Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 3

Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 3
 SAMVINNANl Samband'ib og klutafélög þess Fyrir nokkru síðan orti eitt af kýmniskáldum þjóðar- innar dægurmáladrápu, þar sem eitt erindið hljóðaði svo: Hátt yfir Hornafjörðinn hærugrár kollur rís, — víðfrægur Vatnajökull; þeir vilja kaupa ’ann í SIS. I síðustu línunni kemur fram hjá skáldinu í skemmti- lega ýktri mynd áróður, sem haldið hefur verið uppi gegn samvinnusamtökunum nokkur undanfarin ár. Sérhags- munamönnum hefur þótt nóg um vöxt og viðgang sam- takanna og þeir hafa hrópað úlfur, úlfur, og síðan í hneykslun sinni fullyrt, að Sambandið stofnaði hlutafé- lög til hægri og vinstri og vildi kaupa allt og alla. Skáld- ið gerir þá dálítið broslega með þeirri tilgátu, að senni- lega vilji þeir í SlS kaupa sjálfan Vatnajökul! Allir sannir samvinnumenn í þessu landi eru stoltir af þeim stórbrotna árangri, sem orðið hefur af samvinnu- starfinu, síðan í styrjaldarlok, og þeir vita, að þessi starf- semi miðar öll að einu og sama marki: að bæta lífskjör fólksins og létta því lífsbaráttuna. Hitt er svo fram- kvædaatriði, sem rúmast innan lj'ðisramma hreyfingar- innar allrar, að stundum hefur reynzt skynsamlegra og hagkvæmara að nota hlutafélagsform fyrir einstakar framkvæmdir. Þegar þjóðfélagið skapar slíkar aðstæður, hika samvinnumenn hér á landi og erlendis ekki við að fara þá leiðina, sem hagkvæmust er fyrir umbjóðendur þeirra, hvaða nöfn, sem andstæðingar samvinnustefnunn- ar kjósa að gefa slíkum tilraunum. SIS hefur á tæplega áratug stofnað eða keypt níu hlutafélög, auk Olíufélagsins, sem margir fleiri standa að. ÖIl þessi félög eru stofnuð í ákveðnum tilgangi, sem er í hverju skipti beinlínis viðkomandi höfuðstarfsemi Sam- bandsins, verzluninni, eða bókaútgáfu. Ekki verður um það deilt, að meginhlutverk samvinnusamtakanna er hagkvæm verzlun, og því hlýtur hvert skref, sem stigið er til að bæta verzlunaraðstöðu þeirra, nú eða í framtíð- inni, að vera spor í rétta átt fyrir hrejdinguna. Bezt er að teygja ekki lopann um hlutafélögin 9, held- ur kynna þau hvert af öðru fyrir lesandanum, svo að hann geti sjálfur dæmt og síðan látið til sín heyra á aðalfundi síns kaupfélags og síðan aðalfundi Sambandsins, ef hann telur eitthvað nnsráðið í þessum aðgerðum. Sé hann þeint hins vegar samþykkur, ber honurn að hjálpa til þess að kveða niður „Vatnajökulsdrauginn“. Hér koma þá hluta- félögin fordæmdu, öll níu: 1) Dráttarvélar h.f. nefnist hlutafélag, eign SlS og stofnað 1949. Hlutverk þess er að flytja inn Ferguson dráttarvélar eingöngu. Tildrög að stofnun félagsins eru þau, að margir samvinnubændur óskuðu eftir að kaupa Ferguson dráttarvélar (yfir 800 hafa gert það) og Fergu- son vildi gjarna, að SlS færi með umboðið og reyndist hentugast að gera það á þennan hátt, enda hefur það gefið ágæta raun. 2) Jötunn h.f. var um skeið all umsvifamikið félag í Reykjavík, sem fékkst við járnsmíðar og fleira og átti allmiklar húseignir. Svo stóð á, að Sambandið hafði brýna þörf fyrir húsnæði undir bifreiðaverkstæði, sem það var skuldbundið til að koma upp vegna bifreiðaumboða sinna. Einnig vantaði algerlega húsnæði fyrir varahlutagevmsl- ur, rafmagnsdeild og sitthvað fleira. Reyndist gersamlega ómögulegt að fá fjárfestingarleyfi til að byggja, svo að SIS sá þann kost vænstan að kaupa Jötun til að bjarga sér úr þessum vanda. Járnsmíðar félagsins voru lagðar niður, og eftir að óreiður einkarekstursins á félaginu höfðu verið gerðar upp, er hagur þess með ágætum. Þær þúsundir manna um land allt, sent keypt hafa bú- vélar, bifreiðar eða heimilistæki af samvinnufélögunum, njóta þess, hvort sem þeir átti sig á því eða ekki, að þessi aðstaða er fyrir hendi. 3) Utgerðarfélag SIS á Reyðarfirði var stofnað um út- gerð eins af Sambandsskipunum. Jökulfells, sem á heima- höfn þar eystra. Sambandsskipin eiga heimahafnir víða um land, og er það gert fyrst og fremst í heiðursskyni við byggðir og kaupfélög, en skipin eru raunverulega rekin af skipadeild SÍS í Reykjavík og skattlögð þar. Utgerðar- félagið á Reyðarfirði var stofnað af skattaástæðum og hefur sú skipan reynzt mjög hagkvæm fyrir samvinnusam- tökin. 4) Kirkjusandur h.f. er félag, sem á samnefnt frysti- Framh. á bls. 22. 3

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.