Fréttablaðið - 12.08.2009, Síða 42
26 12. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Baldur Sigurðsson var
í gær kallaður í íslenska lands-
liðshópinn sem mætir Slóvakíu í
kvöld. Ragnar Sigurðsson, leik-
maður IFK Gautaborgar í Sví-
þjóð, forfallaðist vegna veikinda.
Baldur hefur leikið vel með KR
í Pepsi-deildinni í sumar og er
meðal markahæstu leikmönnum
deildarinnar með sjö mörk. Hann
á að baki nokkra leiki með yngri
landsliðum Íslands. - esá
Íslenski landsliðshópurinn:
Baldur í stað
Ragnars
BALDUR SIGURÐSSON Valinn í íslenska
landsliðið í fjarveru Ragnars Sigurðsson-
ar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> U-21 árs landslið karla mætir Tékkum
Íslenska U-21 árs landslið karla í fótbolta mætir Tékk-
landi í undankeppni EM 2011 í dag kl. 15.30 og fer
leikurinn fram á KR-velli. Þetta er fyrsti
leikur íslenska liðsins í undankeppninni
og fyrsti „alvöru“ leikur landsliðsþjálfar-
ans Eyjólfs Sverrissonar eftir að hann
tók við liðinu á nýjan leik. Tékkar hafa
þegar spilað einn leik í riðlinum en
liðið vann þá 0-8 útisigur gegn
San Marínó og því má búast
við erfiðum leik fyrir íslensku
strákana.
Landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson hefur þurft að gera
fjórar breytingar á landsliðshópi sínum fyrir vináttulandsleik-
inn gegn Slóvakíu á Laugardalsvelli kl. 19 í kvöld vegna
meiðsla og veikinda leikmanna. Ólafur er þó hvergi bang-
inn; segir þá leikmenn sem eftir standi vel á sig komna
og vonast eftir jákvæðum úrslitum úr leiknum.
„Eins og oft þegar hópurinn er valinn tínist einn
og tveir leikmenn úr vegna meiðsla. Það er ekkert
óeðlilegt og við bregðumst bara við því. Standið á
leikmannahópnum í heild sinni er bara nokkuð
gott þó svo að leikmennirnir séu vissulega á
mismunandi róli í þjálfun sinni þar sem
sumir eru á miðju leiktímabili en aðrir
að klára undirbúningstímabil með
félögum sínum. Þessi leikur gegn
Slóvakíu verður annars svona
prufuleikur fyrir leikinn gegn
Noregi í undankeppni HM og við
munum leggja hann upp þannig.
Við förum í leikinn til þess að vinna hann og munum eflaust
leggja mikla áherslu á varnar leikinn til þess að reyna að
fá jákvæð úrslit út úr þessu. Það verður svo vonandi til
þess að efla sjálfstraust leikmannanna fyrir Noregs-
leikinn,“ segir Ólafur en íslenska landsliðið er nú búið
að tapa fjórum leikjum í röð, þremur í undankeppn-
inni og einum vináttulandsleik.
Ólafur viðurkennir að staða íslenska liðsins sé ekki
góð í undankeppninni og sé vitanlega búin að valda
honum þó nokkrum vonbrigðum.
„Við höfum satt best að segja ekki fengið þau úrslit
út úr leikjum okkar upp á síðkastið sem við vorum að
vonast eftir. Það verður bara að segjast eins og er.
Hverju það er að kenna er erfitt að segja en það
er nokkuð sem við verðum að halda áfram að
reyna að kryfja. Því er ekki að neita að Skotaleik-
irnir standa upp úr í þessu samhengi og það
brennur að hafa ekki fengið eitt einasta stig úr
viðureignum okkar við þá,“ segir Ólafur.
ÓLAFUR JÓHANNESSON: VONAST EFTIR JÁKVÆÐUM ÚRSLITUM ÞEGAR ÍSLAND MÆTIR SLÓVAKÍU Í KVÖLD
Þurfum að ná upp sjálfstrausti fyrir Noregsleikinn
Pepsi-deild kvenna
Valur-Fylkir 2-0
1-0 Rakel Logadóttir (6.), 2-0 Kristín Ýr Bjarna-
dóttir (21.).
Þór/KA-Stjarnan 1-1
1-0 Rakel Hönnudóttir (14.), 1-1 Inga Birna
Friðjónsdóttir (81.).
Breiðablik-KR 0-0
GRV-Keflavík 7-0
ÍR-Afturelding/Fjölnir 4-3
STAÐAN Í DEILDINNI
1. Valur 15 11 2 2 69-17 35
2. Breiðablik 15 10 3 2 45-11 33
3. Stjarnan 15 10 3 2 39-12 33
4. Þór/KA 15 9 3 3 47-24 30
5. Fylkir 15 6 5 4 41-24 23
6. KR 15 6 2 7 29-19 20
7. GRV 15 5 0 10 16-46 15
8. Afture/Fjöln 15 4 2 9 22-34 14
9. ÍR 15 15 3 10 15-58 11
10. Keflavík 15 15 0 0 6-84 0
ÚRSLIT OG STAÐA
HANDBOLTI Strákarnir í U-21 árs
landsliði Íslands í handbolta unnu
35-23 sigur gegn Katar í lokaleik
undanriðils síns á HM í Egypta-
landi en fyrir var ljóst að Ísland
kæmist ekki áfram í milliriðil.
