Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 15

Samvinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 15
ur ekki auðveldlega snúið þaðan aft- ur. Hann spurði þó pínulitla engil- inn, hvort það væri nokkuð, sem hann gæti fyrir hann gert. — Jú, sagði litli engillinn. Eg átti fallegan kassa með góðu dóti; og hann hafði litið ofan í hann á hverju kvöldi, áður en hann fór að sofa. Við tilhugsunina um leikfangakass- ann ljómuðu augu litla engilsins svo, að friðarengillinn kallaði á einn af boðberum himnaríkis og bað hann að sækja kassann. ★ Það var sannarlega gott, að við sendum pínulitla engilinn til friðar- engilsins, sögðu erkienglarnir oft hver við annan næstu daga. Allir englarnir sögðu hið sama, er þeir stóðu á hinum gullnu götuhornum paradísar, eða þegar þeir flugu fram og aftur með pálmagreinar í hönd- unum. Þeir höfðu fullkomlega rétt fyrir sér. Pínulitli engillinn var nú gerólík- ur því, sem hann hafði verið áður. Hann kom nú aldrei of seint til kvöld- guðsþjónustu, rólaði sér ekki lengur í gullna hliðinu, geislabaugurinn var ávallt á réttum stað og hann gat nú flogið fram og aftur með hinum engl- unum. Nú var hann hamingjusam- asti engillinn í paradís. Um þetta ley^ti barst það um garða himnaríkis, að mesta kraftaverk, sem gerzt hefði, ætti að verða innan skamms: Sonur guðs átti að fæðást í Betlehem. Það var mikil gleði á himnum. Erkienglar og englar, spámenn, dju-avörðurinn, vængjasmiðurinn og geislabaugasmiðurinn lögðu allir frá sér venjuleg störf til að búa til gjafir til hins heilaga barns; allir, nema pínulitli engillinn. Hann gat ekki lát- ið sér detta í hug neitt, sem hann gæti gefið. Fyrst datt honum í hug að semja sálm, sem allir englarnir gætu sungið við vöggu barnsins. En þessi hug- mynd var ekki sérlega góð, af því að pínulitli engillinn var alveg laglaus. Þá datt honum í hug að semja fallega bæn, — bæn sem gæti lifað að eilífu í hjörtum mannanna af því að hún væri fyrsta bænin, sem Jesú- barnið heyrði. Þessa hugmynd varð hann einnig að hætta við, af því að hann gat alls ekki sett saman erindi. Loks datt honum í hug gjöf, sem hlvti að vera bezta gjöf, er nokkuð barn gæti fengið. Dag daganna, þeg- ar Jesúbarnið fæddist, sótti hann gjöfina á bak við lítið ský, og lagði hana fyrir hásæti guðs. Það var að- eins lítill og óásjálegur kassi, sem lá innan um allar dýrðlegu gjafirnar, sem voru svo fagrar og dásamlegar, að það var ofar jarðlegum skilningi. Þegar pínulitli engillinn sá allar þess- ar fögru gjafir, fannst honum gjöf hans sjálfs ekki aðeins leiðinleg, held- ur hrein og bein móðgun við allt, sem heilagt var, og hann átti sér enga ósk heitari en að geta tekið gjöfina aftur. En það var þegar of seint. Hönd guðs strauk yfir allar gjafirnar — og staðnæmdist við gjöf pínulitla engils- ins. Litli engillinn skalf af ótta, þegar leikfangakassinn hans var opnaður fyrir augum guðs sjálfs og herskara himnanna. Og hverjar voru nú gjaf- ir hans til Jesúbarnsins? Fjöður, sem hann hafði fundið dag nokkurn í hæðunum utan við Jerúsalem, og tveir hvítir steinar, sem hann hafði fundið við Geneserethvatnið, þar sem hann hafði leikið sér margan sumar- dag við félaga sína. Pínulitli engillinn grét vegna heimsku sinnar. Hvernig gat honum hafa fundizt kassinn svo dásamleg gjöf? Og hvernig gat honum dottið í hug, að leikföngin gætu flutt Jesú- barninu nokkra gleði? Hann sneri sér undan óttasleginn, til að hlaupa á brott til að forðast reiði guðs. En skyndilega var honuin snúið við og hann barst beint fram fyrir hásæti guðs. Það var djúp þögn um alla para- dís, þögn, sem var aðeins rofin af snökti litla engilsins. En þá kvað við þrumandi rödd guðs: — Af öllum gjöfum englanna hefur þessi litli kassi glatt mig mest. Leik- föngin tákna jörðina og mennina, og sonur minn á að ríkja yfir hvor- tveggju. Ég tek á móti gjöf þinni í nafni barns míns. Enn varð þögn og kassi pínulitla engilsins byrjaði að Ijóma með yfir- náttúrlegu ljósi, unz birtan blindaði englana. Þess vegna var það aðeins pínu- litli engillinn, sem sá ljómann svífa burt frá básæti drottins. Hann einn sá Ijósið svífa út jAir himinhvolfið, þar til það staðnæmdist og sendi geisla sína yfir fjárhúsið, þar sem guðsbarnið fæddist. Þar var stjarnan og ljómaði alla hina helgu nótt, en ljós hennar end- urljómaði í hjörtum mannanna urn alla framtíð. Sú gjöf, sem pínulitli engillinn hafði fært af auðmýkt barnshjartans, var orðin að jóla- stjörnunni yfir Betlehem, 15

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.