Fréttablaðið - 12.08.2009, Page 2
2 12. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR
... í vinnuna
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
9
-0
3
6
3
Grétar Bragi, fáið þið nokkurn
lit í þessum göllum?
„Nei, ekki nokkurn einasta.“
Grétar Bragi Bragason er formaður
Litboltafélags Hafnarfjarðar, en sú íþrótt
gengur út á að skjóta skærlitum málning-
arkúlum í andstæðinginn.
EFNAHAGSMÁL Sérfræðingar Seðla-
banka Íslands telja vafasamt
sökum smæðar að Ísland geti tal-
ist hagkvæmt gjaldmiðlasvæði.
Engu að síður þurfi að finna leiðir
til að lagfæra það kerfi sem bank-
inn hafi starfað eftir þar sem óvíst
sé hvort og þá hvenær evran verði
tekin upp hér á landi. Þetta kemur
fram í samantekt Seðlabankans,
sem undirrituð er af Svein Harald
Øygard seðlabankastjóra.
Samantektin var unnin að beiðni
forsætisráðherra, sem óskaði eftir
því að sérfræðingar bankans færu
yfir kosti og galla þess að breyta
þeirri peningastefnu sem unnið
hefur verið eftir hér á landi frá
árinu 2001. Það ár var fljótandi
gengi tekið upp og Seðlabankan-
um sett það markmið að halda
verðbólgu undir 2,5 prósentum.
Það markmið hefur svo til aldrei
náðst frá því það var sett.
Í samantekt Seðlabankans
kemur fram að allar tilraunir til
missjálfstæðrar peningastefnu
allt frá því gengi krónunnar var
skilið frá gengi dönsku krónunnar
árið 1920 hafi leitt af sér rýrnun á
gengi krónunnar.
Ekki kemur þó til greina að
hverfa aftur til fastgengisstefn-
unnar, sem farið var eftir til ársins
2001, að mati sérfræðinga Seðla-
bankans. Því sé nauðsynlegt að
bankinn fái fleiri vopn í hendur til
að halda verðbólgunni í lágmarki,
enda ljóst að stýrivextirnir dugi
ekki einir og sér.
Setja mætti reglur sem skyldi
fjármálafyrirtæki til að hafa því
meira laust fé haldbært sem vöxt-
ur þeirra sé hraðari. Þá mætti fá
Seðlabankanum heimildir til að
ákveða hámark fasteignalána,
enda sé það hluti vandans að fólk
hafi getað fengið lánað frá áttatíu
prósentum fasteignaverðs upp í
níutíu og að lokum 100 prósent.
Þá þurfi stjórnvöld að leggjast
á árarnar með bankanum þegar
ástandið kalli á það, til dæmis með
því að fara ekki út í þensluhvetj-
andi framkvæmdir í uppsveiflu.
brjann@frettabladid.is
Sjálfstæður gjaldmið-
ill varla hagkvæmur
Vafasamt er að Ísland teljist hagkvæmt gjaldmiðlasvæði, að mati Seðlabanka
Íslands. Laga þarf verðbólgumarkmiðskerfið til þrátt fyrir að stefna eigi á upp-
töku evru. Seðlabankinn vill fleiri vopn í hendur til að framfylgja stefnu.
Of hraður vöxtur fjármálafyrirtækja
getur valdið því að eftirlitsstofnanir
eiga erfitt með að fylgja vextinum
eftir og sinna sínu eftirlitshlutverki.
Þetta kemur fram í samantekt
Seðlabanka Íslands.
Þar segir að samfara stækkun
íslensku fjármálafyrirtækjanna á
undanförnum árum hafi þau einnig
lagt áherslu á flókna fjármálagjörn-
inga. Eftirlitsstofnanir hafi einfald-
lega ekki haft næga reynslu til að
meta þá gjörninga.
Þá hafi reynst erfitt að hafa
eftirlit með flóknu neti alþjóðlegra
dótturfyrirtækja og eignarhalds án
viðamikillar alþjóðlegrar eftirlits-
starfsemi.
Seðlabankinn bendir einnig á
að eftirlitsstofnanir hafi ekki getað
keppt við fjármálafyrirtækin um
starfsfólk, enda fyrirtækin borgað
mun hærri laun en eftirlitsstofnan-
irnar.
