Fréttablaðið - 24.06.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.06.2009, Blaðsíða 16
MARKAÐURINN 24. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Eftir verðfall hlutabréfa síðustu misseri og hrun bankakerfisins falla engin félaga Kauphallarinn- ar í flokk stórra fyrirtækja. Ein- ungis þrjú ná því að teljast meðal- stór og restin eru lítil félög. Í endurflokkun félaga sem skráð eru í Nasdaq OMX Nordic kauphallirnar í byrjun vikunn- ar voru nítján félög færð niður um stærðarflokk. Þar á meðal eru íslensku hlutafélögin Bakka- vör Group, Eimskipafélag Íslands og Icelandair Group. Þau voru í flokki meðalstórra félaga, en telj- ast nú til lítilla. Einungis tvö félög af nítján, sænsku félögin JM AB og PA Resources AB, fóru úr því að vera stór í að vera meðalstór, en Samkvæmt skilgreiningu kaup- halla samstæðunnar þarf mark- aðsvirði skráðra félaga að vera einn milljarður evra hið minnsta til þess að þau geti talist stór (e. Large Cap). Lítil félög (Small Cap) eru þau sem eru undir 150 millj- óna evra virði. Meðalstór félög (Mid Cap) eru svo þau sem eru þar á milli, yfir 150 milljónum evra, en undir milljarði. Þrjú félög á aðallista Kauphallar- innar hér ná því að vera yfir 150 milljónum evra að stærð, en það eru Össur, Marel Food Systems og Føroya banki. 79 félög á Nasdaq OMX Nordic halda hins vegar flokki sínum meðan á svonefndu breytingartímabili stendur, eða í tólf mánuði og verður þá lagt mat á það á ný hvort þau verði flutt um flokk. Þetta er gert til að lágmarka sveiflur á listanum. Þannig eru Eik Banki og Atlantic Petroleum enn skráð í flokk meðal- stórra félaga, þótt markaðsvirði þeirra sé nú undir settum mörk- um. - óká Þrjú félög falla um stærðarflokk Fyrirtæki ISK * EUR* Össur 46.953 262,6 Marel 32.407 181,2 Føroya Banki 29.400 164,4 Alfesca 24.686 138,1 Eik Banki 17.364 97,1 Atlantic Petroleum 13.103 73,3 Nýherji 5.600 31,3 Icelandair 4.750 26,6 Atlantic Airways 4.074 22,8 Bakkavör 2.741 15,3 Eimskipafélagið 1.877 10,5 Sláturfélagið (B) 200 1,1 Alls 183.155 1.024 *Í milljónum króna/evra A Ð A L L I S T I N A S D A Q / O M X I C E L A N D Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar „Við höfum fengið 75 viðskipta- áætlanir frá frumkvöðlum inn á borð til okkar, hitt um helming þeirra og rætt við fjár- festa,“ segir Baldur Már Helga- son, sjóðsstjóri frumkvöðla- og sprotasjóðsins Bjarkar hjá Auði Capital. Sprotasjóðurinn var kynntur til sögunnar fyrir jól í fyrra og er hann nefndur eftir tónlistar- konunni Björk Guðmundsdóttur. Sjóðurinn hefur frá upphafi stefnt að því að fjárfesta í sprota- fyrirtækjum með vaxtarmögu- leika fyrir samtals tvo til 2,5 milljarða króna. Auður Capital lagði honum til hundrað milljónir króna og hefur síðan þá leitað jafnt til áhugasamra einstaklinga og fag- fjárfesta, lífeyrissjóða, eftir inn- leggi í sjóðinn. Upphaflega stóð til að ljúka fjármögnun sjóðsins í apríllok. Baldur segir árferðið í íslensku efnahagslífi hafa ráðið miklu um að verkefnið hafi tafist. Erlendir fjárfestar hafi sýnt honum mik- inn áhuga í upphafi. „Allt um Björk vekur athygli erlendis. Við höfum haldið þeim upplýst- um um ferlið. En vegna óvissu um gjaldeyrishöftin er ekki aug- ljóst hvernig hægt er að koma nýrri fjárfestingu inn í landið,“ segir hann og bendir á að við- ræður hafi staðið yfir við bæði Seðlabankann og aðrar opin- berar stofnanir vegna áhuga erlendra fjárfesta á íslenskum sprota fyrirtækjum. Nú hillir undir að sprotasjóður- inn Björk taki til starfa. Baldur reiknar með að það geti orðið á næstu vikum. Lægsta fjárhæðin sem fjár- fest er fyrir nemur 25 milljónum króna en hámarkið ræðst af stærð sjóðsins hverju sinni og getur numið allt upp undir fimmtán prósentum af stærð