Fréttablaðið - 12.08.2009, Page 6

Fréttablaðið - 12.08.2009, Page 6
6 12. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR SJÁVARÚTVEGSMÁL Umfangs- mestu rannsóknir á makríl- göngum á hafsvæðinu við Ísland og á Norður-Atlantshafi eru langt komnar. Rannsóknirnar eru tilkomnar vegna deilna um útbreiðslu makríls hér við land og rétt Íslendinga til veiða úr stofnin- um. Niður staða þeirra mun liggja fyrir í september en ljóst er að mikið er af makríl víða í íslensku lögsögunni. Íslensku uppsjávar- veiðiskipin, sem eru við veiðar á norsk-íslenskri síld á Austfjarða- miðum, hrökklast sífellt norðar undan makríltorfunum. Jón Bjarnason sjávarútvegsráð- herra gaf út reglugerð í júlí um bann við beinum makrílveiðum þar sem 112 þúsund tonna kvóti Íslendinga var þá langt kominn. Ástæðan var sú að nauðsynlegt er að halda eftir hluta kvótans sem veiðist sem meðafli í veiðum á síld. Þetta er til marks um hversu mikill makríll er á miðunum. Alls koma fimm rannsóknaskip frá Noregi, Færeyjum og Íslandi að rannsókninni. Svæðið sem kannað er nær frá hafsvæðinu við Svalbarða austur í norsku lög- söguna og suður undir Færeyjar. Þá eru makrílgöngurnar kannað- ar víðast hvar innan íslensku fisk- veiðilögsögunnar. Þorsteinn Sigurðsson, sviðs- stjóri nytjastofnasviðs Hafrann- sóknastofnunarinnar, segir að rannsóknirnar nú séu þær lang- viðamestu sem nokkru sinni hefur verið lagt í, og staðfestir að makr- íll hafi fundist á öllu því svæði sem íslenska hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur rannsak- að að undanförnu. Skipið hefur kannað stórt svæði fyrir Suður- og Vesturlandi. „Okkar gögn verða sameinuð við gögn frá Norðmönn- um og Færeyingum þegar okkar rannsóknir eru búnar. Þá fáum við vitneskju um dreifinguna.“ Tilurð rannsóknarinnar nú er tvíþætt. Líffræðilega er nauðsyn- legt að fá upplýsingar um makríl- göngurnar en einnig er ágreining- ur um skiptingu á makrílkvóta. „Við vitum hvar makríllinn er á vorin við hrygningu en ágrein- ingurinn er um hvernig hann er að dreifa sér í Norður-Atlantshafi yfir sumarið,“ segir Þorsteinn. Íslenskir útvegsmenn kosta jafn- framt leiðangur Hoffells SU 80 frá Fáskrúðsfirði. Páll Rúnarsson skipstjóri segir að vart hafi orðið við makríl bæði djúpt og grunnt suðaustur af landinu. Nú berast fréttir af því að upp- sjávarskipin sem stunda síldveiðar fyrir austan hafi hrökklast djúpt norður fyrir land vegna of hás hlutfalls makríls í síldar aflanum. svavar@frettabladid.is Makríllinn dreifður um alla lögsöguna Viðamesta rannsókn sem gerð hefur verið á makrílgöngum er að ljúka. Makríll virðist vera dreifður um alla fiskveiðilögsöguna. Tilurðin er deilur um dreifingu og veiðirétt. Íslensku skipin flýja makrílgöngur fyrir austan landið. INGUNN AK Ingunn, sem er í eigu HB Granda, er eitt þeirra skipa sem hafa þurft að færa sig sífellt norðar á síldarmiðunum vegna makrílgangna. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR Stjórn makrílveiða er í tveimur þrepum; annars vegar byggir hún á strand- ríkjasamningi sem nær til lögsagna strandríkja og hins vegar á stjórnun sem samþykkt er á vettvangi Norðaustur-Atlantshafs-fiskveiðinefndarinnar (NEAFC) sem nær til úthafsins. Frá því að stjórn makrílveiða hófst innan NEAFC hafa íslensk stjórnvöld alla tíð krafist viðurkenningar sem strandríki að makrílstofninum og þar með þátttöku í samningaviðræðum um veiðar. Lengst af var ekki tekið undir þá kröfu og Íslandi haldið utan við samningaviðræður. Undanfarin