Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 17
Rofnu linurnar sýna útlinu hinna miklu AtlantsfjaUa i djúpi hafsins frá fslandi suður fyrir Afriku. til þess að geislar sólarinnar nái nið- ur til þeirra — og þar eru björgin því nakin og gróðurlaus. I dali þessara fjalla sezt botnfall sjávarins, sem bljóðlega hleðst þar upp á milljónum ára. Hvorki Kyrrahaf né Indlandshaf hafa neðansjávar fjallgarða, sem eru sambærilegir við Atlantshafið, en þó eru þar smærri fjallgarðar. Hawaii- eyjar eru tindar fjallgarðs, sem teygir sig eftir miðju Kyrrahafi nærfellt 3000 km. Gilbert- og Marshall-eyja- klasarnir eru einnig hátindar slíks fjallgarðs. í austanverðu Kyrrahafi tengir breið háslétta strönd Suður- Ameríku við Tuamotu-eyjarnar, og í Indlandshafi liggur langur fjallgarður frá Indlandi til Suðurheimskauts, en hann er að mestu leyti breiðari og liggur dýpra en Atlantsfjöll. ALDUR DJÚPFJALLANNA. Aldur djúpfjallanna í samanburði við fjöll á þurru landi er eitt athyglis- verðasta íhugunarefni jarðfræðinnar. Ef litið er yfir liðnar aldir jarðsög- unnar, sjáum við að fjöll á þurru landi hafa hlaðizt upp með eldsum- brotum og jarðhræringum, en síðan hafa regn, frost og flóð sameinazt um að brjóta þau aftur niður. .Hvernig er þessu farið í hafdjúpunum? Mynd- uðust fjöllin þar á sama hátt og byrja þau að eyðast jafnskjótt og þau verða til? Það er ástæða til að ætla, að jarð- skorpan sé engu kvrrari á hafsbotm en þurru landi. Töluverður hluti jarð- skjálfta, sem mælast, eiga upptök sín á hafsbotni, og sennilega eru jafn mörg lifandi eldfjöll í hafdjúpinu og á þurru landi. Svo virðist sem Atlants- fjöll hafi orðið til við fellingu á jarð- skorpunni. Enda þótt eldfjöll séu þar flest útdauð, eru þar upptök flestra landskjálfta á Atlantshafssvæðinu. I Kyrrahafi er svo til öll brún megin- landsins „lifandi“ með jarðskjálftum og eldfjöllum, sem sum gjósa oft, með- an önnur sofa aldasvefni milli gosa og enn önnur eru útbrunnin. Þrátt fyrir þetta eru djúpfjöllin þau, sem næst komast því að vera „eilífð- arfjöll“ eins og skáldin yrkja um. Fjall á þurru landi hefur ekki fyrr mynd- azt en öll öfl náttúrunnar sameinast um að eyða því. En eyðingaröflin ná ekki til fjalls í hafdjúpinu. Það bygg- ist upp frá hafsbotni og kann að skjóta eldfjallskolli upp fyrir hafflöt- inn. Regnið ræðst á þessa tinda og brýtur þá aftur niður í öldurnar, sem ryðja þeim niður í sjóinn á ný. En þar niðri í rökkri og kyrrð djúpsins er fjallið óhult gegn frekari árásum. Þar getur það verið nær óbreytt, ef til vill jarðsöguna á enda. Vegna þessa „ódauðleika“ hljóta elztu fjallgarðar bafsins að vera óreiknanlega miklu eldri en nokkur fell á þurru landi. Prófessor Hess, sem fyrstur fann fjallgarða Mið-Kyrra- hafs, taldi að þessar „fornu, sokknu eyjar“ hefðu ef til vill myndazt fyrir Cambríska tímabilið í jarðsögunni, eða fyrir 500—1000 milljónum ára. Sæfjöllin voru því orðin gömul, þeg- ar Alpafjöll, Himalayafjöll, Kletta- fjöll og Andesfjöll risu upp í hina tignarlegu hæð sína fyrir 60 milljón- um ára. Og þá er líklegt, að þau muni standa óhögguð, þegar þessi fjöll verða jöfnuð við jörð. ER ÞETTA ATLANTIS? Þegar menn kynnast betur hinum huldu löndum í hafdjúpunum, hlýt- (Frh. á bls. 26.) 17

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.