Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 13

Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 13
Ko) l pessi sýna gang Kórenstyrjaldarinnar í stóruni dráltum. Fyrstu fjögur korlin syna .herstöðuna, eins og hi'ur breyttist fyrsta árið, en nœslu tvö ár hefur st.aðan verið litið breytt eins og fimmta kortið sýnir. Þriggja ára styrjöld breytti pvi svo til engu um landfrccðilega aðstöðu hernaðaraðila á Kóreuskaga. Rússar höfðu á síðustu stundu sagt Japönum stríð á hendur og sent heri sína gegn þeim. Fór því svo, að Kóreu- skaga var, eins og Þýzkalandi og Aust- urríki, skipt í tvennt, og var 38. breiddarbaugurinn valinn sem marka- lína milli hernámssvæðanna. Tóku Bandaríkjamenn syðri hlutann, en Rússar þann nyrðri. Það var í fyrstu talið, að ekki mundi reynast erfitt að leysa Kóreu- málið, að minnsta kosti ekki eins erf- itt og sams konar vandamál í Þýzka- landi og Austurríki. En þriggja ára samningatilraunir báru þó engan ár- angur. Norðan 38. baugsins komu Rússar upp „alþýðulýðveldi“, eins og þeir hafa víðar gert, og kommúnist- ar voru þar settir til allra valda. Sunn- an baugsins var stofnsett „Lýðveldið Kórea“ og varð þar brátt mestur á- hrifamaður Syngman Rhee, sem ver- ið hafði landflótta um langt skeið og alið á mótstöðu Kóreumanna gegn Japönum. Norðanmenn tóku þegar að byggja upp mikinn her, og taldi hann von bráðar um 400.000 manns og var búinn hinum fullkomnustu vopnum, eins og áþreifanlega kom í ljós. Sunnanmenn höfðu einnig her, en hann var þó ýmsum takmörkunum háður og hafði til dæmis hvorki telj- andi stórskotalið, neina skriðdreka eða flugvélar. Taldi her sunnanmanna um 150.000. Höfðu nú hernámsríkin, Rússar og Bandaríkjamenn, komið sér saman um að hverfa á brott úr Kóreu sumarið 1949, og gerðu þau það. Klukkan 5.50 morguninn 23. júní 1950 réðust Norðanmenn suður yfir 38. breiddarbauginn inn í Suður- Kóreu. Segja má, að nokkuð séu skipt- ar skoðanir um þennan atburð, því að kommúnistar um heim allan hafa lagt mikla alúð við að sanna, að það hafi verið Suður-Kóreumenn, sem réðust norður yfir bauginn, enda þótt sú „innrás“ breyttist þegar á þann hátt, að óvígur her Norðanmanna sótti suður á bóginn og var nær bú- inn að leggja undir sig allt landið. Skriðdrekar frá rússneskum verk- smiðjum fóru í fararbroddi og her- sveitir Sunnanmanna gátu lítið sem ekkert viðnám veitt, og leystist vörn þeirra von bráðar upp. Þegar þessi tíðindi bárust frá Kóreu, óskuðu Bandaríkjamenn þeg- ar eftir fundi í öryggisráði sameinuðu þjóðanna. SamþjTkti öryggisráðið fyrirskipun um vopnahlé þegar í stað og skyldu hersveitir Norðanmanna hörfa norður fyrir 38. breiddarbaug- inn. Það mega ef til vill heita duttl- ungar örlaganna, að nú, þrem árum síðar, eftir að borgir hafa verið brenndar og sprengdar og milljónir manna hafa fallið, særzt, soltið og misst húsnæði sitt, hefur verið samið um vopnahlé og liggnr hið hlutlausa belti milli herjanna mjög skammt frá 38. baugnum. Hinn 27. júní samþykkti öryggis- ráðið að kalla hinar sameinuðu þjóð- ir til aðstoðar við að brjóta á bak aftur innrás kommúnista og koma á friði í Kóreu. Þetta var í fyrsta sinn í sögunni, sem slík samþykkt hefur verið gerð og henni fylgt eftir. Banda- ríkjamenn höfðu mestan styrk og bezta aðstöðu til þess að framkvæma þessa samþykkt öryggisráðsins (sem var gerð með 7 atkvæðum gegn engu), þar sem þeir höfðu her í Jap- an. Gaf Truman forseti fyrirskipun um það, að hersveitir lands hans í Japan skyldu þegar fara til aðstoðar við Suður-Kóreumenn. Þetta gerðist í sama mund og hersveitir Norðan- manna héldu inn í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu og raunar landsins alls fyrr á árum. Douglas MacArthur var um þess- ar mundir yfirhershöfðingi Banda- ríkjamanna í Japan. Flaug hann nú til Kóreu og athugaði ástandið. Komst hann að þeirri niðurstöðu, að ekki mundi duga sú aðstoð flughers og flota, sem þegar var hafin, heldur yrði að flytja landher til Kóreu. Var það nú gert, en jafnframt létu Bret- ar í té allan Austur-Asíuflota sinn og síðar hafa 15 þjóðir sent beina að- stoð herjum Sþ í Kóreu. Það mun hafa verið 5. júlí, sem bandarískir hermenn og Norðanmenn áttust fyrst við í nágrenni við borg- ina Suwon, og var þá styrjöldin orð- in meira en heimamál Kóreumanna, enda var hún það í eðli sínu frá upp- hafi. Var nú sent allmikið herlið til borgarinnar Pusan í Suður-Kóreu, en Norðanmenn sóttu fram jafnt og þétt og fengu hvorki Sunnanmenn né hin- (Framh. á 1S. síðu) 13

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.