Samvinnan - 01.12.1951, Qupperneq 15
ur ekki auðveldlega snúið þaðan aft-
ur. Hann spurði þó pínulitla engil-
inn, hvort það væri nokkuð, sem hann
gæti fyrir hann gert.
— Jú, sagði litli engillinn. Eg átti
fallegan kassa með góðu dóti; og hann
hafði litið ofan í hann á hverju kvöldi,
áður en hann fór að sofa.
Við tilhugsunina um leikfangakass-
ann ljómuðu augu litla engilsins svo,
að friðarengillinn kallaði á einn af
boðberum himnaríkis og bað hann
að sækja kassann.
★
Það var sannarlega gott, að við
sendum pínulitla engilinn til friðar-
engilsins, sögðu erkienglarnir oft
hver við annan næstu daga. Allir
englarnir sögðu hið sama, er þeir
stóðu á hinum gullnu götuhornum
paradísar, eða þegar þeir flugu fram
og aftur með pálmagreinar í hönd-
unum.
Þeir höfðu fullkomlega rétt fyrir
sér. Pínulitli engillinn var nú gerólík-
ur því, sem hann hafði verið áður.
Hann kom nú aldrei of seint til kvöld-
guðsþjónustu, rólaði sér ekki lengur í
gullna hliðinu, geislabaugurinn var
ávallt á réttum stað og hann gat nú
flogið fram og aftur með hinum engl-
unum. Nú var hann hamingjusam-
asti engillinn í paradís.
Um þetta ley^ti barst það um garða
himnaríkis, að mesta kraftaverk, sem
gerzt hefði, ætti að verða innan
skamms: Sonur guðs átti að fæðást
í Betlehem. Það var mikil gleði á
himnum.
Erkienglar og englar, spámenn,
dju-avörðurinn, vængjasmiðurinn og
geislabaugasmiðurinn lögðu allir frá
sér venjuleg störf til að búa til gjafir
til hins heilaga barns; allir, nema
pínulitli engillinn. Hann gat ekki lát-
ið sér detta í hug neitt, sem hann
gæti gefið.
Fyrst datt honum í hug að semja
sálm, sem allir englarnir gætu sungið
við vöggu barnsins. En þessi hug-
mynd var ekki sérlega góð, af því að
pínulitli engillinn var alveg laglaus.
Þá datt honum í hug að semja
fallega bæn, — bæn sem gæti lifað
að eilífu í hjörtum mannanna af því
að hún væri fyrsta bænin, sem Jesú-
barnið heyrði. Þessa hugmynd varð
hann einnig að hætta við, af því að
hann gat alls ekki sett saman erindi.
Loks datt honum í hug gjöf, sem
hlvti að vera bezta gjöf, er nokkuð
barn gæti fengið. Dag daganna, þeg-
ar Jesúbarnið fæddist, sótti hann
gjöfina á bak við lítið ský, og lagði
hana fyrir hásæti guðs. Það var að-
eins lítill og óásjálegur kassi, sem lá
innan um allar dýrðlegu gjafirnar,
sem voru svo fagrar og dásamlegar,
að það var ofar jarðlegum skilningi.
Þegar pínulitli engillinn sá allar þess-
ar fögru gjafir, fannst honum gjöf
hans sjálfs ekki aðeins leiðinleg, held-
ur hrein og bein móðgun við allt, sem
heilagt var, og hann átti sér enga ósk
heitari en að geta tekið gjöfina aftur.
En það var þegar of seint. Hönd
guðs strauk yfir allar gjafirnar — og
staðnæmdist við gjöf pínulitla engils-
ins.
Litli engillinn skalf af ótta, þegar
leikfangakassinn hans var opnaður
fyrir augum guðs sjálfs og herskara
himnanna. Og hverjar voru nú gjaf-
ir hans til Jesúbarnsins? Fjöður, sem
hann hafði fundið dag nokkurn í
hæðunum utan við Jerúsalem, og
tveir hvítir steinar, sem hann hafði
fundið við Geneserethvatnið, þar sem
hann hafði leikið sér margan sumar-
dag við félaga sína.
Pínulitli engillinn grét vegna
heimsku sinnar. Hvernig gat honum
hafa fundizt kassinn svo dásamleg
gjöf? Og hvernig gat honum dottið í
hug, að leikföngin gætu flutt Jesú-
barninu nokkra gleði?
Hann sneri sér undan óttasleginn,
til að hlaupa á brott til að forðast
reiði guðs. En skyndilega var honuin
snúið við og hann barst beint fram
fyrir hásæti guðs.
Það var djúp þögn um alla para-
dís, þögn, sem var aðeins rofin af
snökti litla engilsins. En þá kvað við
þrumandi rödd guðs:
— Af öllum gjöfum englanna hefur
þessi litli kassi glatt mig mest. Leik-
föngin tákna jörðina og mennina, og
sonur minn á að ríkja yfir hvor-
tveggju. Ég tek á móti gjöf þinni í
nafni barns míns.
Enn varð þögn og kassi pínulitla
engilsins byrjaði að Ijóma með yfir-
náttúrlegu ljósi, unz birtan blindaði
englana.
Þess vegna var það aðeins pínu-
litli engillinn, sem sá ljómann svífa
burt frá básæti drottins. Hann einn
sá Ijósið svífa út jAir himinhvolfið,
þar til það staðnæmdist og sendi
geisla sína yfir fjárhúsið, þar sem
guðsbarnið fæddist.
Þar var stjarnan og ljómaði alla
hina helgu nótt, en ljós hennar end-
urljómaði í hjörtum mannanna urn
alla framtíð. Sú gjöf, sem pínulitli
engillinn hafði fært af auðmýkt
barnshjartans, var orðin að jóla-
stjörnunni yfir Betlehem,
15