Fréttablaðið - 07.07.2009, Page 16
7. JÚLÍ 2009 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● golf
Um tvö hundruð manns koma
að framkvæmd Íslandsmótsins
í golfi sem fram fer á Grafar-
holtsvelli í lok mánaðarins.
„Þetta á að vera golfhátíð,“ segir
Margeir Vilhjálmsson, mótsstjóri
Íslandsmótsins í golfi. Íslands-
mótið í höggleik í golfi fer fram
á Grafarholtsvelli hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur dagana 23. til 26.
júlí. Margeir vonast eftir um 10
þúsund áhorfendum á mótið, sem
hann telur raunhæft markmið.
Hann bendir á að um 55 þúsund
manns spili golf samkvæmt ný-
legri könnun. Hann segir að gert
sé ráð fyrir að 200 manns komi
að framkvæmd mótsins; vallar-
starfsmenn auk fjölda sjálfboða-
liða.
Margeir segir að margvíslegar
uppákomur verði á svæðinu kring-
um Íslandsmótið. Æfingasvæðið
við Bása verði nýtt til hins ýtr-
asta og púttþrautir verði settar
upp. Auk þess sem keppt verður í
litlu sex holu Íslandsmóti á Grafar-
kotsvelli, sem er lítill æfingavöll-
ur við hlið Bása.
Margeir segir að hann sé í við-
ræðum við samstarfsaðila um að
hafa tvo risaskjái á vellinum til að
auðvelda áhorfendum að fylgjast
með gangi mála. Skor verði upp-
færð mjög reglulega og allt gert til
að auðvelda áhorfendum að fylgj-
ast með baráttu efstu manna.
„Ein af nýjungunum í kring-
um mótshaldið er að farið var í
samstarf við Samtök íslenskra
golf- og íþróttavallastarfsmanna
(SÍGÍ) um að vallarstarfsmenn
af öðrum völlum komi að undir-
búningi og framkvæmd móts-
ins,“ segir Margeir. Hann segir
að vallarstarfsmenn muni ganga
með um tíu ráshópum á tveimur
síðustu dögum mótsins og raka
sandgryfjur. Meðal annarra nýj-
unga má geta þess að til skoðunar
er að veita sérstök verðlaun fyrir
þá sem eru 18 til 21 árs auk þess
að veita viðurkenningu fyrir best-
an árangur þeirra sem eru með
hærra en þrjá í forgjöf.
Margeir segir að ekki hafi tek-
ist nægilega vel að draga að áhorf-
endur á Íslandsmótið undanfarin
ár. „Eftir að fyrirkomulagi Ís-
landsmótsins var breytt árið
2001 hefur áhorfendum fækkað til
muna,“ segir Margeir. Fyrir þann
tíma hafi mótið verið flokkaskipt
og allir flokkar nema þeir bestu
í kvenna og karlaflokki lokið leik
fyrir síðasta dag. Hann bendir á
að sá hópur sem lokið hafi leik
degi fyrr hafi skapað grunn að
þeim áhorfendum sem hafi komið
til að horfa á lokadag mótsins.
Margeir segir að besta auglýs-
ing fyrir íslenskt golf væri að fá
vallarmet í mótinu. Hann segir
að völlurinn verði settur upp með
þeim hætti að það ætti að vera
raunhæfur möguleiki. Þess má
geta að Birgir Leifur Hafþórsson
á núverandi vallarmet, 67 högg.
- bta
Vallarmet og tíu þúsund
áhorfendur er draumurinn
Margeir Vilhjálmsson á fyrsta teig á Grafarholtsvelli. Íslandsmótið í höggleik fer fram á þeim velli dagana 23. til 26 júlí. Vallar-
starfsmenn munu ganga með síðustu ráshópum tvo síðustu daga Íslandsmótsins til að raka sandgryfjur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Félagsgjöld Golfklúbbsins Tudda
fyrir árið 2009 eru þrjú hundruð
þúsund krónur. „Líklega eru þetta
frekar há gjöld, þó ég hafi ekki lagt
mig fram við að athuga nákvæm-
lega hvað þetta er í öðrum klúbb-
um,“ segir Bjarni Magnússon, for-
maður Golfklúbbsins Tudda. „Við
erum með frítt fyrir meðlimi sex-
tán ára og yngri.“
Félagsgjöld annarra golf-
klúbba virðast vera mun lægri og
til dæmis eru félagsgjöldin í Golf-
klúbbi Reykjavíkur 68.000, Golf-
klúbbi Akureyrar 51.000 og í Golf-
klúbbi Kópavogs og Garðabæjar
eru þau 69.000.
Bjarni segir ýmsar ástæður
liggja að baki því að félagsgjald-
ið sé svo hátt en vill þó ekki gefa
þær upp. „Þetta er svo sem ekki
eitthvert framtíðargjald sem við
ætlum að vera með en við höfum
fengið tvær umsóknir, sem er
meira heldur en við áttum von á.“
Golfklúbburinn Tuddi var stofn-
aður í desember síðastliðnum
og voru stofnfélagar tólf talsins.
Klúbburinn hefur aðstöðu í Úthlíð
á Suðurlandi.
Klúbburinn varð nýlega með-
limur Golfsambands Íslands en
samkvæmt upplýsingum þaðan
þá ber golfklúbbum ekki skylda
til að tilkynna hvert félagsgjaldið
er. „Bókhaldið er opið og við þurf-
um að birta reikninga einu sinni á
ári. Þetta er opið félag öllum þeim
sem eru tilbúnir að borga,“ segir
Bjarni. - mmf
Hæstu félagsgjöld landsins
Golfklúbburinn Tuddi hefur fengið tvær umsóknir, sem er meira en þeir áttu von á.
Hamri – 310 Borgarness
RÁSTÍMASKRÁNING
Mánud. – Fimmtud. Í síma 437-2000
Föstudaga - Sunnudaga í síma 437-1663.