Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 8
Teikning af hinum nývigöa sanwinnuskóla við Hamborg. virkja hennar, og var nú horfinn með öllu samvinnusvipur á starfinu, lýð- ræðið þurrkað út og traðkað á hverri glóð hugsjóna. En þó voru enn starf- andi við félögin margir sannir sam- vinnumenn, sem áttu þó mjög í vök að verjast, enda gætti þeirra minna með hverju ári, sem leið. I aðalstöðv- um samvinnuheildsölunnar, GEG, sat Elenry Everling og tókst með þrautseigju sinni og festu að hindra margt tilræðið við hreyfinguna. Arið 1935 greiddu nazistar sam- vinnuhreyfingunni enn hnefahögg. Þá settu þeir n}l „samvinnulög“, en samkvæmt þeim voru flest stærstu kaupfélög landsins leyst upp. Voru þetta félögin í stórborgurium og höfðu þau um milljón félagsmenn. Verzlanir þeirra voru seldar einstakl- ingum, oft fyrir hlægilega iágt verð. Þá var kaupfélögunum bannað að hafa innlánsdeildir og var þannig kippt undan þeim mikilvægum fjár- hagslegum stoðum. Loks var búið svo um hnútana, að stofnun nýrra kaup- félaga var vart möguleg og háð leyfi nazistayfirvaldanna. Eírakaði nú mjög samvinnufélögunum, sem nærri má geta, og 1938 var félagsmannatal- an komin niður fyrir tvær milljónir. Það var svo árið 1941, að nazistar gerðu endanlega út um örlög sam- vinnufélaganna. Þá voru þau hrein- lega sameinuð geysilega mikilli verzl- unarkeðju eða hring, sem myndaður var um allt Þýzkaland og gekk und- ir nafninu CW. Viðreisn eftir styrjöldina. Sem hetur fer var þó ekki mikið eftir af valdatíma nazista, enda þótt fall þeirra leiddi yfir þýzku þjóðina hinar mestu hörmungar, svo sem aðr- ar styrjaldarþjóðir höfðu orðið að þola. EZftir að friður var saminn var lúð þýzka þjóðfélag í rústum, við- skiptalíf varla til nema frumstæð vöruskipti og vindlingar næst því að vera gjaldmiðill í landinu. Þar að auki hafði mestöllum eignum sam- vinnufélaganna verið blandað saman við eignir nazistahringanna og því enginn leikur að ná aftur þeirri að- stöðu, sem kaupfélögin þurftu nauð- synlega að komast yfir td að geta tekið til starfa á nýjan leik. Ilimi öluli, l>Ýzl<i samvinnuleiðtogi, Hcnry Everling. Það verður að segja þýzkum sam- vinnumönnum og samvinnuhugsjón- inni sjálfri til verðugs hróss, að gegn- um allar þessar hörmungar frá 1932 td 1945 hafði þó aldrei slökknað nteð öllu á kyndli samvinnuhugsjónarinn- ar. Margir menn voru enn til, sem biðu aðeins eftir tækifæri til að hefja kyndilinn aftur hátt og taka upp frjálst samvinnustarf, þar sem frá var horfið, er stormsveitirnar byrjuðu að brjóta rúður kaupfélagsbúðanna. Fremstur í flokki þessara manna var enn Efenry Everling. Það þurfti hugrekki til að hefja merki samvinnunnar á loft úr rúst- um sigraðrar þjóðar, eins og Þjóð- verjar voru 1945. Það þurfti að sækja allt til tortrygginna hernámsyfirvalda frá fjórum stórveldum, — og það sótt- ist seint. Bezt gekk þetta þó á her- námssvæði Breta, enda varð viðreisn kaupfélaganna og GEG þar hvað mest. Breiar sendu cinnig þrjá sam- vinnuráðunauta til hernámsliðs síns og var fyrir þeim hóp hinn kunni samvinnufrömuður, W. P. Watkins. Smám saman miðaði starfinu og hin stolnu mannvirki komu aftur í hend- ur þess fólks, er átti þau í samvinnu- samtökum sínum. Nú er svo komið, að blómlegt og hraðvaxandi starf liggur eftir þýzka samvinnumenn og þeir hafa aftur tek- ið sæti sitt í alþjóðasamtökum sam- vinnumanna. Meðlimatala kaupfélag- anna í Vestur-Þýzkalandi einu nálg- ast nú tvær milljónir og verzlanir eru þar um 7.000, en tala. starfsmanna og kvenna orðin 37.000. Alls eiga kaup- félögin 126 brauðgerðir, 20 sláturhús og 73 aðrar verksmiðjur. Austur-Þýzkaland enn í fjötrum. En það hvílir enn skuggi yfir þýzku samvinnuhreyfingunni, eins og raun- ar allri þýzku þjóðinni. Þýzkaland er skipt í tvö ríki, Bonn-lýðveldið að vestan og Austur-Þýzkaland að aust- an. Allar tilraunir til þess að sameina samvinnuhreyfinguna um allt landið strönduðu á kröfum fulltrúanna frá héruðunum austan járntjaldsins. Eins og í öðrum ríkjum kommún- ista, er sú starfsemi, er ber samvinnu- nafn, ærið fjölþætt og hefur marga félagsmenn. En þetta er ekki frjáls samvinnuhreyfing, og segir þýzki (Framh. á 21. siðu) 8

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.