Ísland keppir þess í stað um 13.-
16. sæti á fimmtudag og föstu-
dag. Ólafur Gústavsson
var atkvæðamestur
íslensku strákanna
gegn Katar með 9
mörk. - óþ
HM U-21 árs landsliða:
Ísland keppir
um 13.-16. sæti
HEIMIR RÍKARÐS-
SON Landsliðs-
þjálfarinn
hafði sett
stefnuna á
milliriðil á
HM.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
KÖRFUBOLTI Síðari hluti riðlakeppn-
innar í B-deild Evrópumeistara-
móts kvenna fer fram á næstu
vikum og mun íslenska landsliðið á
þeim tíma leika fimm síðustu leiki
sína í riðlinum. Fyrri hluti keppn-
innar fór fram í fyrra og þá vann
Ísland einn af fimm leikjum.
Síðan þá hefur nýr landsliðs-
þjálfari, Henning Henningsson,
tekið við liðinu og setur hann lið-
inu það markmið að vinna þrjá af
þeim fimm leikjum sem eru fram-
undan. Hann valdi í gær tólf leik-
menn fyrir landsleikinn gegn Sviss
á laugardaginn.
„Ég tel það raunhæft markmið,“
sagði Henning. „Við ætlum að
vinna bæði Sviss og Írland og stela
svo einum sigri af annað hvort Hol-
landi eða Slóveníu. Auðvitað förum
við í hvern leik til þess að reyna að
vinna hann en við vitum að Svart-
fjallaland er með mjög sterkt lið.“
Eini sigurleikur Íslands í keppn-
inni til þessa kom gegn Sviss á
heimavelli í fyrra en liðin mætast
nú ytra.
Leikið verður á 3-4 daga fresti
eftir það og Ísland mætir Hollandi
á miðvikudaginn og svo Slóven-
um ytra um aðra helgi. Törninni
lýkur svo með tveimur heimaleikj-
um, fyrst gegn Írlandi og þá gegn
Svartfjallalandi.
Henning segir það ekki hafa
verið erfitt að koma í starf lands-
liðsþjálfara í hálfnuðu verkefni.
„Það er markmið allra þjálfara
að fá að þjálfa landsliðið og þetta
hefur verið mjög skemmtilegur
tími. Þessar stelpur eru miklir
fagmenn og tóku á málunum sem
slíkir. Ég þekkti þær þó allar
vel og hef þjálfað margar þeirra
áður.“
Hann segir þó framhaldið hjá
sér óráðið en samningur hans við
KKÍ rennur út að landsleikjatörn-
inni lokinni.
„Það er ekki undir mér komið að
ákveða framhaldið. Ég mun setjast
niður með forráðamönnum sam-
bandsins þegar törninni lýkur og
þá verður framhaldið ákveðið.“
Hann segir þó framtíð landsliðs-
ins bjarta. „Ég á ekki von á öðru en
að það verði keyrt áfram á sama
mannskap næstu árin enda liðið
ungt og ef til vill ekki nema 2-3
leikmenn sem munu hætta í lands-
liðinu á næstu misserum.“
Leikurinn í Sviss hefst klukkan
16 að íslenskum tíma á laugardag-
inn kemur. - esá
Henning Henningsson landsliðsþjálfari í körfubolta valdi tólf manna landsliðshóp fyrir leik gegn Sviss:
Markmið að vinna þrjá af fimm leikjum
HÓPURINN TILKYNNTUR Henning Henningsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi
KKÍ í gær ásamt Hannesi Jónssyni, formanni KKÍ, og leikmönnunum Signýju Her-
mannsdóttur og Helenu Sverrisdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ
sem mætir Sviss á laugardaginn
Signý Hermannsdóttir KR
Hafrún Hálfdánardóttir Hamar
Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík
Ragna M. Brynjarsdóttir Haukar
Guðrún Ósk Ámundadóttir Haukar
Telma Björk Fjalarsdóttir Haukar
Hildur Sigurðardóttir KR
Birna Valgarðsdóttir Keflavík
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir Hamar
Kristrún Sigurjónsdóttir Hamar
Helena Sverrisdóttir TCU
María Ben Erlingsdóttir UTPA
FÓTBOLTI Valur hefur tveggja stiga
forskot á Breiðablik og Stjörnuna
eftir leiki gærkvöldsins í Pepsi-
deild kvenna.
