Fréttablaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ÞVOTTURINN OKKAR fær sjaldnast tækifæri til
að þorna úti við á Íslandi og því er um að gera að nota
þessar fáu vikur sem hægt er og fá ferska útilykt af
fötunum okkar. Þó það sé ekki nema að strengja eina
snúru á svalirnar, bara svona rétt til að fá smjörþefinn.
„Ég fékk hugmyndina af netinu
þó að bólstraða rúmgafla megi að
vísu finna alls staðar,“ segir Guð-
rún Davíðsdóttir, viðskiptafræð-
ingur og nýbökuð tveggja barna
móðir. „Ég ákvað hins vegar að
nýta það sem til var og varð gam-
alt skrifborð eiginmannsins fyrir
valinu. Ég bólstraði það og klæddi
með efni úr Ikea og heftibyssuna
fékk ég lánaða hjá mömmu,“ segir
hún hispurslaust og bætir við: „Ég
notaði gamla sumarsæng úr Rúm-
fatalagernum sem undirlag til að
bólstra í kringum og fyllti upp í
með gömlu flísteppi.“
Kostnaðurinn við rúmgaflinn
fólst einungis í 2,2 metrum af efni
sem kostaði 895 krónur metrinn.
„Rúmgaflinn kostaði mig því um
2.000 krónur en vaggan eitthvað
um 3.700 krónur með dýnu,“ segir
Guðrún en vaggan var smíðuð úr
gömlum hilluafgöngum úr geymsl-
unni. „Við breyttum geymslunni í
barnaherbergi og þá voru engin
not fyrir gömlu hillurnar lengur.
Síðan átti ég gamalt ullarteppi
sem ég þæfði í þvottavélinni og
gat bólstrað öll horn vöggunn-
ar með því þannig að þau yrðu
mjúk. Svo notaði ég afganga úr
bútasaumnum hjá mömmu til að
bólstra hliðarnar. Vaggan er síðan
fest á gamla skáphurð úr forstof-
unni sem er fest undir rúmið,“
útskýrir hún.
Verkið tók einn dag, sem sumum
þætti nú vel af sér vikið, en Guð-
rún hafði ætlað sér enn styttri
tíma. „Við erum hins vegar ekki
mjög færir smiðir,“ segir hún og
hlær. Þau hjónin hafa reyndar nú
þegar tekið í gegn baðherbergið,
parkettlagt herbergi og breytt
geymslu í barnaherbergi. „Þau
verk gáfu okkur hugrekkið en
ekki endilega færnina.“
Rúmgaflinn og vaggan lukkuð-
ust hins vegar prýðisvel og nýt-
ist plássið í svefnherberginu enn
betur. „Vaggan snertir ekki gólf-
ið og auðveldar því þrif en hug-
myndin var sú að ég gæti haft
dóttur mína nálægt mér fyrstu
mánuðina og horft á hana án þess
að hafa áhyggjur af að leggjast á
hana í hjónarúminu.
Eins og flestar mæður þekkja
gerir maður lítið annað en að
stara á litla kríl-ið fyrsta mán-
uðinn,“ segir Guðrún og brosir.
hrefna@frettabladid.is
Smíðað upp úr gömlu
Að hugsa út fyrir kassann er ekki öllum gefið en Guðrún Davíðsdóttir, nýbökuð tveggja barna móðir,
gerði það svo sannarlega þegar hún smíðaði rúmgafl og vöggu úr gömlu skrifborði og hillum.
Guðrún og Njörður, eiginmaður hennar, smíðuðu rúmgaflinn úr gömlu skrifborði og vögguna úr hilluafgöngum. Þar unir nýfædd
dóttir þeirra sér vel í návígi við foreldrana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Velbon þrífætur
mikið úrval
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Óseyri 2, Akureyri, 461 1150 • Opið virka daga kl. 12:00-18:00 – laugardaga kl. 12:00-16:00 • www.svefn.is
HEILSUDYNUR OG HEILSUKODDAR
Eitt með öllu
SUMARTILBOÐ
á stillanlegum rúmum
Ný tilboð
sjá www.svefn.is
Íslenskir botnar
Íslensk framleiðsla
Íslenskir svefnsófar
Margir litir í boði
Vinsælasta
stillanlega
rúmið
hjá okkur
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Létt og lipur. Kirsuberjarauð.
Stillalegt afl mótors frá 300 upp í
1800 W. Sjálfinndregin snúra,
hleðsluskynjari.
3 lítra poki. Vinnuradíus: 8 m.
Vinnuhollt handfang.
Stillanleg lengd á sogröri.
Ryksuga VS 01E1800
14.900Tilboðsverð: kr. stgr.
(Verð áður: 17.900 kr.)
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki