Samvinnan - 01.08.1953, Page 19
Bókabúð, sem leggur áherzlu á öflun erlendra bóka
Það er viðurkennd staðreynd með-
al þeirra, sern starfa við bókaútgáfu
í þessu landi, að stórt forlag geti varla
starfað án þess að eiga greiðan að-
gang að bókabuð í höfuðstaðnum. Að
þessari niðurstöðu hníga ýms rök, sem
ekki verða rakin hér, en það var þessi
brýna þörf, sem varð til þess, að bóka-
útgáfan Norðri opnaði bókabúð í
Reykjavík haustið 1950.
Nú hefur farið svo í þriggja ára
starfi, að bókabúðin hefur ekki að-
eins gegnt sínu hlutverki fyrir útgáf-
una, verið sölustaður hennar, sýning-
argluggi og afgreiðsla fyrir tímarit
hennar og bókaflokka. Búðin hefur
þróazt eftir sínum eigin leiðum og
skapað sér nokkur séreinkenni, og er
það merkilegt, að þessi einkenni henn-
ar eru alger andstæða við helztu ein -
kenni Norðra sem bókaútgáfufyrir-
tækis. Svo er mál með vexti, að bóka-
búðin hefur lagt æ meiri áherzlu á
öflun góðra, erlendra bóka, en Norðri
hefur frá öndverðu verið eitt þjóðleg-
asta af forlögum landsins og lagt meg-
ináherzlu á útgáfu þjóðlegra fræða og
alþýðufróðleiks.
Það eru gildar ástæður fyrir því, að
Myndirnar sýna Grim Gislason, verzJunarstjóra,
~>ið ajgreiðsJu i bóhabúð Norðra.
eplið hefur á þennan hátt oltið frá
eikinm. Hér á landi liefur undanfar-
in ár verið erfitt um öflun erlendra
bóka. Þegar séð varð, að bókabúð
Norðra gat með ágætum gegnt hinu
fyrsta hlutverki sínu, sneru ráðamenn
hennar sér að því að leggja hönd á
plóginn við lausn á þessum vanda,
sem var á útvegun erlendra bóka.
Tókst það starf svo giftusamlega, að
búðin hefur unnið sér orð fyrir að
hafa á boðstólum góðar, erlendar bæk-
ur, og bókamenn á önnur mál en ís-
lenzku hafa komizt að raun um, að
þar geta þeir fengið margt, sem þeir
ekki fá í öðrum bókaverzlunum. Án
þess að kasta steini að nokkrum sér-
stökurn, verður að segja það, að yfir-
leitt er nú gnótt lélegra, erlendra bók-
mennta og tímarita í bókhlöðum Is-
lendinga, en lítið um hið betra. Hefur
starfsemi bókabúðar Norðra fallið í
því betri jarðveg, sem þessi staðre^md
varð fleirum ljós.
(Framh. á 21. siðu)
19