Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1951, Síða 22

Samvinnan - 01.12.1951, Síða 22
Þegar tilkynnt voru ájorm ameriskra samvinnumanna að reisa stóra áburðarverksmiðju, birtu blöð þeirra þessa teikningu. Textinn þýðir: „Okkar eigin nitrat i okkar eigin jörð“. Amerískir samvinnumenn reisa stórvirka áburðarverksmiðju Amerískir samvinnumenn hafa ný- lega tilkynnt, að þeir hyggist reisa stórvirka ábiirðarverksmiðju skammt frá Lawrence í fylkinu Kansas. Verð- ur þetta mesta mannvirki, sem sam- vinnumenn vestra nokkru sinni hafa ráðizt í, og er áætlaður kostnaður við byggingu verksmiðjunnar yfir 250 milljónir íslenzkra króna. Ársafköstin verða 110 000 smálestir af ýmis kon- ar áburði, þar af 83 000 lestir af amm- onium nítrati, og 26 400 lestir af öðr- um gerðum áburðar. Það er „Consumer Cooperative Association“, sem stendur fyrir þess- um miklu framkvæmdum, en það er samband samvinnufélaga í níu af fylkjum Bandaríkjanna. Hefur sam- bandið aðalskrifstofur sínar í Kansas City. Mikill skortur hefur verið á áburði í Bandaríkjunum undanfarið, og hefur landbúnaðarráðuneytið þar lagt til, að reistar verði áburðarverk- smiðjur, sem geta framleitt samtals 700 000 lestir á ári. I athugunum, sem sérfræðingar CCA gerðu, áður en ákveðið var að ráðast í verksmiðjubygginguna, kom eftirfarandi í ljós: 1) Heildarnotkun áburðar í mið- vestur Bandaríkjunum er nú 935% meiri en á árabilinu 1930—35. 2) Notkun köfnunarefnisáburðar jókst um 822% milli 1944 og 49. 3) Eftirspurn eftir köfnunarefnis- áburði verður um árið 1960 komin upp í 260 000 smálestir, en notkunin 1950 var aðeins 57 000 lestir. 4) Eins árs framleiðsla hinnar fyr- irhuguðu áburðarverksmiðju banda- rískra samvinnumanna mun, að því er áætlað hefur verið, auka verð- mæti maísuppskerunnar einnar um 75 000 000 dollara árlega. 5) Stór áburðarverksmiðja í hönd- um amerískra samvinnumanna getur hjálpað þeim að auka framleiðsluna, eftir því sem þörf reynist, og komið í veg fyrir að jafn nauðsynleg vara bændum og áburður er, sé algerlega í höndum einokunarhrings. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem Kaupfélag opnar gistihús á Höfn í Hornafirði Á Höfn í Hornafirði hefur nú ver- ið opnað nýtt gistihús, en undanfar- in ár hefur enginn gististaður verið þar opinn almenningi. Húsið er eign Kaupfélags Austur-Skaftfellinga, en gistihúsinu veita forstöðu hjónin Martha og Kristján Imsland, skrif- stofumaður hjá kaupfélaginu. Vegna sívaxandi ferðamanna- straums til Hornafjarðar keypti Kaupfélag Austur-Skaftfellinga fyrir nokkrum árum eignir útgerðarmann- anna Jóns J. Brunnan og Sigurðar Olafssonar, í því augnamiði að starf- rækja þar sumargistihús. Hefur eign- in nú verið endurbyggð og standsett, en vegna mikillar aðsóknar varð að opna gistihúsið strax 1. september og mun það taka við dvalargestum og næturgestum allt árið. Gistihúsið hefur 4 tveggja manna herbergi og 2 þriggja manna herbergi og getur tekið við 14 næturgestum. Gistiherbergin eru fóðruð með ljósu veggfóðri, björt og rúmgóð og öll hin vistlegustu. Borðsalur er bjartur, rúmgóður og hinn snyrtilegasti. Eru (Frh. á bls. 30.) amerískir bændur ráðast í að reisa áburðarverksmiðju. í marzmánuði þetta ár tók til starfa í Yazoo City í Missisippi slík verksmiðja, sem er til orðin fyrir samvinnu bænda sjálfra í ríkinu og fyrir frumkvæði samvinnu- félaga, enda þótt hún sé ekki byggð af þeim eða þeirra eign, heldur bænd- anna beint með hlutafélagssniði. Fé til framkvæmda sinna hyggst CCA afla með því að selja skuldabréf (6 millj. dollara) og taka ríkislán (10 rnillj.). Þegar eftir að áætlunin um verksmiðjuna var birt, var boðað til funda um allt sambandssvæðið, þar sem bændur ræddu notkun áburðar og hinar fyrirhuguðu framkvæmdir. 22

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.