rafsanjani, Faezeh Has-
hemi, sem ávarpaði mótmælendur í síðustu
viku.
Mótmælin voru þau fyrstu frá því að æðsti
klerkur landsins, Ayatollah Khamenei, krafð-
ist þess að mótmælum yrði hætt og hótaði
hörðum aðgerðum ef það yrði ekki. Lög-
regla notaði meðal annars kylfur, táragas og
vatn til þess að brjóta mótmælin á bak aftur.
Írönsk stjórnvöld hafa sakað erlend ríki um
afskiptasemi og að hafa stuðlað að ófriði
í kjölfar kosninganna. Utanríkisráðherra
Írans, Manouchehr Mottaki hélt blaðamanna-
fund í gær og gagnrýndi Bretland, Frakkland
og Þýskaland sérstaklega. Angela Merkel
kanslari Þýskalands hefur hvatt Írani til end-
urtalningar atkvæða. Þá hefur Barack Obama
Bandaríkjaforseti hvatt írönsk stjórnvöld til
að hætta öllum ofbeldisaðgerðum gagnvart
almenningi. Hann sagði Bandaríkin standa
með öllum þeim sem vilji nýta tjáningarfrelsi
sitt.
Blaða- og fréttamönnum hefur verið bannað
að vinna á götum úti og í gær var fréttaritara
breska ríkisútvarpsins BBC gert að yfirgefa
landið. Þá hafa 23 blaðamenn verið hand-
teknir á síðustu dögum.
Mannréttindasamtök hafa greint frá því að
lögregla hafi handtekið mikið af slösuðu fólki
sem leitaði á spítala. Læknum hafi verið gert
að tilkynna um öll mótmælatengd meiðsli.
Margir hafi því leitað skjóls í sendiráðum til
þess að forðast handtöku.
Sjálfsmorðsárás var gerð við styttu af
Khomeini æðsta klerki á sunnudag. Árásar-
maðurinn lést og fimm særðust. Engin mót-
mæli voru haldin í gær. thorunn@frettabladid.is
Sautján látnir í mótmælum
Yfirvöld í Íran hafa viðurkennt að sautján manns hafi látið lífið í mótmælum undanfarinna daga. Hart var
tekið á mótmælum á laugardag, eftir að æðsti klerkurinn hafði krafist þess að þeim yrði hætt.
MÓTMÆLT Hörð mótmæli voru í Teheran á laugardag og var táragasi og kylfum beitt óspart til að brjóta þau á bak
aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN