Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1954, Page 2

Samvinnan - 01.09.1954, Page 2
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavík. Ritstjórnarsími 7080. Kemur út mánaðarlega. Verð árgangsins kr. 40.00. Verð í lausasölu 5 kr. Prentsmiðjan Edda. Efni: Sameinuðu þjóðirnar styðja samvinnu .................... 3 Velkomið heim, Helgafell! 4 Tungan og þjóðernið, eftir Jón Sigurðsson, Yztafelli . . 6 Fulltrúar 117 milljón sam- vinnumanna á þingi í París 9 Hinn dularfulli boðskapur, smásaga eftir Idu Wylle . . 11 Kaupfélagskonur leggja land undir fót, eftir Ragnar Ás- geirsson......... ......... 13 Maðurinn, sem ráðið hefur útliti 31.000.000 bifreiða 16 Bein Páls biskups í steinkist- unni ...................... 17 Rækjuuppskriftir ........... 18 Betri búnaðarhættir, betri verzlun, betra líf......... 24 Hefndin, söguþáttur eftir Jón Björnsson.............. 27 Gulleyjan, myndasagan ... 31 SEPT. 1954 XLVIII. árg. 9. YFIR SUMARTÍMANN ber marga erlenda gesti að garði samvinnufélag- anna og getur verið fróðlegt að frétta af þeim um samvinnustarfið í þeirra löndum, fá hjá þeim hugmyndir, sem ef til vill mætti hafa not af hér á landi og sýna þeim þann árangur, sem hér hefur- náðst. Einn þeirra manna, sem lögðu leið sína til íslands á þessu hausti í þeim tilgangi einum að kynn- ast samvinnustarfinu hér, var Ame- ríkumaðurinn G. E. O. Jacobsson. Er hann af norskum ættum og stjórnar tryggingasamvinnufélagi í St. Paul í Minnesota. Starfar félag þetta að nokkru leyti eins og sjúkrasamlag, en vegna lítilla afskipta hins opinbera af sjúkratryggingum vestur þar er all- margt félaga á því sviði. JACOBSON skýrði frá því, að sam- vinnan ætti mestu fylgi að fagna með- al bænda í Bandaríkjunum og væru samvinnufélögin sterk í hvers konar afurðasölu fyrir þá. Nefndi hann ýms dæmi þess, til dæmis hin miklu Land o’ Lakes samvinnumjólkurbú, sem hafa aðalstöðvar sínar í Minneapolis. Hins vegar kvað hann samvinnumenn ekki vera áhrifamikla í smásölu á matvör- um og öðrum nauðsynjum. Sagði hann, að fyrirtæki þau, sem ættu flestar matvöruverzlanirnar, væru geysistór, hefðu álagningu yfirleitt lága, en hefðu tekjur sínar af hinu mikla magni sölunnar. Vöruverð væri yfir- leitt sanngjarnt, og hefðu samvinnu- menn því talið sig geta gert meira gagn með því að beina kröftum sínum fyrst að öðrum verkefnum. Nefndi Jacobson olíuverzlun fyrsta í því sam- bandi, en á því sviði eru samvinnufé- lög mikil og öflug. Tryggingafélög nefndi hann einnig, og eru til mjög þróttmikil samvinnutryggingafélög vestra, þeirra mest Ohio Farm Bureau. VERKSMIÐJUR SAMVINNUMANNA senda stöðugt frá sér nýjungar, enda er unnið sleitulaust að því að gera framleiðslu þeirra betri og fjölbreytt- ari. Nú er til dæmis verið að setja upp í fataverksmiðjunni Heklu nýjar gerð- ir prjónavéla og mun önnur þeirra skila fínasta prjóni og hin grófasta, sem gert er hér á landi. Fíntprj ónaðar vörur eru ávallt vinsælar og einmitt í vetur eru grófprjónaðar vörur, sér- staklega peysur og vesti, mjög í tízku. Verður gaman að sjá hina nýju fram- leiðslu, þegar hún kemur á markað- inn. REGINN, dótturfélag Sambandsins, sem vinnur að ýmsum bygginganýj- ungum, tók nýlega að sér að reisa vatnsgeymi fyrir kauptúnið Hellis- sand. Var hann steyptur eins og vot- heysturnar og tók verkið aðeins 30 klukkustundir, eftir að grunnur hafði verið lagður. Geymirinn er 5 metrar í þvermál og 5 á hæð, en mun taka um hundrað lestir. Þykir forráðamönnum á Hellissandi geymirinn mjög ódýr. DEILDARSTJÓRAR innflutnings- deildar Sambandsins eru ærið víðförl- ir sumir hverjir, enda þurfa þeir að fara víða í innkaupaerindum til þess að fylgjast með nýjungum á markaðn- um og velja sem bezta vöru fyrir sem hagstæðast verð. Fara þeir flestar slík- ar ferðir Kjartan Sæmundsson, sem er orðinn hvað kunnugastur íslendinga öllum viðskiptum í Austur-Þýzka- landi, og Jón Björnsson, sem farið hef- ur víða til innkaupa á vefnaðar- og skóvöru. Nýlega voru þeir báðir á hinni árlegu vörumessu í Leipzig og gerðu þar allmargar pantanir, sem afgreidd- ar verða næsta ár. Það er mikils virði fyrir samvinnufélögin að eiga á að skipa dugandi mönnum og ábyggileg- um til innkaupa, enda mikið undir því komið, að þau takist vel. NOKKRAR BREYTÍNGAR urðu á áhöfnum Sambandsskipanna við komu Helgafells. Er Bergur Pálsson skip- stjóri á nýja skipinu, en hann var áður á Hvassafelli. Við skipsstjórn þess tek- ur Guðni Jónsson, sem verið hefur á Jökulfelli frá byrjun. Við Jökulfelli tekur Guðmundur Hjaltason, aðeins 31 árs gamall og hinn efnilegasti sjó- maður, sem nú tekur í fyrsta sinn við fastri skipsstjórn. Sverrir Þór verður áfram með Arnarfell, Arnór Gíslason með Dísarfell og Bernharð Pálsson með Litlafell. MYNDIRNAR á kápunni og af komu Helgafells tók Guðni Þórðarson.

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.