hans. Miðað við tveggja milljarða sjóð getur hámarksfjárfesting numið þrjú hundruð milljónum króna. „Við höfum séð tækifæri í heilbrigðisgeiranum, í tækni og hugbúnaðargerð, hönnun, skartgripahönnun, fatahönnun og fyrirtækjum sem nýta endur- nýjanlega orku með nýjum hætti hvort heldur er til eldsneytis- framleiðslu eða í pappírsgerð,“ segir Baldur og viðurkennir að það hafi komið honum á óvart að flest fyrirtækjanna hafi komist á koppinn síðastliðin fimm ár. Baldur gerir ráð fyrir að forsvars menn sprotasjóðsins skoði hátt í þrjú hundruð sprota- fyrirtæki á næstu þremur árum. Fjár fest verður í um fimmtán til tuttugu þeirra fyrirtækja á árabilinu. Miðað við þetta fjár- festir Bjarkar sjóðurinn í fimm prósentum þeirra fyrirtækja sem skoðuð eru á tíma bilinu. „Reynsla erlendra nýsköpunar- sjóða sýnir að af tuttugu sprota- fyrirtækjum munu tvö til þrjú ganga mjög vel. Síðan eru nokkur sem munu ganga sæmilega en önnur síður,“ segir Baldur að lokum. BALDUR MÁR HELGASON Allt um Björk vekur athygli erlendis, ekki síst þegar nafn tónlistarkonunnar tengist íslenskum sprotafyrirtækjum, segir sjóðsstjóri sprotasjóðsins Bjarkar. MARKAÐURINN/VILHELM Fljótlega fjár fest úr Bjarkar sjóði Sjóðsstjóri sprotasjóðsins Bjarkar segir erlenda fjárfesta hafa áhuga á íslenskum sprotafyrirtækjum. MasterCard Mundu ferðaávísunina! Vika Frá ára mót um Alfesca 0,0% 0,0% Bakkavör 5,3% -52,2% Eimskipafélagið 0,0% -20,0% Föroya Bank 0,0% 1,2% Icelandair 3,3% -64,3% Marel -3,7% -32,5% Össur 2,8% 10,8% Úrvalsvísitalan OMXI15 262 Úrvalsvísitalan OMXI6 736 *Miðað við gengi í Kaup höll í gær. Engu breytir fyrir launþega hvort greiðslur í lífeyrissjóð eru skatt- lagðar við innlögn eða útgreiðslu. Leiðin, sem er tillaga þingflokks Sjálfstæðisflokks að leið til að auka tekjur ríkisins, hefur hins vegar bæði í för með sér kosti og galla, líkt og fram kemur í úttekt Benedikts Jóhannessonar trygg- ingastærðfræðings í efnahags- ritinu Vísbendingu, sem hann bæði ritstýrir og gefur út. Áætlað hefur verið að tekju- aukning ríkissjóðs við breyting- una gæti numið fjörutíu milljörð- um króna og segir Benedikt helsta kostinn fyrir launþega vera að skattheimtan sé sársaukalaus nú. „Að vísu flækir dæmið að breyt- ingar geta orðið á skattkerfinu, en eins og nú horfir fer skattprósenta væntanlega ekki lækkandi á næst- unni,“ segir í Vísbendingu. Einnig flækir málið að búa þyrfti til tvöfalt lífeyriskerfi, þannig að hætt yrði að greiða í það fyrra um leið og iðgjöld yrðu skattlögð við innlögn. Þá er vísað til útreikninga um að með til- færslunni þurfi síðar að finna aðra skattstofna eða bregðast við með einhverjum hætti til að taka á þeirri skerðingu skattstofna sem á sér stað þegar greiðslur hefjast úr lífeyrissjóð- unum þar sem skattur hefur þegar verið inn- heimtur. Þá er bent á að lífeyrissjóðirn- ir komi til með að hafa minna til að fjárfesta með og þar með aukist mismunun í lífeyrissjóða- kerfinu, því réttindi opinberra starfsmanna séu tryggð, hvernig sem árar í ávöxtun sjóða þeirra, meðan aðrið sjóðir þurfi að skerða réttindi ef illa fer. Aukinheldur minnki möguleikar sjóðanna til að taka þátt í atvinnulífinu með því að fjárráð þeirra verða minni. Áhrif breytingarinnar gætu líka komið fram strax í að sjóðir sem ekki ættu fyrir skuldbindingum í gamla kerfinu þyrftu að skerða réttindi nú þegar. Benedikt segir ljóst að hug- myndin hafi bæði kosti og galla, en kreppuástandið hljóti að leiða til þess að skapandi hugmynd- ir sem þessi séu grandskoðaðar. „Ekkert bendir til þess að þessi hugmynd sé sett fram af loddara- hætti eða sem lýðskrum,“ skrifar Benedikt. - óká BENEDIKT JÓHANNESSON Breytt skattlagning gæti kallað á skerðingu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.