Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.08.2009, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 12.08.2009, Qupperneq 24
 12. ÁGÚST 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● mitsubishi rally Árið 1980 var fyrsta alþjóðrall- ið á Íslandi haldið. Þá var Ísland aftur orðið félagi í alþjóða aksturs- íþróttasamtökunum, FIA. Til þess að gera keppnina al- þjóðlega komu hingað keppendur frá Noregi og skemmst er frá því að segja að þeir Finn Ryhl Ander- sen og Jan Johansson sigruðu. Í gegnum tíðina hafa ávallt verið er- lendir keppendur, en þeir hafa ekki haft erindi sem erfiði, hafa einung- is sigrað þrisvar sinnum. Keppnin hefur gegnum tíðina verið stærsta rallkeppni keppnis- ársins og náð yfir tvo til fjóra daga, eftir því hvernig skipulagið hefur verið. Í tæpan áratug hefur keppnin komist í það form sem þessi þrítugasta keppni er. Stutt- ur dagur til að hrista hrollinn úr keppendum. Næsti dagur lang- ur og krefjandi, ekki aðeins fyrir keppendur heldur einnig bifreið- ar. Síðasti dagurinn sem hefur svo verið nógu langur til að keppendur geti unnið sig upp. Keppnin var upphaflega ætluð sem útrás íslenskra vega í alþjóð- legar aksturskeppnir. Sú útrás fór hægt af stað, en hefur haldið sínu striki í gegnum árin. Svo skrýtið sem það er nú, þá vilja útlendingar koma hingað og aka þessa gömlu malarvegi okkar. Það er ævintýri að geta gert það og um leið njóta allra þeirra þæginda sem nútíma Ísland býður upp á. Við óskum afmælisbarninu alls hins besta með von um glæsta framtíð. Tryggvi M. Þórðarson Íslenskir íþróttamenn hafa á flestum sviðum staðið sig von- um framar á erlendri grundu undanfarið ár. Akstursíþrótta- menn eru þar engin undan- tekning og skarta Íslendingar nokkrum öflugum keppend- um í mismunandi greinum akstursíþrótta sem allir eiga það sameiginlegt að hafa náð eftirtektarverðum árangri undanfarin misseri. Íslandsmeistarinn í rallý, Daní- el Sigurðsson, hefur verið iðinn að keppa í Bretlandi undanfarin ár. Hann hefur frá upphafi keppt á Mitsubishi Lancer-bifreiðum og hefur árangur hans, áræði og hraði vakið athygli, svo mikla að keppnislið Mitsubishi í Bresku meistarakeppninni gerði samn- ing við hann í vor um þróun á nýj- asta keppnisbíl sínum, hinum stór- glæsilega Lancer Evolution X. Daníel hefur keppt í fjórum keppnum á nýja bílnum og má með sanni segja að þróun bíls- ins hafi gengið vonum framar og hraðinn verið stigvaxandi frá upp- hafi. Bíllinn er smíðaður af SJR Motorsport í Wales og hefur Stu- art Jones, fyrrverandi keppandi úr heimsmeistarakeppninni í rallý, átt veg og vanda að smíði bílsins, en hann mun einmitt fá að aka bíl Daníels í fyrsta sinn í Alþjóðarall- inu um næstu helgi. Þessi nýjasta afurð Mitsubishi í Evolution-flórunni er gjörbreytt frá forvera sínum. Munar þar mestu um stórbættan mótor, aukna slaglengd fjöðrunarkerfis og lægri þyngdarpunkt, allt hlutir sem skipta gríðar- miklu máli í keppnisakstri. Mitsubishi, s e m h e f u r hampað heims- meistaratitlum ítrekað í rall- akstri, tókst það sem flestir töldu ógjörning. Það er að gera bíl sem er hraðskreiðari en níunda gerð Evolution. Sá bíll hefur hampað meistaratitlum úti um allan heim og er sannarlega vinsælasti og sigursælasti fjölda- framleiddi rallýbíllinn frá upp- hafi. Frumraun Daníels á bifreiðinni var önnur umferð Bresku meist- arakeppninnar, Pirelli rallið. Þar mætti hann öllum bestu ökumönn- um Bretlands og skilaði bílnum í mark í sjöunda sæti, sem var framar öllum vonum. Í annarri keppninni sannaðist að hraði bílsins var engin tilvilj- un. Fimmta sætið var ásættanlegt eftir akstursmistök og tilraunir á bílnum. Þriðja keppnin, Mid Wales Stages, undirstrikaði endanlega geysilega hraðar framfarir á bíln- um og háði Daníel harða baráttu um sigur í heildarkeppninni, en varð að láta sér annað sætið lynda, sex sekúndum frá sigri. Hraði Mitsubishi Lancer Evolution X var staðreynd, einnig sigur í flokki óbreyttra bíla tæpum þrem mín- útum á undan næstu bifreið, sem skelfdi marga. Fjórða keppnin var haldin seinni part júlí. Strax frá upphafi leiddi okkar maður keppnina og sýndi ókrýndum Mitsubishi Evo- Challenge meistara 2009, Dani- el Barry, klærnar frá upphafi til enda. Ótrúlegur akstur á síðustu sérleið tryggði Barry 1,1 sekúndu sigur, eftir baráttu í rúmar 50 mínútur. Við þetta tækifæri sagði Barry: „Mitsubishi Lancer Evolu- tion X er fljótasti óbreytti bíllinn