Fréttablaðið - 24.06.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 24.06.2009, Blaðsíða 20
 24. 2 „Þessar neglur eru mjög dæmi- gerðar fyrir þær sem við kenn- um í skólanum en svo bætti ég við tveimur nöglum sem ég setti skraut á og hafði aðeins öðruvísi í laginu,“ segir Hjördís Lilja Reynis dóttir, kennari við Naglaskóla Snyrti- akademíunnar. Hún segir slíkar gelneglur hafa orðið mjög vinsæl- ar hin síðari ár. „Við leggjum mikla áherslu á að kenna nemendum okkar þetta djúpa bros en það er mun erfiðara en að mála beina línu,“ segir Hjör- dís og á þar við lagið á hinni hvítu rönd naglanna. „Þetta er nokkurs konar einkennismerki okkar,“ segir Hjördís og bætir við að þessa tækni þurfi naglafræðingar að kunna vilji þeir keppa úti í heimi. En tekur langan tíma að setja slíkar gelneglur á? „Ef maður er í góðri þjálfun tekur þetta einn og hálfan til tvo tíma,“ svarar Hjördís og segir allan gang á því hve lang- ar neglur konur vilji hafa. „Það má venjast öllu, sumum gengur mjög vel að venjast því að vinna með langar neglur en aðrar vilja bara hafa þær mjög stuttar,“ segir Hjör- dís og telur það gefa höndunum vissan hreinleika að hafa á þeim hvítar línur. Er þetta ekkert vont fyrir negl- urnar? „Við kennum nemendum okkar að bera virðingu fyrir nátt- úrulegu nöglinni. Neglurnar eiga að koma undan gelinu eins og þær voru þegar þær fóru undir það. Þær eru ekki þynntar og gelið fer beint ofan á þær,“ útskýrir Hjördís og tekur fram að ráðleggja eigi öllum viðskiptavinum að láta naglafræð- inga taka neglurnar af. Hjördís segir konur ekki aðeins fá sér gelneglur við sérstök tækifæri. „Flestar sem byrja í nöglunum halda áfram og eru jafn- vel með þær í mörg ár,“ segir hún en þær konur sem eru með slíkar neglur þurfa að koma í lagfæringu á þriggja til sex vikna fresti. Allar neglurnar sem sjást á myndunum eru eftir Hjördísi sjálfa, þar á meðal þær skraut- legu með blómunum. „Við kennum nemendum okkar að búa til skraut, setja steina og annað slíkt,“ segir Hjördís en vinsældir slíkra útúr- dúra aukast sífellt. „Fyrir nokkrum árum voru konur svolítið ragar við þetta en eru að taka við sér,“ segir Hjördís og telur Íslendinga vera mun íhaldssamari í þessum efnum en fólk í nágrannalöndunum. Blaðamaður innir hana þá eftir oddmjóu nöglunum. „Þessar neglur kallast stiletto-neglur og hafa verið í tísku síðasta árið. Flestar fá sér slíka aðeins á eina nögl, og þá oft á nöglina á litla fingri.“ solveig@frettabladid.is Fagrir og fínlegir fingur Í Naglaskóla Snyrtiakademíunnar fer fram áhugavert starf. Þar læra nemendur að setja á gelneglur, mála þær og skreyta á listrænan hátt. Hjördís Lilja Reynisdóttir sýnir hvernig vel gerðar neglur eiga að líta út. Hjördís Lilja Reynisdóttir er kennari við Naglaskólann. Hún segir vinsældir gelnagla hafa aukist mjög síðustu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Allar þessar neglur eru úr smiðju Hjördísar. Listilega skreyttar neglur. Gelneglur með einkennismerki Nagla- skólans, hinu djúpa brosi. Svo eru tvær stiletto-neglur með skrauti. LITRIKIR SKÓR , sokkar, bakpokar og aðrir fylgi hlutir hafa verið áberandi á herratískuvikunni í Mílanó sem nú stendur yfir. Þar á meðal eru þessir bleiku skór sem gætu gefið fyrirheit um það sem koma skal. MATUR Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.