Samvinnan - 01.08.1949, Side 27
Frá útihátiðinni á Skansinum i tilefni af 50 ára afmceli KF.
Sænska samvinnusambandið 50 ára
Framhald af bls. 14
samvinnustefnan sé sterkur og áhrifa-
ríkur aðili innan þjóðfélagsins.
„Skottulækningin", sem August Palm
talaði um, hefur reynzt vel, er orðin fé-
lagsleg og efnahagsleg lyftistöng fyrir
hundruð þúsunda landsmanna. Á
meðan veröldin deilir um þá leið, sem
fara verði til hamingjuríkisins, og
sem ekki á að liggja í gegnum frum-
skógaflækjur líberalismans eða
spennitreyju áætlunarbúskaparins,
hafa neytendur í Svíþjóð sýnt og sann-
að, að hið gullna meðalhóf getur skil-
að þjóðfélögunum drjúgum fram á
við. Og þetta síðasta er e. t. v. glæsi-
legasti vitnisburðurinn um ágæti KF
á 50 ára afmæli þess, miklu glæsilegri
en allar hinar stóru og margbrotnu
verksmiðjur og fyrirtæki, þótt góð séu.
Firnmtiu ára afmælisins rninnzt
Eins og fyrr segir var 50 ára afmæl-
is KF minnzt með glæsilegum hátíða-
höldum í Stokkhólmi í sumar. Þessa
minningarhátíð sóttu fulltrúar flestra
samvinnusambanda í Evrópu, fulltrú-
ar Alþjóðasambands samvinnumanna
og fjöldi annarra erlendra gesta, auk
þúsunda sænskra samvinnumanna.
Fulltrúar íslands á hátíðinni voru
þeir Vilhjálmur Þór forstjóri og Þor-
steinn Jónsson kaupfélagsstjóri. Flátið-
in stóð í tvo daga og þá var einnig
haldinn aðalfundur Sambandsins. Af-
mælisins var minnzt með fjölbreyttri
sýningu, um þróun samvinnumálanna,
á Skansinum, með útisamkomum,
skrúðgöngum, íþróttasýningum, fund-
um og veizluhöldum. Róma allir, sem
afmælishátíðina gistu, frábæran
myndarskap og glæsileik alls undir-
búnings og alla framkvæmd. Mun
það ekki sízt að þakka hinum glæsi-
lega foringja sænskra samvinnumanna
um langan aldur, Albin Johansson,
forstjóra, sem, ásamt starfsliði sínu,
tryggði það, að þessi samvinnuhátíð
yrði annað og meira en aðeins augna-
bliks gleðistund til þess að fagna
fengnum sigrum. Blær hátíðarinnar
var miklu fremur að minna á, að enn
á samvinnan mikið óunnið, jafnvel í
Svíþjóð. Verkefnin blasa hvarvetna
við. Sagan og reynslan sýna, að það
er á færi samvinnumanna að taka þessi
verkefni fyrir, hvert af öðru, og leysa
þau til heilla og hagsbóta fyrir fólkið
í landinu. Á þessari hátíð var Albin
Johansson sérstaklega hylltur fyrir frá-
bært starf og glæsilega leiðsögu KF
um langa hríð. Er hann innanlands
jafnt sem utanlands talinn einn hinn
mikilhæfasti og merkasti samvinnu-
leiðtogi, sem nú er uppi.
GRÆNLENDIN GUR NÚTIMANS
Framhald af bls. 9
um er borgað með 20 til 35 aurum, og
þar er auðvelt að flá hann.
En auðæfi hafsins eru ekki öll þar
með talin. Laxinn gengur í árnar, og
bleikjan stendur í torfum í fjarðar-
botnurn. Flyðran er söltuð og send til
Danmerkur, þar er hún reykt og seld
sem „íshafslax“. Að lokum má nefna
agar-agar, sem unninn er úr þangi.
Nóg er af þanginu. Þ'að vantar bara
hentuga aðferð til að safna þanginu
til vinnslu. Sem stendur er svo mörgu
öðru að sinna. Fiskurinn er kominn
til Grænlands, tímabili selveiðanna er
lokið.
AÐALFUNDUR S.Í.S. í REYKJAVÍK
Framhald af bls. 6
umræður um línrækt og innflutning
heimilisvéla. Kom fram á fundinum
óánægja út af þeim tollum, sem lagðir
hafa verið á innflutt heimilistæki.
Þá var og allimikið rætt á fundinum
um skiptingu á innflutningi Sam-
bandsins milli sambandsfélaganna.
Eftirtaldir fimm menn voru kjörnir
í nefnd til þess að rannsaka gildandi
reglur um skiptinguna og gera tillögur
um nýja skipan um þau efni: Hjörtur
Hjartar, Halldór Ásgrímsson, Jón
Baldurs, Ragnar Pétursson, Eiríkur
Þorsteinsson.
Fundarslit.
Síðdegis þann 7. júlí höfðu öll mál
á dagskrá verið rædd. Fundarstjóri Ey-
steinn Jónsson, menntamálaráðherra,
þakkaði mönnum afburðagóða fund-
arsókn og kvaðst þess fullviss, að fund-
armenn myndu skilja staðráðnari í því
en nokkru sinni fyrr, að leggja fram
krafta sína til þess að bera hugsjónir
samvinnulrreyfingarinnar fram til sig-
urs.
Björn Hallsson á Rangá þakkaði
fyrir hönd fundarmanna, fundarstjóra
góða fundarstjórn.
Um kvöldið sátu fulltrúar á aðal-
fundinum skilnaðarhóf í boði Sam-
bandsins, en annað fundarkvöldið sátu
þeir boð KRON að Selfossi.
27