Samvinnan - 01.08.1953, Page 26
Hcr sj(>‘■* þeir Harry Ferguson og J. S. Duncan undirrita samninga um sameiningu Ferguson og
Massey-Harris verksmiöjanna, sem framleiÖa landbúnaöarvélar.
Ferguson boðar merkar nýjungar
í framleiðslu la nd bú naða rtækja
Verksmiðjur hans og Massey-Harris sam-
einaðar í eitt fyrirtæki nýLega
Það hefur verið tilkynnt í Coven-
:ry og Birmingham í Englandi, að
tveir af stærstu framfeiðendum land-
búnaðarvéla í heiminum, Harry
Ferguson Co. og Massey Harris Co.
Ltd. hafi ákveðið að sameinast, og
munu þeir í framtíðinni starfa und-
ir nafninu Massey Harris Ferguson
Ltd.
Félög þessi hafa bæði verið braut-
ryðjendur á sviði landbúnaðarvéla,
Ferguson með hinu kunna Ferguson-
kerfi fyrir dráttarvélar og yniis verk-
færi, en Massey Harris, sem er 105
ára gamalt, fyrir forustu í bygginga
sjálfhreyfandi hveitisláttuvéla, sem
notaðar eru í öllum löndum, þar sem
hveiti er ræktað.
Bæði Massey Harris og Ferguson
eiga verksmiðjur og hafa umboðs-
menn um allan heim. Samtals eiga
félögin fimm verksmiðjur í Banda-
ríkjunum, fjórar í Kanada, en auk
þess verksmiðjur í Englandi, Skot-
landi, Suður-Afríku, Frakklandi og
Þýzkalandi.
Ferguson og samstarfsmenn hans
hafa undanfarið starfað með mikilli
leynd að nýjum landbúnaðarvélum,
og var sameining félaganná ekki á-
kveðin, fyrr en stjórnendur Massey
Harris höfðu vandlega kynnt sér
þessar nýjungar. Það er skoðun
Fergusons, að tæknin eigi enn eftir
að gera mikið til að gera landbúnað-
arstörf léttari og ánægjulegri og
etöðva fólksstrauminn úr sveitunum.
Massey Harris og Ferguson hafa
ekki verið í beinni samkeppni hingað
til, heldur starfa þau að miklu leyti
hvort á sínu sviði og munu þannig
mjög styrkja hvort annað í alhliða
framleiðslu.
Mikið hefur verið flutt til íslands
af Ferguson dráttarvélum og verk-
færum, og munu nú yfir 800 bændur
í landinu eiga slík tæki. Einnig hef-
ur verið flutt inn nokkuð af Massey
Harris landbúnaðarvélum.
Gestur: „Ert þú litla stúlkan, sem
fæddist í Indlandi?"
Gunna: „Já.“
Gesturinn: „Einmitt. Hvaða hluti
var það?“
Gunna: „Ég öll.“
o
Ekki d lifi.
Gesturinn: „Hvað eigið þér mörg
börn, frú Brown?“
Frú Brown: „Ég á níu á lífi og tvö
o
„Þér auglýsið þetta sem bezta bótel
borgarinnar,“ sagði gestur nokkur.
„Það er það líka sannarlega,“ svar-
aði hótelstjórinn.
„Það getur vel verið, að það sé hrós
fyrir bótelið, en það er þá aum stað-
reynd fyrir borgina."
o
Maður nokkur fékk stöðu í öðrum
bæ og var ætlunin, að konan flytti
á eftir honum, er hann hefði fengið
íbúð. Fyrsta laugardagskvöldið, sem
hann var við starfið, sendi hann kon-
unni skeyti:
„Fjöður í minn hatt. Orðinn verk-
stjóri.“
Næsta Iaugardag kom annað skeyti:
„Fjöður í minn hatt. Orðinn deild-
arstjóri.“
Þriðja laugardaginn kom enn
skeyti:
„Rekinn. Sendu ferðapeninga.“
Konan svaraði urn hæl:
„Notaðu fjaðrirnar. Fljúgðu heim.“
o
■— Axel, þú hefðir ekki átt að kyssa
ntig, þótt lestin færi gegnurn jarðgöng,
sagði stúlkan við unnusta sinn í járn-
brautarlestinni.
— Eg kyssti þig ekki, sagði hann
ákafur, og ég skal kenna þeim dóna,
sem ....
— Axel, þú getur ekkert kennt hon-
um!
26