Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 18

Samvinnan - 01.08.1953, Blaðsíða 18
Teiknibókin í Árnasafni (Framh. aj 6. siðu) sama mark lengur niðri á skipinu en uppi í siglutoppi, því að það er nær ströndu.“ Við eigum þannig heimildir fyrir því, bæði á mynd og í rituðu máli, að hnattlögun jarðar hefur verið Islend- ingum staðreynd löngu áður en hirð- ar kristninnar sunnar í álfunni tóku að bannfæra menn og brenna fyrir svipaða skoðun. Mynd þessari hnýtist enn eitt skemmtilegt vandamál. Er hún stæl- ing erlendrar myndar eða íslenzk hug- arsmíð? Höfundurinn kann glögg skil á utbúnaði skipa og öðru því, sem til sjávar heyrir, en á hinn bóginn ber kastalinn og tygi riddarans sýnu meiri blæ ímyndunar. Sauðkindin er ís- lenzk, maðurinn, sem dregur fiskinn, er með hettu yfir sér eins og mjög tíðk- aðist hérlendis, hesturinn er fremur smávaxinn og laufkróna trésins virð- ist sízt verk suðrænna handa. Höf- undurinn hefur verið erlendis, það þykist ég vita fyrir víst. Gæti þá hugs- azt, að staðhættir þessarar myndar væru raunverulegir, gerðir eftir minni hans? Um það hef ég oft spurt sjálf- an mig. Þeir eru mjög ljósir: Höllin stendur á bala úti við sjó, síðan tekur við strandlengja til vinstri, og hand- an við tréð rís hár, gróinn klettur. Nokkru lengra út með ströndinni og ívið neðar sér á borg með turnum, og út frá henni er höfnin. I vor vildi svo til, að ég rakst á gamla mynd, frá því um 1400, og er ég fór að skoða hana, fannst mér hún koma mér kunnug- lega f^'rir sjónir. Hún er frá Lúbeck eða Lýbíkuborg, er séð frá borginni, í átt til fornrar hallar, sem stendur þar á háum bala úti með ströndinni. Ég fór að bera hana saman við mynd Teiknibókarinnar og því meira, sem ég skoðaði, minnkaði vafinn. Öll af- staða er nákvæmlega eins, meira að segja eru kúlur á turnum hallarinnar í báðum myndum. Þótt allt þetta væri tilviljun ein, þá verður einu smáatriði varla haggað. í Georgsmyndinni sá- um við háan klett úti við sjóinn (á bak við tréð), gróðri vaxinn, og slút- ir fram yfir sig á báða vegu. Yzt til vinstri í hinni myndinni er þessi sami klettur, einnig gróinn ofan og slútandi. Eini munurinn er sá, að þar er hann sýndur inni í borginni, en einmitt það virðist benda frekar til þess, að mynd Teiknibókar sé gerð eftir minni en ekki mynd. í gömlum kortum af Lý- bíkuborg er öll afstaða sýnd sem hér (nema hvað höfnin er miklu þrengri) og á einu gömlu korti ber þar svo skemmtilega við, að vellir utan við borgina eru nefndir Heilags Georgs vellir. Er þvf ekkert sennilegra en að maður, sem víða hefur farið, veldi ein- mitt þennan stað til staðsetningar myndar heilags Georgs. Nú er auðvitað ekki fyrir það að synja að mynd Teiknibókarinnar geti verið stæling innfluttrar myndar að nokkru leyti. Lubeck flutti út ógrynn- in öll af máluðum og skornum altaris- töflum, og voru Norðurlönd ekki sízt- ur markaður þeirrar framleiðslu. En hinsvegar voru viðskipti íslendinga við Ltibeck mikil og því greiður veg- ur Islendingi að komast þangað. Og þó er þyngst á metunum, að margar myndir bókarinnar benda mjög til þess, að höfundurinn hafi lagt leið sína til Norður-Þýzkalands. Þótt efni myndarinnar sé langt frá því tæmt, — reiðtygi, búningar, skip og bygging felur allt í sér fersk athug- unarefni, — þá læt ég þó hér staðar numið. Ég hef aðeins drepið á nokkur at- riði einnar myndar í þessari merku bók. En hver síða hennar býr yfir leyndardómum og leiðir okkur inn á ókunna stigu íslenzkrar menningar- sögu. Þannig er um myndir í hundr- uðum handrita Arnasafns. Með end- urheimt þessara fornu skinnbóka væru ekki aðeins færðar til sinnar fósturjarðar dýrustu perlur íslenzkra bókmennta, heldur einnig margslung- inn og órannsakaður myndheimur ís- lenzku miðaldanna. Kóreustyrjöldin (Framh. aj 13. siðu) ir nýkomnu Bandaríkjamenn við sóknina ráðið. I ágústmánuði höfðu Bandaríkja- menn hyggt upp öfluga varnarlínu umhverfis borgina Pusan og hugðust halda þar örlítilli skák af Kóreuskaga. Þessa varnarlínu gátu kommúnistar aldrei rofið. I septembermánuði gerðu hersveitir sameinuðu þjóðanna mikla gagnsókn, ekki á víglínunni umhverf- is Pusan, heldur með því að ganga á land af miklum skipaflota við borg- ina Inchon, sem er hafnarborg Seoul. Náðu þeir þar fótfestu þegar í stað og sóttu inn í landið. Komu þeir nú kommúnistaherjunum í opna skjöldu og á skammri stundu gerbrejTtist hernaðaraðstaðan. Herir sameinuðu þjóðanna tóku mikinn fjölda fanga, margar herdeildir kommúnista leyst- ust upp og MacArthur skoraði á Norðanmenn að gefast upp. Ekki var þeirri málaleitan svarað, og hófu þá herir sameinuðu þjóðanna sókn norð- ur fyrir 38. breiddarbauginn. Höfðu þeir á skömmum tíma lagt undir sig mikinn hluta Norður-Kóreu. Hinn 25. október bárust fregnir um það, að kínverskar hersveitir hefðu farið yfir Yalufljót inn í Norð- ur-Kóreu. Streymdu nú herir hinna kínversku kommúnista inn í landið, hófu sókn gegn sameinuðu þjóðunum, sem ekki voru við varnaraðstöðu bún- ar, og urðu því von bráðar að hörfa á nýjan leik. Sóttu nú Kínverjar af þrótti miklum suður eftir Kóreu- skaga, en herir sameinuðu þjóðanna urðu að láta undan síga, suður fvrir 38. bauginn, suður fyrir Seoul. I marz- rnánuði gerðu sameinuðu þjóðirnar gagnsókn mikla og hröktu Kínverja aftur norður fyrir 38. bauginn og stóðu leikar þannig, þegar stríðið hafði stað- ið í eitt ár. Síðan hefur vígstaðan lítið sem ekkert breytzt í tvö ár. Það var á fyrsta afmælisdegi stríðs- ins, sem Jakob Malik, fulltrúi Rússa hjá sameinuðu þjóðunum, gaf það í skyn í ræðu, að hægt mundi að leysa Kóreustríðið með samningum. Leiddi þetta til þess, að viðræður hófust 10. júlí, og hafa þær staðið, að vísu ekki óslitið, í tvö heil ár, þar til loks tók- ust samningar um vopnahlé. Þannig er í mjög stórum dráttum harmsaga þessarar styrjaldar. Nú er eftir að vita, hversu tekst að semja endanlegan frið við samningaborðið. Ur því munu næstu mánuðir skera. 18

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.