Íslandsmeistarar Vals fengu
draumabyrjun á Vodafonevellin-
um þegar Rakel Logadóttir skoraði
strax á 6. mínútu leiksins en eftir
það létu gestirnir í Fylki nokkuð
til sín taka.
Danka Podovac fékk til að
mynda kjörið tækifæri til þess
að jafna leikinn þegar hún slapp
inn fyrir vörn Vals en skot henn-
ar fór talsvert fram hjá markinu.
Það reyndist dýrkeypt því í næstu
sókn bætti Kristín Ýr Bjarnadótt-
ir við öðru marki fyrir Val með
góðum skalla eftir aukaspyrnu
utan af kanti.
Dagný Brynjarsdóttir fékk kjör-
ið tækifæri til þess að skora þriðja
mark Hlíðarendakvenna þegar
skammt var eftir af fyrri hálf-
leik en Björk Björnsdóttir í Fylk-
ismarkinu sá við henni og staðan
var því enn 2-0 þegar flautað var
til hálfleiks.
Seinni hálfleikur var ekki tíð-
indamikill og Valsstúlkur slökuðu
talsvert á klónni og hleyptu Fylk-
isstúlkum inn í leikinn að nýju.
Anna Björg Björnsdóttir fékk
kjörið tækifæri til þess að minnka
muninn þegar um tíu mínútur voru
eftir en skalli hennar úr opnu færi
sigldi fram hjá marki Vals.
Leikurinn fjaraði svo smátt og
smátt út og sigur Vals því aldrei
í hættu.
Valsstúlkur hafa því örlögin
enn í eigin hendi þegar deildin fer
í tæplega mánaðarfrí og þarf bara
að vinna sína leiki til þess að verja
titil sinn.
„Ég er alveg rosalega sáttur með
þennan leik og ég er mjög ánægð-
ur með frammistöðu liðsins. Hug-
arfarið og viljinn sem liðið sýndi
var til fyrirmyndar og það er gríð-
arlega gott að fara í fríið með þessi
þrjú stig,“ sagði Freyr Alexanders-
son, þjálari Vals í leikslok í gær.
Dramatískt jafntefli á Akureyri
Þór/KA og Stjarnan áttust við í
sannkölluðum toppslag á Akureyri
í gær en 1-1 jafntefli varð niður-
staðan.
Þór/KA var sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik og Rakel Hönnudótt-
ir kom norðanstúlkum yfir strax á
14. mínútu eftir sendingu frá Elvu
Friðjónsdóttur. Stjörnustúlkur
ógnuðu einna helst með langskot-
um sínum en 1-0 forysta heimaliðs-
ins í hálfleik var verðskulduð.
Mikið batamerki var þó á leik
Stjörnustúlkna í seinni hálfleik
og þær komust nærri því að jafna
leikinn þegar boltinn fór í mark-
slána á marki Þórs/KA. Stuttu
síðar komst framherjinn Björk
Gunnarsdóttir svo ein í gegnum
vörn Þórs/KA en Halla Valey Val-
mundsdóttir sá við henni.
Jöfnunarmarkið kom aftur
á móti á 81. mínútu þegar Inga
Birna Friðjónsdóttir átti skot sem
Halla Valey réði ekki við. Til að
bæta gráu ofan á svart fékk Arna
Sif Ásgrímsdóttir stuttu síðar sitt
annað gula spjald og þar með rautt
og heimastúlkur því leikmanni
færri á lokamínútunum.
Það breytti því þó ekki að Vesna
Smiljkovic fékk besta marktæki-
færið fyrir heimastúlkur til þess
að skora sigurmarkið í uppbót-
artíma en Sandra Sigurðardótt-
ir sýndi landsliðstakta í marki
Stjörnunnar og sá til þess að
Stjörnustúlkur fóru heim með eitt
stig í farteskinu.
Bæði lið þurfa hins vegar nauð-
synlega á sigri að halda í topp-
baráttunni við Val og Breiðablik
og jafnteflið því skammgóður
vermir.
Vegna lokakeppni EM í Finn-
landi sem hefst 23. ágúst verður
gert tæplega mánaðarfrí í Pepsi-
deildinni og 16. umferðin fer því
ekki fram fyrr en 8. september. Þá
mætast Stjarnan og Valur í stór-
leik umferðarinnar í Garðabæ.
omar@frettabladid.is
Valsstúlkur áfram í bílstjórasætinu
Íslandsmeistarar Vals styrktu stöðu sína í toppbaráttu Pepsi-deildar kvenna þegar liðið vann Fylki á meðan
Þór/KA og Stjarnan skildu jöfn líkt og Breiðablik og KR. Deildin fer nú í um mánaðarlangt frí vegna EM.
HART TEKIST Á Valsstúlkan Dóra María Lárusdóttir er hér í harðri baráttu við Fykis-
stúlkuna Kristrúnu Kristinsdóttur í leik liðanna í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR