Samvinnan - 01.12.1951, Síða 29
handa vinum sínum og ættingjum.
Þetta stafar af dýrtíðinni og þeirri
staðreynd, að fólk hefur nú færri
krónur afgangs, þegar hinar dýru
nauðsynjar hafa verið keyptar, en
undanfarin ár.
Það getur því verið mikill sparn-
aður að því að útbúa eitthvað af jóla-
gjöfunum sjálfur, sé til þess tími, auk
þess sem slíkar gjafir eru alltaf á-
nægjulegri og persónulegri heldur en
margt af því, sem keypt er fyrir ærna
peninga.
Poki íyrir óhreint tau.
Poki sem þessi er alltaf kærkomin
gjöf, og það er hægt að útbúa hann
með litlum tilkostnaði og ekki mik-
illi fyrirhöfn. Pokann er hægt að nota
til margs, bæði til að geyma í honum
óhreinan smáþvott, barnaföt, sokka,
bæði viðgerða og óviðgerða og fleira
og fleira.
Það er hægt að nota margs konar
efni í pokann, rósótt sirs eru t. d. til-
valin, en hann verður ennþá fallegri,
ef haft er í hann rúðótt taft eða rönd-
ótt. Ef þú átt gamlan kjól, sem orð-
inn er ónýtur, en pilsið er heilt, er
hægt að nota það í pokann. Pilsið er
þá samað saman að neðan, faldur
gerður að ofan, hæfilega breiður til
þess að koma herðatrénu þar inn í
(krókurinn er skrúfaður af á meðan
herðatrénu er komið fyrir í faldinum,
og síðan er gert lítið gat á efnið, svo
að hægt sé að festa krókinn aftur) og
rennilásinn er festur hér um bil á pok-
ann miðjan.
Poka þennan má einnig nota í for-
stofum til þess að geyma í honum
trefla og hanzka, sem oft eru á verð-
gangi á hinum óheppilegustu stöðum.
Ferðataska handa brúðunni.
Litlu stúlkunum þykir áreiðanlega
ekki síður gaman að því, að brúðunni
þeirra sé gefin jólagjöf, heldur en þeim
sjálfum. Hægt er að gera ferðatösku
handa brúðunni úr venjulegum
vindlakassa. Kassinn er málaður að
utan með einhverjum fallegum lit, og
að innan er hann klæddur veggfóðri
eða taui. Lítið handfang þarf að setja
á töskuna, svo að hægt sé að ferðast
með hana, og mesta gleði mun það
vekja, ef útbúið er lítið nafnspjald
með nafni brúðunnar, og það hengt
við handfangið.
Nú getur brúðan lagt af stað í
langferð, og litlu „mömmunum“ mun
áreiðanlega þykja gaman að setja
brúðufötin niður í ferðatöskuna og
láta „dæturnar“ ferðast heimsálfanna
á milli.
Matarsmek kur.
Handa yngstu börnunum er hægt
að útbúa fallega matarsmekki og
gefa þeim í jólagjöf. Smekkur sá, er
hér er sýndur, er gerður úr lérefti og
bryddaður með skábandi. Smekkur-
inn er prýddur með ásaum (appli-
kation), og er hesturinn stækkaður
um helming þannig, að myndin er
teiknuð á rúðustrikað blað, þar sem
rúðurnar eru hafðar helmingi stærri
en rúðurnar á myndinni. Hesturinn
er klipptur út úr bláu léreftir, en B.
úr rauðköflóttu. Þetta er fyrst þrætt
á efnið, brotið er innan af brúnunum
og síðan eru þær saumaðar niður með
fíngerðum sporum. Tagl og fax er
gert með löngum sporum (grófu
garni) og þá er smekkurinn tilbúinn.
Góð eplakaka (amerísk):
3—4 epli
% bolli haframjöl
% — púðursykur
Vz — hveiti
/2 — smjörlíki
1 tsk. kanel
Eplin eru skorin í þunnar sneiðar.
Eldfastur diskur (eða kökumót) er
smurður vel, og eplasneiðunum rað-
að í hann. Hafragrjónum, sykri,
hveiti og kanel er blandað saman, og
smjörlíkið mulið saman við. Þessu er
síðan stráð yfir eplin, diskutinn sett-
ur inn í volgan ofn og bakað við hæfi-
legan hita í 30-—35 mín.
Eplakaka þessi er borðuð ýmist
með þeyttum rjóma eða þunnum ost-
sneiðum, sem þá eru skornar í þrí-
hjuninga og lagðar ofan á kökuna.
Þykir hún bezt volg, nýbökuð og með
þeyttum rjóma. Nota má eplakökuna
29