Samvinnan - 01.08.1949, Blaðsíða 13

Samvinnan - 01.08.1949, Blaðsíða 13
Forsœtisráðherrar Sviþjóðar hafa oft ávarpað samvinnuþing. Hér flytur Tage Erlander, for- scetisráðherra Svia. áivarto á 50 ára hátiðinni. eigninni við hringana í Svíþjóð, til hagsbóta fyrir allan almenning. Pólitisk árás En draumurinn um að stöðva sam- vinnhreyfinguna í upphafi var ekki þar með búinn. í fyrri heimsstyrjöld- inni, þegar nauðsyn bar til sérstakra kreppuráðstafana af hálfu opinberra aðila í Svíjrjóð, var reynt að nota kvótaskipulag, er þá var upptekið, ti! þess að eyðileggja Sambandið og kaup- félögin. KF varð mjög hart úti á þess- um árum. Árið 1917 átti að láta kné fylgja kviði og koma sambandinu í gröfina með pólitískum vopnum. Þá var lagt fram skattafrumvarp í þing- inu, sem mundi hafa gjört vaxtamögu- leika samvinnufélaganna í þjóðfélag- inu að engu. Þá átti að skattleggja um- setningu kaupfélaganna með sérstök- um skatti, sem nanr 8%. En ríkisþing- ið sá, að hér var hið mesta óréttlæti á ferðinni. Málinu var vísað til nefnd- ai og þaðan kom það aldrei franr í dagsljósið. Neytendnr stóðu saman Þegar kreppuástand fyrri lreimsstyrj- aldarinnar var um garð gengið, virtist svo í fyrstu, sem baráttan gegn sam- vinnuhreyfingunni væri hjá liðin í bili a. nr. k. En svo var þó ekki til lengdar. Verksmiðjueigendur bund- ust sanrtökum um að torvelda starf- senri samvinnumanna. Kornnryllueig- endur mynduðu með sér sanrtök eða hring, sem hafði m. a. það hlutverk, að torvelda kornverzlun samvinnu- manna. En KF svaraði þessu bragði með því að ráðast sjálft í að kaupa og starfrækja kornmyllu í Stokklrólmi, og síðar einnig í Gautaborg. Árásir á sambandið fyrir þessar framkvæmdir voru ekki sparaðar. KF átti ýmist að leiða landsmenn út í hættulegan sós- íalisma eða vera í vasa stórkapítalista. F.n það var þó ekkert leyndarmál, hvaðan fjármagnið til þessara fram- kvæmda kom. Það kom úr varasjóði KF og úr innlánsdeild þess. Reynt var að tortryggja innlánsdeildina og telja fólki trú um að KF tefldi áhættu- spil með sparifé almennings. En allt kom fyrir ekki. Neytendur stóðu sam- an urn sín mál og sín fyrirtæki. Árið 1926 reyndu framleiðendur gúmmískófatnaðar að nota aðstöðu sína gagnvart notendum þessa varn- ings. Þeir voru einu framleiðendurnir í landinu og gátu ráðið verðinu að vild sinni. KF snerist þegar til varn- ar hagsmunum almennings, náði tangarhaldi á einni gúmmíverk- smiðju. Árangurinn varð sá, að sænsk- ur almenningur fékk brátt ódýrari gúmmískófatnað á fæturnar en áður hafði þekkzt og síðan varð verðlag frá verksmiðju KF það ráðandi verð í landinu. Gegn hringum og einokunum. Rétt fyrir 1930 var svo langt kom- ið í þróun samvinnumála í Svíþjóð, að forustumenn Sambandsins töldu ástæðulaust að fjandmenn samvinnu- stefnunnar réðu því lengur með að- gerðum sínum, hvaða fyrirtæki væri ráðist í. Fram til þessa hafði Samband- ið einkum haldið sér við varnarráð- stafanir. Nú var búizt til sóknar. KF hóf alskipti af glóðlampaframleiðsl- unni. Greinargerð, sem KF lagði fram, sýndi, að verðlag á þessari vöru var mjög misjafnt í landinu og ekki rétt- látt. Og KF lét ekki standa við orðin tóm. Það náði tangarhaldi á Luma- glóðlampaverksmiðjunni. Þetta varð þegar til þess að glóðlampahringurinn lækkaði verð á lömpum sínum og bauð upp á samvinnu með verðlag, en þessi samvinna átti að verða því skilyrði háð, að KF réðist ekki í að byggja nýja verksmiðju. Þetta gátu sænsku samvinnuleiðtogarnir ekki samþykkt. í þess stað var hafizt handa Sérstákur póststimþill var á bréfum, sem póst■ lögð voru á Skansinum hátiðisdaginn. 13

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.