ár hafa hin strandríkin dregið í efa magn makríls innan íslensku lögsögunnar og talið að íslensk stjórnvöld þurfi að sanna með afgerandi hætti að makríl sé að finna þar í verulega veiðanlegu magni. Allur makrílafli íslenskra skipa í ár hefur veiðst innan íslensku fiskveiðilögsögunnar. MAKRÍLVEIÐAR Í NORÐUR-ATLANTSHAFI TÓKÝÓ, AP Einn lést og tugir slös- uðust í Japan eftir að tveir öflugir jarðskjálftar riðu yfir Asíu snemma á þriðjudagsmorgun. Íbúar við Indlandshaf hlupu út úr húsum sínum í skelfingu, minnug- ir flóðbylgjunnar gríðarlegu sem gekk yfir svæðið árið 2004. Þá fór- ust 230 þúsund manns í kjölfar jarð- skjálfta af stærðinni níu á Richter. Í þetta sinn mældist fyrri skjálftinn 7,6 á Richter en sá síðari, sem gekk yfir borgina Tókýó og nærliggjandi svæði, mældist 6,5 á Richter. Gefin var út flóðbylgjuviðvör- un á Indlandi, Búrma, Indónesíu, Taílandi og Bangladess en hún var síðar dregin til baka af stjórnvöld- um. Hin látna var 43 ára kona sem lenti undir braki. Auk hennar slös- uðust að minnsta kosti 63. Jafn- framt er talið að yfir áttatíu manns hafi hlotið minni háttar meiðsli. Tveir kjarnaofnar í Hamaoka- kjarnorkuverinu í Japan stöðvuðust tímabundið vegna skjálftans. Slíkt gerist sjálfkrafa við jarðskjálfta af ákveðinni stærð. Jarðskjálftar eru afar tíðir í Japan og hafa sérfræðingar sagt að níutíu prósenta líkur séu á því að risastór skjálfti ríði yfir Tókýó einhvern tímann á næstu fimm- tíu árum. Árið 1995 létust 6.400 manns eftir að jarðskjálfti upp á 7,2 á Richter skók japönsku hafnar- borgina Kobe. - fb Einn lést og tugir slösuðust í tveimur jarðskjálftum sem riðu yfir Asíu: Hlupu út af ótta við flóðbylgju VEGUR Í SUNDUR Masakatsu Sakabe rannsakar veg sem brotnaði í sundur eftir jarðskjálftann sem reið yfir Japan. M YN D /A P Ætlar þú í berjamó í haust? 57,3% Já 42,7% Nei SPURNING DAGSINS Í DAG: Eiga garðyrkjubændur að fá niðurgreitt rafmagn til fram- leiðslu sinnar? Segðu skoðun þína á visir.is TAÍVAN, AP. Taívanski herinn bjargaði um þrjú hundruð manns í nágrenni Shiao Lin í gær. Aur- skriða féll yfir þorpið og nær- liggjandi sveitir í kjölfar flóðs af völdum fellibylsins Morakot. . Yfirvöld í Taívan staðfesta að fimmtíu manns hafa látist og fimmtíu og átta er saknað að ótöldum þeim sem innilokað- ir eru í Shiao Lin og hafa beðið hjálpar síðan á sunnudag. Aðgengi hersins að svæðinu er mjög takmarkað. Slökkviliðið telur að um hundrað manns hafi grafist undir aurskriðunni en þeir íbúar sem bjargað var segja töluna mun hærri, eða allt að sex hundruð manns. - kbs Aurskriða grefur hundruð: Fimmtíu fallnir VEÐUR Mikið blíðskaparveður var víða á landinu í gær, og sólin skein skært í miðborg Reykjavíkur. Ljós- myndari Fréttablaðsins átti leið hjá Bæjarins bestu í Tryggvagötu og var ekki að sjá að gestir sem biðu þar létu það nokkuð á sig fá í góða veðrinu. Veður á að vera áfram gott í dag, bjart sunnan- og vestanlands en skýjað að mestu norðan- og aust- anlands. Á morgun og föstudag er gert ráð fyrir hægviðri og hita á milli 10 og 16 stiga, með smáskúr- um. Um helgina er gert ráð fyrir svipuðum hita og vætu víða um land, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. - þeb Gott veður var víða um land í gær, en búist er við vætu þegar nær dregur helgi: Áfram verður hlýtt á landinu BLÍÐVIÐRI Í BORGINNI Gott veður var í miðborg Reykjavíkur í gær og þeir sem biðu eftir pylsu á Bæjarins bestu nutu veðurblíðunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.