OF FLÓKIÐ FYRIR EFTIRLITSSTOFNANIR
VÖXTUR Hraður vöxtur fjármálafyrirtækja torveldar eftirlit eftirlitsstofnana með
þeim, segir í samantekt Seðlabanka Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUMÁL Þriggja bíla árekst-
ur varð í Hvalfjarðargöngunum á
fimmta tímanum í gær. Ökumenn
bifreiðanna voru einir í öllum
þremur bílunum. Þeir voru allir
fluttir með sjúkrabílum frá slys-
staðnum, tveir þeirra á sjúkrahús
á Akranesi en einn til Reykjavík-
ur. Meiðsl þeirra eru minni hátt-
ar að sögn lögreglu.
Hreinsunarstarf tók rúmlega
tvær klukkustundir. Göngunum
var lokað á meðan og var umferð
beint á veginn um Hvalfjörð. - shá
Óhapp í Hvalfjarðargöngum:
Þrír ökumenn
á sjúkrahús
LÖGREGLUMÁL Ungur maður
brenndist illa í vinnuslysi í álver-
inu á Grundartanga seint í fyrra-
kvöld. Hann var fluttur með
sjúkrabíl á spítala í Reykjavík
þar sem hann liggur nú.
Lögreglunni í Borgarnesi barst
tilkynning um slysið klukk-
an rúmlega ellefu. Svo virðist
sem maðurinn hafi runnið til og
brennt sig á heitri deiglu. Í til-
kynningu frá Norðuráli kemur
fram að slysið hafi orðið við
skautskipti. Maðurinn, sem er
fæddur árið 1987, er með annars
og þriðja stigs brunasár á báðum
fótum fyrir neðan hné. Norðurál
rannsakar tildrög slyssins í sam-
vinnu við Vinnueftirlitið. - sh
Vinnuslys á Grundartanga:
Brenndist illa á
báðum fótum
Á GRUNDARTANGA Maðurinn rann á
deiglu og brenndist.
FRÉTTABLAÐIÐ / JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
FERÐAMÁL Metaðsókn var í Breiðafjarðarferj-
una Baldur í júlí en um nítján þúsund farþegar
og um fjögur þúsund bílar fóru með ferjunni. Á
sama tíma í fyrra sigldu rúmlega fimmtán þúsund
manns með ferjunni og um 3.500 bílar.
„Það hefur borið meira á Íslendingum í ár en
áður en útlendingum hefur einnig fjölgað. Ég held
að það sé bara jöfn skiptingin hjá þeim,“ segir
Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða.
„Það hefur verið aukning í Baldur allt árið. Ég
held að það sé átta prósenta aukning það sem af
er ári.“
Á sumrin fer Baldur tvær ferðir á dag en eina
yfir vetrartímann. „Eftir að við skiptum um ferju
2006 þá hefur verið allt annar bragur á þessu.
Ferjan hefur verið notuð miklu meira af íbúum á
suðurfjörðunum og við erum að flytja stóran hluta
af þungavélum, til dæmis flutningabíla,“ segir
Pétur, sem jafnframt gegnir hlutverki skipstjóra
hjá Sæferðum. „Síðustu árin sem gamla ferjan
var notuð voru þetta 28 til 30 þúsund manns á ári
en nú stefnir þetta í 55 til 60 þúsund.”
Pétur segir einnig að met hafi verið sett í fjölda
ferðamanna sem heimsóttu Flatey. Í fyrra voru
þeir um ellefu þúsund en nú eru þeir tólf til fjór-
tán þúsund. - kh
Metaðsókn var í Breiðafjarðarferjuna Baldur í síðasta mánuði:
Nítján þúsund sigldu með Baldri
BALDUR Aldrei hafa jafn margir siglt með Baldri og í júlímán-
uði. Aðsóknin í Baldur hefur aukist til muna í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMFÉLAGSMÁL Rauði kross Íslands
setur upp fangaklefa á Lækjar-
torgi í dag milli klukkan 12 og 14.
Fangaklefinn verður settur upp
til þess að minnast þess að 60 ár
eru í dag frá því að Genfarsamn-
ingarnir voru gerðir. Þar verður
hægt að giska á fjölda fanga sem
að jafnaði gista í sambærileg-
um klefum í fangelsum í Rúanda.
Genfarsamningarnir hafa það
markmið að draga úr óhugnaði
stríðsátaka og tryggja lágmarks
mannréttindi á ófriðartímum. - þeb
Rauði kross Íslands:
Setja fangaklefa
á Lækjartorg
DÓMSMÁL Utanríkisráðuneyt-
ið getur ekkert aðhafst í máli
Borghildar Guðmundsdóttur,
sem hefur verið gert að halda til
Bandaríkjanna með syni sína tvo.
