Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 16

Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 16
Kaupfélagið á Kópavogshálsi Félagsmenn reistu verzlunarhús i sjálfboðavinnu Á aðalfundi SÍS í sumar bættist eitt kaupfélag í samvinnusamtökin. Var það Kaupfélag Kópavogs, sem stofn- að var á miðju síðasta ári og starf- rækir nú sölubúð á Digraneshálsi. Af þessu tilefni sneri Samvinnan sér til Hannesar Jonssonar, félagsfræð- ings, formanns félagsins, og spurðist fyrir um j'mislegt í sambandi við stofnun og rekstur þess. Fer samtalið hér á eftir: „Voru ekki verzlunaraðstæður erf- iðar á Digraneshálsi, áður en félagið opnaði búð sína?“ „Jú, Kópavogur hefur vaxið örar en nokkur önnur byggð landsins á undanförnum árum. Traðahverfi og Eystribyggð hreppsins (þ. e. byggðin efst á Digraneshálsi austan Hafnar- fjarðarvegar) spratt upp á örfáum ár- um, og voru flest húsin byggð af eig- endunum sjálfum í tómstundum. Fyrr en varði bjuggu fjölmargar fjölskjdd- ur í þessari byggð, enda þótt samfé- lagsþjónusta væri þar lítil, t. d. eng- m verzlun. Þurftu húsmæður okkar því að sækja allar nauðsynjar í mis- jöfnum veðrum 10—20 mínútna leið. Var þetta ekki svo slæmt sumarmán- uðina, en í snjóþyngslum og vetrar- hörkum þreyttist mörg konan á að fara þessa löngu leið frá börnunum eða með þau til þess að kaupa mjólk, fisk og aðrar nauðsynjar. — Eg er viss um, að flutningarnir hefðu orðið tíðir úr byggðinni s.l. vetur og vor, ef verzlunin hefði ekki komizt upp fyrir veturinn.“ Vildu fd KRON til að opna verzlun. „Idvenær byrjuðuð þið að vinna að því að koma upp verzlun í hverf- inu?“ „Það mun hafa verið um miðjan júlí 1952, að við ræddum nokkrir um kvartanir húsmæðra okkar yfir þess- um erfiðu verzlunarferðum. Kom okkur saman um að biðja KRON að Verzlunarhiís Kaupjélarstns á Kópavogshálsi. opna búð í nágrenninu og snerum okkur bréflega til félagsins með þessa ósk okkar. Lögðum við áherzlu á nauðsyn þess, að búðin kæmist upp fyrir veturinn, og til að stuðla að því að svo gæti orðið, tr}'’ggðum við, að KRON yrði látið ganga fyrir kaup- um á ódýru, fokheldu húsi í hverfinu, sem ákveðinn kaupmaður hafði þá gert tilboð í. KRON treysti sér hins vegar ekki til að gera þessi kaup eða !ofa verzlun í hverfið fyrir veturinn, en þakkaði hins vegar velvild sýnda félaginu, með óskum okkar um, að það yrði fyrst til að opna þarna verzl- un.“ „Aðaláhugamál ykkar hefur sem sé verið að fá búð í hverfið?“ „Já, og þegar KRON treysti sér ekki að opna þarna, þá reyndum við ný úrræði.“ „Og hver voru þau?“ „Eigandi fokhelda hússins, sem við ætluðum að útvega KRON, tók til- boði kaupmannsins, og við snerum okkur til hans og spurðumst fyrir um það, hvort hann hugsaði sér að setja á stofn verzlun í því. Hann hafði hugs- að sér það, en ætlaði ekki að selja all- ar vörur, t. d. ekki mjólk, og hefðu konur okkar því eftir sem áður orðið að sækja daglega verzlun niður í Fossvog. — Það var fyrst þegar svo var komið, að útilokað virtist að fá KRON og kaupmann til að stofnsetja verzlun í hverfinu, að við ákváðum að stofna okkar eigið kaupfélag, byggja okkar eigin búð og leysa verzl- unarvandamál hverfisins í heild sjálf- * U 11. Verúunarhús byggt á 15 kvöld- um í sjálfboðavinnu. „Og hvenær var félagið formlega stofnað?“ „Fyrsta ágúst 1952. 15. ágúst var sótt um fjárfestingarleyfi fyrir 86 m2 16

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.