Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 2

Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 2
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. í Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavík. Ritstjórnarsími 7080. J Kemur út mánaðarlega. j Verð árgangsins kr. 40.00. j Verð í lausasölu 5 kr. Prentsmiðjan Edda. í Efni: | Sambandið og hlutafélög j þess bls. 3 Teiknibókin í Arnasafni — 4 Þýzk samvinna rís úr rústum — 7 Álagaeyjan, smásaga — 9 Þúsund kaupfélagskonur heimsækja Bifröst — 11 Þriggja ára stríð — og óbreytt landamæri — 12 Gríski skipakóngurinn Onassis — 14 Síldarsöltun á Siglufirði — 15 Kaupfélagið á Kópa- vogshálsi — 16 Búð, sem leggur áherzlu á öflun erlendra bóka — 19 Minnst tveggja sam- vinnumanna — 23 Ferguson boðar merkar nýjungar í framleiðslu landbúnaðartækja — 26 Carmen, eftir Prosper Merimée, ný fram- haldssaga — 27 Ágúst 1953 XLVIII árg. 8. SAMVINNAN hefur oft skrifað um verðlag kaupfélaganna og haldið þvi fram, að það væri yfirleitt lægra en hjá kaupmönnum, 'en félögin hefðu þannig ómetanleg áhrif í þá átt að haltía verðlaginu niðri. Hefur verið birtur, bæði hér í ritinu og annars staðar, ítarlegur samanburður frá mörgum kaupfélögum, sem sannar þetta svo að vart verður um deilt. NÚ GERIST ÞAÐ, sem hefðu þótt mikil tíðindi áður fyrr, að a. m. k. tvö kaupfélög hafa auglýst verðlag hjá sér, sem er lægra en lægsta verð sömu vöru er í Reykjavík samkvæmt skýrsl- um verðgæzlunnar. Félög þessi eru Kav.pfélag Árnesinga og nú fyrir nokkru Kaupfélag Eyfirðinga. SAMVINNUMENN á Akureyri og í Eyjafirði munu sérstaklega hafa fagnað auglýsingu KEA, er birtur var samanburðurinn á verði félagsins og lægsta Reykjavíkurverði á átta teg- undum nauðsynja. Þetta félag er stærst allra kaupfélaganna og hefur fjölþættasta starfrækslu. Þess vegna hefur það orðið fyrir hvað mestu að- kasti og gagnrýni fyrir „stærð og völd“ að því er bezt verður séð. En nú hefur félagið, með þessari auglýsingu, sýnt alþjóð fram á, að hversu mjög sem það hefur dreift kröftum sínum í glímu við hin margvíslegustu verkefni, hefur það ekki sofnað á verðinum við frumhlutverk sitt: hagkvæma verzlun. SPYRJA MÁ, hvernig KEA og önnur kaupfélög fari að því að selja vörur ’ægra verði en lægsta smásöluverð í Reykjavík. Sú var tíðin, að vöruverð víðs vegar um landið var að jafnaði Reykjavíkurverð að viðbættum flutn- ingskostnaði, en eitthvað hlýtur það að vera breytt. Það skyldi þó ekki vera, að þess væri farið að gæta, að sam- vinnumenn eiga nú fjögur kaupskip, og þeir reyna að jafnaði að stefna þeim beint á þær hafnir landsins, sem eiga að fá vöruna hverju sinni, en forðast umskipun og viðbótar flutn- ingskostnað hvar sem er. Og víst er það, að fólk víðs vegar um landið er farið að taka eftir hinum tíðu kom- um Sambandsskipanna. Má til dæmis nefna það, að nýlega birti eitt af Reykjavíkurblöðunum fréttaskeyti frá Austurlandi, þar sem fréttaritari þess skýrði frá því, að þar hefðu þrjú Sam- bandsskip komið samtímis og þótti honum sá atburður, þótt tilviljun mætti kalla, að þau voru þrjú sam- tímis í sömu höfn, ótvírætt sýna, hverjir tryggðu hagkvæmastar sigl- ingar fyrir landið. KONURNAR OG KAUPFÉLÖGIN eru enn til umræðu í grein í þessu hefti, eins konar framhaldsgrein hinnar, sem birtist í vor. Segir nú frá því, sem félögin hafa fyrir húsmæður sínar gert í sumar. Heldur þykir þeim, sem að fræðslumálum og blaðaútgáfu starfa hjá SÍS, að kaupfélagsstjórar séu hlédrægir hvað snertir frásagnir af þessu starfi sínu sem öðru. Það eru vissulega kostir við einstakling, að hafa ekki hátt um störf sín, en það er nauðsynlegt samvinnuhreyfingunni allri, að fréttir berist af slíku starfi, svo að kaupfélögin geti lært hvert af annars reynslu í sem flestu. ÞETTA VELDUR ÞVÍ, að sennilega er frásögnin af fræðslu- og skemmti- starfi kaupfélaganna ekki tæmandi og vafalaust hafa einhver þeirra hald- ið uppi slíku starfi án þess að Sam- vinnan hafi frétt um það. Einu kaup- félagi þarf þegar að bæta við, eftir að greinin var komin í prentun. Er það Kaupfélag Hrútfirðinga, sem bauð húsfreyjum í myndarlegt, fjögurra daga ferðalag að Mývatni og Náma- skarði. Mun þetta vera a. m. k. í ann- að sinn, sem félagið býður til slíkrar ferðar. LJÓSMYNDIR í þessu hefti eru eftir ýmsa. Síldarmyndirnar tók hinn kunni, sænski samvinnublaðamaður, Jöran Forsslund, er hann var hér á landi. Myndirnar úr Bifröst tók Ólafur Árnason, ljósmyndari á Akranesi og myndirnar frá Kaupfélagi Kópavogs og úr Bókabúð Norðra tók Þorvaldur Ágústsson. 2

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.