Þetta segir Kristín Árnadóttir,
sviðsstjóri í ráðuneytinu.
Borghildur leitaði liðsinnis
ráðuneytisins vegna málsins en
var vísað áfram til dómsmála-
ráðuneytisins, úr því að íslensk-
ir dómstólar höfðu þegar dæmt
henni í óhag.
Kristín bendir hins vegar á að
almennt aðstoði sendiráð og ræð-
ismenn Íslendinga ef þeir lenda í
kröggum erlendis og veiti þeim að
minnsta kosti ráðgjöf.
Héraðsdómur úrskurðaði að
Borghildur
skyldi fara með
syni sína tvo til
Bandaríkjanna
á sun nudag
þar sem faðir
drengjanna vill
höfða forræðis-
mál þar ytra.
Hæstiréttur
staðfesti þann
úrskurð fyrir
viku.
Borghildur segir viðbúið að hún
þurfi að skilja syni sína eftir hjá
manninum, enda hafi hún hvorki
atvinnu- né dvalarleyfi í Banda-
ríkjunum og megi því ekki vera
þar lengur en í þrjá mánuði. Hins
vegar muni málið líklega taka
mun lengri tíma. Hún segist hins
vegar ekki geta hugsað sér að
skilja börnin eftir hjá föðurnum,
enda hafi hann ekki séð börnin í
hálft annað ár.
Borghildur fékk í gær lögfræð-
ing í Bandaríkjunum. „Ég á pant-
aðan tíma þar á mánudaginn
klukkan eitt.“ Hún segist þurfa
að vinna með það í huga að vera
á leiðinni út fyrir sunnudag, þó
hún vonist enn til þess að það geti
breyst. Hún segir þann stuðning
sem henni hefur verið sýndur
ómetanlegan. „Það eru ekki til orð
til að lýsa því hversu þakklát ég
er. Þetta er það sem heldur manni
gangandi.“ - sh/þeb
Borghildur Guðmundsdóttir komin með lögfræðing í Bandaríkjunum:
Málið úr höndum utanríkisráðuneytis
BORGHILDUR GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
BRETLAND Breski kötturinn Hugo
er hetja í Berkshire eftir að hann
bjargaði nágranna sínum úr elds-
voða á dögunum.
Maðurinn, Andrew Williams,
var sofandi í húsi sínu þegar eld-
urinn braust út. Hugo varð var
við eldinn og skreið inn um katta-
lúgu á húsinu. Hann fann Andrew
sofandi, settist ofan á hann og
klóraði hann í andlitið þar til
hann vaknaði. Andrew hafði
verið að gera við húsið og því
fært reykskynjara til, svo þeir
vöruðu hann ekki við eldinum.
Slökkviliðsstjórinn í Berkshire
segir köttinn hetju, og að hann
hafi bjargað lífi Andrews. - þeb
Eldsvoði í Bretlandi:
Köttur bjargaði
manni úr eldi
Þrjú innbrot á stuttum tíma
Þrjú innbrot voru tilkynnt til lögreglu
seinni partinn í gær. Brotist var inn í
íbúðarhús í Fossvogi, inn í sumarbú-
stað Brynjudal og einnig inn í bifreið
í Reykjavík. Lítið var tekið af verð-
mætum, að sögn lögreglu. Málin eru
óupplýst enda rannsókn stutt á veg
komin í gærkvöldi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Fótbrotin á Fimmvörðuhálsi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send
á Fimmvörðuháls klukkan tíu í gær-
kvöldi til að sækja konu sem hafði
fótbrotnað. Að sögn Vaktstöðvar var
ekki um alvarlegt fótbrot að ræða.
LANDHELGISGÆSLAN
Tekinn þrisvar fyrir
fíkniefnaakstur
Lögreglan á Akureyri tók ökumann
bifreiðar fyrir fíkniefnaakstur seinni
partinn í gær. Sami ökumaður var
tekinn fyrir sömu sakir í fyrradag og
reyndar einnig fyrir rúmri viku.
Stunginn til bana af nauti
Sænskur maður lét lífið eftir að naut
réðst á hann og stakk hann á bónda-
býli í suðurhluta Svíþjóðar í gærdag.
Sjúkrabíll var kallaður á staðinn um
miðjan dag í gær en ekki reyndist
unnt að bjarga manninum.
SVÍÞJÓÐ
SPURNING DAGSINS