Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 22

Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 22
Sambandið og hlutafélög þess Framh. aj bls. 3. hús við Kirkjusand í Reykjavík. Ekki var það keypt til þess að SIS eignaðist fiskfrystihús í Reykjavík. Um slíkt hefði vel mátt deila. Hins vegar var tilgangurinn sá að koma upp kjötmiðstöð fyrir Reykjavík, en SÍS hefur und- anfarin ár annazt verulegan hluta af kjötútvegun og kjöt- geymslu fyrir höfuðborgina í allsendis ófullnægjandi hús- næði. Hefur Sambandið um nokkurra ára skeið gert mikl- ar tilraunir til að fá skipulagða fullkomna kjötmiðstöð fyrir bæinn, þar sem koma mætti fyrir kjötskoðun, geymslu og kjötiðnaði á fullkomnasta hátt. Þetta hefur ekki tekizt fyrr en eftir kaupin á Kirkjusandi, en þar hefur „kjötbær Reykjavíkur“ nú verið skipulagður og verður þar mið- stöð allrar kjötdreifingar í bænum, bæði á vegum Sam- bandsins og annarra. Hefur mál þetta verið undirbúið í náinni samvinnu við borgarlækni og önnur yfirvöld og teikningar af svæðinu gerðar af opinberum aðilum. Ekki verða því kaupin á þessu hlutafélagi á nokkurn hátt heim- færð undir óviðkomandi brölt, heldur er þetta stórt fram- faraskref við lausn á elzta verzlunarhlutverki SIS, sem er sala á kjöti. 5) Hrímnir h.f. er hlutafélag, sem átti og á lóðir og eignir við Kirkjustræti í Reykjavík. Sambandið keypti þetta félag af þeirri ástæðu einni, að það vildi komast yfir lóðirnar og gat það ekki á betri hátt. Hefur þetta í blaða- skrifum verið fordæmt sem „lóðabrask“, enda þótt ekki sé ætlun Sambandsins að braska með þessar lóðir, heldur eru þær keyptar í einum, ákveðnum tilgangi, en hann er sá að reisa þarna myndarlegt vöruhús eða deildaverzlun (magazin í nágrannalöndum). Þetta er framtíðardraum- ur íslenzkra samvinnumanna. Reykjavík er ekki aðeins verzlunarstaður fyrir Reykvíkinga, heldur fyrir alla lands- menn. Þangað kemur fólk víðs vegar að af landinu til að verzla að einhverju leyti og þar er velt meira fé í verzlun- inni en nokkurs staðar annars staðar. Þar er einnig lang- sterkust kaupmannaverzlun á öllu landinu. Það væri því eðlilegt, að samvinnufélögin öll, sem standa að SIS, tækju saman höndum um að gera þar stórátak og hrinda af stað þeirri byltingu, sem slík verzlun á mörgum hæð- urn mun verða. Enda þótt þess kunni enn að verða nokk- ur bið, að þessi draumur rætist, er það ekki nema eðlileg forsjálni, sem á ekkert skylt við lóðabrask, að tryggja hentugar lóðir fyrir slíka stórverzlun, þegar þær eru fá- anlegar. Sams konar forsjálni kom fram hjá norrænum samvinnumönnum fyrir nokkru, er þeir kejrptu National Scala í miðri Kaupmannahöfn, og keft r engum dottið í hug að minnast á lóðabrask þar. 6) Regin h.f. heitir hlutafélag, sem á jörðina Gunnu- nes við Þerneyjarsund. Sambandið hafði áður eignazt Þerney, og voru báðar þessar eignir keyptar á mjög hag- kvæmu verði á hagkvæmum tímum. Tilgangurinn er að nota þær sem framtíðar iðnaðarlóðir fyrir samvinnufé- lögin, enda er aðstaða þarna hin hentugasta til slíkra hluta. I Þerneyjarsundi má gera hina ákjósanlegustu höfn, ekki sízt eftir að sami aðili eignaðist jörðina land- megin við það. Onnur aðstaða fyrir framtíðar iðnfyrir- tæki er einnig hin bezta, og er það af forsjálni gert og með tilliti til framtíðar hagsmuna samvinnuhreyfingarinnar, að þessar eignir hafa verið keyptar. Hefur slík forsjálni í jarðakaupum forstöðumanna kaupfélaganna og Sam- bandsins áður gefið ríkulegan ávöxt, er félögin og Sam- .bandið hafa þurft á lóðunum að halda undir ný mann- virki, og er enginn efi á því, að svo mun reynast enn. í þessu sambandi má minna á framtak sænskra samvinnu- manna, er þeir keyptu Kvarnholmen við Stokkhólm, en þar hafa þeir skapað hið myndarlegasta athafnasvæði og hlotið verðugt lof fyrir af ailra hálfu. 7) Snœlandsútgáfan er hér talin með, því að hún var keypt á þessu tímabili, en hún hefur nú verið Iögð nið- ur sem hlutafélag og sameinuð annari útgáfustarfsemi samvinnumanna. 8) Bókaútgáfan Norðrí er ennþá hlutafélag, en nú er verið að vinna að upplausn þess hlutafélags, enda þótt starfseminni verði að sjálfsögðu haldið áfram. Til eru þeir menn, sem draga í efa, að það sé rneðal brýnustu verk- efna samvinnusamtakanna að gefa út bækur. En hinir eru stórum fleiri, sem skilja, að samvinnuhreyfingin hefur mikilsverðu menningarhlutverki að gegna og hún á sér stórum margþættari verkefni en að selja kjöt og hveiti. Þess vegna hafa samvinnumenn á nokkrum síðustu árum komið upp margþættri og hraðvaxandi útgáfustarfsemi. 9) Islendingasagnaútgáfan er níunda og síðast þessara hlutafélaga samvinnumanna. Hefur raunar verið gerð nokkur grein fyrir kaupum þessa fyrirtækis hér í blaðinu fyrir skömmu, en kjarni þess máls var sá, að þessi útgáfa byggist á áskriftakaupum hinna stóru bókaflokka, og þarf því að binda allmikið fé í henni, þegar bækurnar eru prent- aðar. Þótti ekki annar kostur vænni en að fá einhver öfl- ug fjöldasamtök landsmanna til að taka útgáfuna að sér og urðu samvinnusamtökin til þess. Munu þau telja sér sóma af því að gegna því menningarhlutverki fyrir þjóð- ina að skapa þessu fyrirtæki þau starfsskilyrði, sem það þarfnast, og lofa því að dafna í sama dúr og hingað til. Hér hefur þá verið gerð nokkur grein fyrir þeim hluta- félögum, sem SÍS á og hefur eignazt á síðustu árum. Geta menn nú um það dæmt, hvort hér er um að ræða ábyrgð- arlaust brask eða samstillta starfsemi eftir skynsamleg- um línum. Það er sérstaklega athyghsvert að íhuga þessi hluta- félög með tilliti til skattamála. Því er haldið fram, að SIS njóti mikilla skattfríðinda, en reynslan er samt sú um þá starfsemi, sem hér hefur verið lýst, að það hefur reynzt skattléttara að reka hana í hlutafélögum en innan sam- vinnufélags! Þessi hlutafélög öll eru, eins og allt annað í starfi sam- vinnuhreyfingarinnar, háð endanlegri stjórn samvinnu- fólksins sjálfs og fyrir þau er svarað á aðalfundum eins og aðra starfsemi. Þau eru skynsamleg skref til að auka samvinnustarfið í landinu eða hyggilegar ráðstafanir til að búa í haginn fyrir framtíðina. 22

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.