Fréttablaðið - 22.06.2009, Page 30
22 22. júní 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Þetta er bara búið vera draum-
ur fyrir mig, algjörlega frábært,“
segir Ervin Shala. Nafnið kveik-
ir kannski ekki á neinum bjöllum
hjá lesendum Fréttablaðsins og
nýrakað andlitið ekki heldur. En
setji menn yfirvaraskegg og örlít-
ið meira hár, helst krullað, á Ervin
kemur í ljós gríski dalafetamaður-
inn Stepaponopolis úr auglýsingum
Dags Kára Péturssonar fyrir MS
sem vöktu mikla athygli á sínum
tíma. Ervin leikur aðalhlutverk-
ið í stuttmyndinni The Notion of
Imminent Causation eftir Óskar
Örn Arnarsson sem hlaut áhorf-
endaverðlaun Stuttmyndadaga
Reykjavíkur. Stuttmyndin legg-
ur brátt af stað í lítið ferðalag til
heimalands Ervins, Kosovo, þar
sem hún verður sýnd á Pristina
Film Festival en formaður dóm-
nefndar er engin önnur en Vanessa
Redgrave. Draumur Ervins, um að
mynda menningarbrú milli Kosovo
og Íslands, er því að skríða af stað.
„Við byrjum bara svona, með stutt-
mynd þar sem Íslendingur og Kos-
ovo sameina krafta sína.“
Ervin flúði frá Kosovo til Íslands
þegar stríðsátökin þar stóðu sem
hæst fyrir ellefu árum, þá aðeins
tvítugur að aldri, einn og óstudd-
ur. Í þeim mánuði höfðu bardag-
ar milli Frelsishers Kosovo og
serbneskra lögreglu- og hersveita
staðið yfir í sjö mánuði og yfir
270 þúsund manns voru á flótta.
Aðstæðurnar versnuðu til muna
næstu mánuði og þegar NATO hóf
loftárásir á Júgóslavíu var það
vegna gruns um þjóðernishreins-
anir í Kosovo.
Ervin fékk við komuna vinnu hjá
Fiskverkun Jónasar í Hafnarfirði
og fór strax að læra tungumálið.
Íslenskukennararnir hans voru þó
heldur óhefðbundnir. „Já, ég hlust-
aði alltaf á Tvíhöfða í vinnunni og
lærði tungumálið í gegnum þá.
Konurnar í fiskvinnslunni hjálp-
uðu mér síðan með þau orð sem ég
skildi ekki,“ segir Ervin og hlær.
Ervin telur að yfir fimm hundr-
uð Kosovo-Albanar séu á Íslandi í
dag og þeir halda mjög góðu sam-
band sín á milli. Í dag starfar
Ervin hjá sápuframleiðandanum
Tandur milli þess sem hann leik-
ur í kvikmyndum og auglýsing-
um. Kvikmyndaleikstjórar hafa
sóst eftir balknesku útliti hans,
nú síðast lék hann verðbréfasala
í R.W.W.M eftir Júlíus Kemp og
svipaða týpu í Brúðgumanum
eftir Baltasar Kormák. „Ég ætla
alla leið í kvikmyndabransanum
og lifa þann draum til fulls.“
freyrgigja@frettabladid.is
ERVIN SHALA: DREYMIR UM MENNINGARBRÚ MILLI KOSOVO OG ÍSLANDS
Dalafetamaðurinn með
stuttmynd til Pristina
„Þetta er með því betra sem
maður hefur lesið,“ segir nýkrýnd-
ur Grímuverðlaunahafi, Kristín
Jóhannesdóttir, um nýjasta leik-
stjórnarverkefni sitt, Brennu-
varga. Verkið, sem Mark Frisch
skrifaði á síðustu öld, verður
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu um
miðjan október.
Kristín fékk Grímuna sem leik-
stjóri ársins fyrir Utan gátta og
bíða margir með eftirvæntingu
eftir hennar næsta skrefi á leik-
sviðinu. Með aðalhlutverkin í
Brennuvörgum, sem er kolsvört
kómedía, fara Eggert Þorleifsson
og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Leika
þau Biederman-hjónin sem fá
heim til sín þrjá brennuvarga en
brestur þor eða dómgreind til að
hindra að þeir kveiki í allri borg-
inni. Með hlutverk brennuvarg-
anna fara Björn Thors og Stefán
Hallur Stefánsson. Edda Arn-
ljótsdóttir leikur síðan þjónustu-
stúlkuna á heimilinu sem kemur
mikið við sögu. Tónlistina í verk-
inu semur Barði Jóhannsson.
„Það er svo sérkennilegt og
skemmtilegt að verkið talar
beint inn í þetta hrun okkar og
á sér magnaðar hliðstæður í því
ferli öllu. Í því felst skírskotun í
það hvað það er í manninum sem
veldur því að við göngum eins og
blinduð út í eyðileggingu og glóru-
lausa vitleysu eins og við könn-
umst við hér á landi,“ segir
Kristín. „Þetta verður mjög
skemmtilegt og nauðsyn-
legt fyrir alla Íslendinga
á þessari ögurstundu
sem við lifum að reyna
að komast að því hvað
klikkaði hjá okkur.“ - fb
Steinunn Sigurðardóttir fata-
hönnuður var alveg pollróleg þótt
bandalag íslenskra listamanna,
BÍL, hefði látið bóka óánægju sína
vegna útnefningar hennar sem
borgarlistamanns á fundi menn-
ingar- og ferðamálaráðs hinn 11.
júní síðastliðinn. Steinunn kaus
frekar að klæða sig í búning
sáttasemjara þegar Fréttablað-
ið leitaði eftir viðbrögðum henn-
ar. „Á Íslandi eru nýir tímar sem
kalla á aukna samvinnu og nýjar
lausnir,“ segir Steinunn og bend-
ir á að í nágrannalöndunum hafi í
auknum mæli verið lögð áhersla á
samvinnu milli lista, hönnunar og
annarra atvinnugreina. „Á þess-
um einstöku tímum gefur smæð
þjóðfélagsins okkur forskot og
samvinna og landamæraleysi
innan hinna skapandi stétta getur
leyst úr læðingi krafta sem koma
öllum á óvart,“ útskýrir Stein-
unn.