í dag,“ enda þurfi hann á öllu sínu að halda til að landa sigrinum. Þorgerður Gunnarsdóttir Ritstjóri: Elvar Örn Reynisson l Ábyrgðarmaður: Jón Þór Jónsson Bifreiða- íþróttaklúbbur Reykjavíkur l Heimasíða: www.bikr.is l Tölvupóstfang: bikrsport@ gmail.com l Heimilisfang: Engjavegur 6, 108 Reykjavík Hilmar B. Þráinsson er ökumaður sem hefur mikla reynslu af rallakstri. Hann hefur keppt í öllum flokkum á 12 ára ferli, varð Íslandsmeistari í jeppaflokki árið 2007 og í nýliðaflokki árið 2004. Uppáhalds sérleiðin hans er Mælifellsdalur og besta minn- ingin er hans fyrsta keppni sem aðstoðarökumaður hjá Fjölni Þorgeirssyni. Í ár ákvað hann að keppa í 2000 flokki með aðstoðarökumanninum, Stefáni Þór Jónsyni, og varð Honda Civic fyrir valinu. Hilmar keppti einnig á sama bíl í rallý- krossi í sumar en til að spara rallýbílinn tók hann sig til á miðju tíma- bili og smíðaði annan sérstaklega fyrir rallý- krossið. Það lá því bein- ast við að spyrja út í smíði á rallýbíl. „Búið er að smíða í hann veltibúr samkvæmt reglum, setja körfustóla, fjögurra punkta belti og setja hlífðar- pönnur til að verja undirvagninn, bremsur eru uppfærðar lít- illega en að mestu leyti er hann annars óbreyttur samkvæmt reglum sem gilda í 2000 flokki,“ segir Hilmar og heldur áfram: „Rallý er mjög krefjandi og skemmtileg íþrótt, þarna er verið að teygja sig út á ystu mörk getunnar og það má ekkert klikka, þetta reynir mikið á bæði menn og bíla.“ - eör Það má ekkert klikka Hilmar B. Þráinsson keppir í 2000 flokki með aðstoðarökumanninum Stefáni Þór Jónssyni. MYND/ELVAR Alþjóðarall í þrjátíu ár Rásmark Rallý Reykjavík árið 2008. MYND/ELVAR Meðlimir úr breska flughernum tóku þátt í keppninni í fyrra á forláta Willy‘s-jeppum. MYND/ELVAR Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur var stofnaður árið 1977, og hefur í gegnum árin verið vettvangur fólks með áhuga á aksturs- íþróttum. Í seinni tíð hefur starfið að mestu snúist um rallý og er nú svo komið að BÍKR heldur 4 til 5 af þeim 6 keppnum sem mynda Íslandsmótið í rallý. Hið alþjóðlega Mitsubishi Rally Reykjavík verður einmitt haldið dagana 13.-15. ágúst og er því mikið um dýrðir hjá fé- lagsmönnum okkar á næstu dögum. Það eru ekki einungis keppendur sem eru uppistaða meðlima BÍKR. Akstursíþróttamenn eru fjölbreyttur hópur af fólki af báðum kynjum svo sem starfsmenn keppnisstjórnar, aðstoð- ar- og viðgerðarfólk. Gera má ráð fyrir að í hverri keppni séu um 200 manns í margvíslegum hlutverkum. Ef það blundar í þér akstursíþróttamaður, lesandi góður, settu þig þá í samband við klúbbinn í gegnum heimasíðu okkar www.bikr.is eða komdu á sýninguna okkar sem nú stendur yfir í Perlunni. Öllum áhuga- mönnum um íslenskt mótorsport óska ég gleðilegrar hátíðar og keppendum velgengni í rallinu um helgina. Jón Þór Jónsson , formaður BÍKR Kveðja formanns Daníel Sigurðsson hefur frá upphafi keppt á Mitshubishi Lancer. Daníel Sigurðsson, Íslandsmeistari í rallý. Útrásin í fullum gangi Á miðju sumri lést Hjalti Hafsteinsson, langt fyrir aldur fram. Áhugamál hans lágu víða, skoðanir hans og sjónarhorn á samtímann, íþróttir eða listir var á stundum það sem ekki var almennt notað, en hann kom því skilmerki- lega til skila á sinn rólega og yfirvegaða hátt. Hann var tengiliður keppenda í alþjóðarall- inu frá árinu 1992 og reyndist í því starfi afar farsæll. Þar kom afar yfirgripsmikil þekk- ing hans á regluverki akstursíþrótta að góðum notum. Eins og í öðrum íþróttagreinum vill keppnishiti oft blinda, en honum var einstaklega lagið að opna leiðina að sátt sem allir gátu stað- ið við. Hann var gangandi alfræðibók um akstursleiðir og tíma er til þurfti til að aka. Fyrir um tíu árum ræddum við yfir kaffibolla hugsanlega keppni fornbíla og dagleiðir. Síðastliðið haust varð þessi akstur að veruleika, í nokkuð óbreyttri mynd frá upphaf- legu tillögunni. Er akstursíþróttafélag hennar konunglegu bresku hátignar kom hingað fyrst fyrir um fjórtán árum sótti hann félaga þess út á flugvöll og skilaði þangað aftur að keppni lokinni. Þeir minnast hans nú í ár með því að aka með sérstaka minningar- skildi á bifreiðum sínum, honum til heiðurs. Skyndilegt brottfall er ávallt þungbært. Við viljum minnast Hjalta E. Hafsteinssonar fyrir þær góðu stundir sem við áttum með honum, því minningarnar lifa jú að eilífu. Tryggvi M. Þórðarson MINNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.