Guðmundur Oddur Magnús-
son, kennari í grafískri hönn-
un við Listaháskóla Íslands, var
harðorður í garð áheyrnarfull-
trúanna tveggja þegar Frétta-
blaðið bar bókun þeirra undir
hann á fimmtudaginn. Guðmund-
ur Oddur sagði að ekki ætti að
skipta neinu máli hvaðan góðir
hlutir kæmu.
„Þessi bókun þýðir í raun að
Andy Warhol og Dieter Roth
hefðu aldrei getað orðið borgar-
listamenn því þeir voru ekkert
síður hönnuðir en listamenn.“ - fgg
Steinunn hvetur til sameiningar
SÁTTASEMJARI Steinunn Sigurðardóttir var pollróleg þótt BÍL hefði látið bóka
óánægju sína með útnefningu hennar sem borgarlistamanns.
LÁRÉTT
2. blikk, 6. pot, 8. húsfreyja, 9. fálm,
11. ekki, 12. rými, 14. beikon, 16. býli,
17. mánuður, 18. heiður, 20. átt, 21.
skrifa.
LÓÐRÉTT
1. stökk, 3. hvort, 4. fjölmiðlar, 5. slit,
7. raddfæri, 10. blekking, 13. er, 15.
ávöxtur, 16. kaupstaður, 19. ólæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. depl, 6. ot, 8. frú, 9. pat,
11. ei, 12. pláss, 14. flesk, 16. bæ, 17.
maí, 18. æra, 20. nv, 21. rita.
LÓÐRÉTT: 1. hopp, 3. ef, 4. pressan,
5. lúi, 7. talfæri, 10. tál, 13. sem, 15.
kíví, 16. bær, 19. at.
„Hann Beggi hefur alltaf verið
mikill íþróttamaður og þurfti
að velja milli handboltans, fót-
boltans og golfsins. Eflaust hefði
hann plumað sig vel í öllum
þessum íþróttagreinum. Hann er
mjög yfirvegaður og með kollinn
í lagi en það sem ég met mest
við hann er að það er hvorki til
hroki né mont í honum.“
Björk Pétursdóttir, móðir Sigurbergs
Sveinssonar, landsliðsmanns í handbolta.
Grímuhafi stýrir kreppuverki
ÆTLAR AÐ LIFA DRAUMINN Ervin Shala flúði frá Kosovo til Íslands fyrir ellefu árum
og ætlar nú að láta drauminn um að verða kvikmyndaleikari rætast. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KRISTÍN JÓHANN-
ESDÓTTIR Næsta
verk Kristínar
nefnist Brennu-
vargarnir og
er eftir Mark
Frisch.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Miðbærinn í Reykjavík var fullur
af fólki enda viðraði vel til barsetu
um helgina og þá sérstaklega á
föstudagskvöldinu. Veitinga- og
skemmtistaðurinn B5 var venju
samkvæmt ákaflega vinsæll og þar
máttu væntanlegir gestir gera sér
það að góðu að standa dágóðan
tíma í röð fyrir utan. Ekki þurftu
þó allir að húka úti því fyrrverandi
menntamálaráðherra og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins,
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, og fyrrverandi
sjónvarpsstjarnan Inga
Lind Karlsdóttir kom-
ust nefnilega fram fyrir
röðina og beint inn,
við litlar vinsældir við-
staddra sem bauluðu
og blístruðu þegar
þetta átti sér stað.
En á meðan Inga Lind skemmti sér
konunglega í miðbæ Reykjavíkur
hafði fyrrverandi samstarfskona
hennar úr Íslandi í dag ærna
ástæðu til að fagna á heimili sínu í
Vesturbænum. Svanhildur Hólm
getur nefnilega hætt að titla sig
fjölmiðlakonu og farið að kalla
sig lögfræðing enda hefur hún nú
lokið því námi. Ekki er
annað hægt en að vor-
kenna þeim sem ætla
að vera með eitthvert
vesen við Melhaga 16,
þar sem Svanhildur
og Logi Bergmann
búa, því nágranni
þeirra er Sigurður
Kári Kristjánsson,
sem er jú líka
lögfræðingur.
Og enn af sjónvarpsfólki því
fréttamaðurinn góðkunni Einar
Þorsteinsson var steggjaður um
helgina. Einar er að fara að flytja af
landi brott ásamt verðandi eigin-
konu sinni og ætla þau að setjast
að á Miami og lesa þar fræði sín.
Hinir íslensku vinir voru
því nokkuð veglegir
við vin sinn en meðal
þeirra sem komu við
sögu í þessu sögu-
fræga teiti voru Árni
Johnsen, Jakob Frímann
Magnússon og Borat-
sundbolur. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1. Hann var 113 ára.
2. Á Möltu.
3. Í 340 borgum.